Morgunblaðið - 27.09.1979, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1979
Ireykvískum réttum
Á SUNNUDAG var réttaö
í Fossvallarétt skammt
ofan viö Reykjavík. Foss-
vallarétt, sem á sínum
tíma leysti af hólmi hina
gömlu Lögbergsrétt í
Lækjarbotnum, er ekki
hin eiginlega lögskilarétt
Reykvíkinga heldur er
Hafravatnsrétt lögskila-
réttin. Fossvallarétt er
eins og Húsmúlarétt viö
Kolviöarhól sundur-
dráttarrétt og er fé, sem
þar kemur fram, ýmist
flutt til síns heima eöa í
viðkomandi lögskilarétt.
Aö þessu sinni er taliö aö
um 2500 fjár hafi veriö
réttaö í Fossvallarétt.
Mest allt fé í eigu
Reykvíkinga er réttaö í
Fossvallarétt en á
síöastliönum vetri voru á
fóörum í Reykjavík rúml-
ega 1200 kindur og eru
þá meðtaldir þeir bæir,
sem eru innan borgarl-
andsins þar sem sauöfj-
árbúskaþur er stund-
aður. Fyrstu réttum er nú
víðast hvar lokiö en þess
má geta aö í dag,
fimmtudag, er réttaö í
Ölfusréttum
Sigurgeir Sigurðsson hæjarstjóri,
form. sveitarstjórnarmálanefndar
Sjálfstæðisflokksins
„Frjáls“
sveitarfélög
Sjálfstæðisflokkur-
inn tók á síðasta lands-
fundi afgerandi for-
ystu í sjálfstjórnarmál-
um sveitarfélaga og
hefur einn flokka lagt
fram skýra stefnu í
öllum helstu málum
varðandi samskipti
þeirra við ríkið. Hér er
um svo róttækar tillög-
ur að ræða að full
ástæða er að kynna
þær öllum landsmönn-
um.
Tekjuskattar
Án efa má tala um byltingu í
skattamálum fái Sjálfstæðis-
flokkurinn tækifæri tii að
hrinda í framkvæmd samþykkt
síðasta Landsfundar um tekju-
skatta, en þar er tekið af skarið
og því lýst yfir að „að svo miklu
leyti sem beinir skattar verða
ekki felldir niður, skuli þeir
verða tekjustofnar steitarfélag-
anna“.
Þessi yfirlýsing Landsfundar
er mjög mikilvæg, þar sem hér á
hlut að máli stærsti flokkur
þjóðarinnar sem e.t.v. hefur
möguleika fyrr en varir að fram-
kvæma þetta stórmál.
í raun þýðir þessi samþykkt
að ákvarðanataka um beina
skattlagningu, er færð til heima-
sveitar, sem vegur þá og metur
hverju sinni þörfina.
Vitanlega leiðir þessi aðgerð
af sér flutning verkefna til
sveitarfélaganna, sem ég vík að
síðar.
Eignaskattar
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins tók ennfremur af skar-
ið varðandi skattlagningu ríkis-
ins á fasteignir og samþykkti
eftirfarandi yfirlýsingar. „Skatt-
lagning ríkisins á fasteignir
falli niður, þar sem hér er um
tekjustofn sveitarfélaga að
ræða vegna veittrar þjónustu“.
Hér taka sjálfstæðismenn af-
dráttarlausa afstöðu gegn
ásækni ríkisins til þess að sölsa
undir sig tekjustofna sveitarfé-
laga og vilja um leið koma í veg
fyrir ofsköttun á fasteignir
landsmanna.
Ábyrgð heima-
manna
Sjálfstæðisflokkurinn vill
auka ábyrgð kjörinna fulltrúa
heimamanna og þess vegna lýsti
Landsfundur yfir að: þjónustu-
fyrirtæki og stofnanir sveitar-
félaga skulu rekin á ábyrgð
kjörinna sveitarstjórna. Af-
skipti ríkisins af stjórnun og
gjaldskrám slíkra stofnana
skerða mjög sjálfstæði sveitar-
félaga.
Sjálfstæðisflokkurinn mun
beita sér fyrir sliku sjálfstæði
án ríkisafskipta.
Hér gengur Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins fram fyrir
skjöldu og staðfestir formlega að
heimamönnum, hverjum á
sínum stað, sé betur til treyst-
andi en fjarlægu stjórnvaldi að
ákveða gjaldtöku fyrir veitta
þjónustu stofnana sveitarfélags-
ins við borgarana, enda þeir
sjálfir kallaðir til ábyrgðar ef
eitthvað fer úrskeiðis. í raun
hefur ríkið með síendurteknum
afskiptum af innri málum sveit-
arfélaganna skert sjálfræði
þeirra svo mjög að varla er hægt
að tala lengur um þau sem
sjálfstæðar stjórneiningar.
Hagkvæmni
„Gera á litlum sveitarfélögum
fjárhagslega hagkvæmt að sam-
einast“ segir ennfremur í Lands-
fundarsamþykkt Sjálfstæðis-
flokksins. Hér er farið inn á mjög
athyglisverða braut með því að
viðurkenna þá staðreynd að mis-
jöfn fjárhagsstaða litlu sveitarfé-
laganna hafi framar öðru komið í
veg fyrir sameiningu. Það sem
felst í þessari samþykkt er að
komið verði á skuldajöfnun og
jafnvel yfirtöku jöfnunarsjóðs á
hluta af skuldasöfnun, þannig að
aðilar geti gengið til sameiningar
á jafnréttisgrundvelli.
í næstu grein verður gerð grein
fyrir samþykktum 23. Landsfund-
ar Sjálfstæðisflokksins, að því er
varðar verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, en þar hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn þegar mótað til-
lögur sínar.