Morgunblaðið - 01.11.1979, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979
11
Fyrrverandi togaraskipstjóri:
Sovétmenn eru að þurrka heimshöfin af fiski
Óöló, október.
Frá fréttaritara Mbl.
VLADIL Lysenko, fyrrver-
andi skipstjóri á sovézkum
togara, staðhæfir að Sovét-
menn séu að tæma hafið af
fiski. Viadil leitaði hælis sem
pólitískur flóttamaður í
Svíþjóð fyrir f jórum árum og
hefur nú ritað bók þar sem
hann lýsir ófögrum orðum
rányrkjunni sem Sovétmenn
stunda.
Frá miðunum við Ný-
fundnaland um Barentshafið
til norðurhluta Kyrrahafs
hafa sovézkir togarar eytt
hverri fisktegundinni á fætur
annarri. Af mörgum miðum
eru bæði þorskur og síld
nánast horfin og meira að
segja rússneska krabbateg-
undin sem var send á markað
undir merkinu „chatka" er nú
næstum uppurin að sögn Lys-
enkos.
Lysenko hefur þrjátíu ára
reynslu af fiskveiðum. Hann
vísar eindregið þeim staðhæf-
ingum Sovétmanna á bug að
þeir gæti hófs við veiðarnar.
Hann segir, að trollpokarnir
séu fylltir hvort sem ætlunin
sé að nota fiskinn eða kasta
honum dauðum í sjóinn.
Fiskiskipin fylli frystigeymsl-
ur sínar með meira fiski-
magni en þær geta með góðu
móti tekið á móti og þetta
bitni á gæðunum.
Það sem mestu máli skipti
sovézka sjómenn sé að fylla
kvótana sem skriffinnarnir í
Kreml hafi búið til og sé þá
ekkert tillit tekið til aldurs
eða stærðar fisksins.
Lysenko segir, að sovézk
skip hafi árum saman vitandi
vits veitt í norskri fiskveiði-
lögsögu, en þar sem Norð-
menn hafi aðeins haft tvö
varðskip hafi ekki verið erfitt
fyrir Sovétmenn að láta vita
um ferðir þeirra.
Bókaupp-
boð á
Akureyri
ÞRIÐJA bókauppboð Jóhannesar
óla Sæmundssonar fornbókasala
á Akureyri verður í Hótel Varð-
borg laugardaginn 3. nóvember
n.k. og hefst kl. 15.30.
Það verða á boðstólum 150
bækur og rit og eru þar á meðal
Ársrit Fræðafélagsins I—IX,
Bóndinn á heiðinni, Búalög 1—3,
Búfræðingurinn, Dvöl I—XV, Ein-
valdsklærnar í Hornafirði, Fagurt
er í Fjörðum, Forlagaspár Kírós,
Jónsbók hin forna, Viðeyjar Njála
(1844) og Sagnir og þjóðhættir.
Bækurnar eru til sýnis í fornsöl-
unni Fögruhlíð kl. 16—18 virka
daga.
„Single sideband" og VHF-stöðvar,
en slík stöð kostar nokkur hundruð
þúsund krónur eða jafnvel meira.
Við verðum að kaupa þær í alla sex
bíla sveitarinnar þar með talið
snjóbílinn, auk þess sem við verðum
að eiga nokkrar fyrir björgunar-
flokkana sem fara til leita og
æfinga hverju sinni. I sambandi við
þessar talstöðvar má minnast á
það, að Lionsklúbburinn Njörður
ákvað fyrr á þessu ári að gefa okkur
eina slíka stöð en hefur til þessa
staðið í stappi við stjórnvöld um að
fá niðurfelld aðflutningsgjöld af
henni. Það er farið fram á þessa
niðurfellingu á þeirri forsendu að
stöðin er ótvírætt til björgunar-
starfa, en ekki til persónulegra
nota,“ sagði Ingvar.
Hvernig verður þá starfsemi
ykkar háttað þessa fjáröflunar-
daga?
„Við ætlum að hefjast handa
þegar í fyrramálið með því að
félagar sveitarinnar munu verða
við flestar stórverzlanir bæjarins
og við áfengisútsölur, auk þess sem
snjóbíllinn verður hafður niðri á
Lækjartorgi og úr honum seldar
skutlur alla helgina.
Á laugardaginn munum við
ganga í hús í bænum og bjóða
skutlurnar til sölu, það gekk mjög
vel á síðasta ári og ég treysti því að
fólk taki okkur eins vel, helzt betur.
Þessu lýkur svo á sunnudaginn
þegar félagar sveitarinnar munu
fara í nágrannabyggðarlögin og
bjóða skutlurnar til sölu, t.d. á
Akranesi og Selfossi svo eitthvað sé
nefnt.“
Að síðustu var Ingvar að því
spurður hver væru helztu verkefnin
nú auk þess að búa út nýju bílana.
„Ef ég ætti að nefna eitt frekar en
annað í því sambandi vildi ég nefna
það, að við erum um þessar mundir
að innrétta stjórnstöð á hjólum, þ.e.
við ætlum að gera færanlega
stjórnstöð úr einum gamla bílnum
okkar, en í henni verða öll hugsan-
leg fjarskiptatæki til að hafa sam-
band í gegnum bæði á landi og lofti
auk þess sem þar verður fyrir
komið safni af landakortum til nota
við leitir. Það má reikna með því að
fjórir til sex stjórnendur geti haft
aðsetur í þessari stjórnstöð sem
yrði sú fyrsta sinnar tegundar hér á
landi," sagði Ingvar F. Valdimars-
son að síðustu.
— sb.
Adam fer fint i veturinn. Þvi nú er hann birgur
af glæsilegum hátíðar- og hvunndagsfatnaði.
Peysu- Combi- og Tweedföt i kippum, stakar
tweed- og flannelsbuxur, stakir tweed jakkar,
vesti og skyrtur.
Allt fatnaður „a la Adam", enda flott eftir þvi.
Littu inn og kynntu þér málið.
LAUGAVEGI 47 SÍM117575