Morgunblaðið - 01.11.1979, Page 16

Morgunblaðið - 01.11.1979, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979 Sigrún Gísladóttir skrifar frá Svíþjóð Norræni sjónvarpshnött- urinn getur hafið send- ingar eftir 10 ár Umræður um samnorræna fjarskiptahnöttinn fyrir sjón- varp og útvarp „NORDSAT" hafa verið ofarlega á baugi síðan nefndin, sem skipuð var af Norð- urlandaráði, skilaði áliti til menningar- og menntamálaráð- herra Norðurlandanna 22. okt. s.l. Samkvæmt niðurstöðum nefndarinnar ættu Norðurlöndin og Grænland að geta náð til sjö norrænna sjónvarpsstöðva og ellefu útvarpsstöðva eftir um það bil tíu ár. Þar með hefur fresturinn til þess að taka ákvörðun um tilkomu slíks hnattar skyndilega minnkað til muna. Mikilvæg ákvörðun Ekki mun lokaákvörðun verða tekin fyrr en á fundi Norður- landaráðs í Kaupmannahöfn vorið 1981. En fyrir 15. apríl n.k. eiga þjóðirnar að hafa skilað áliti, og í framhaldi af því gæti orðið að efna til aukafundar um Nordsat næsta haust. Þetta er mikilvæg ákvörðun með langvar- andi afleiðingum sem Norður- löndin standa frammi fyrir. Verði sú ákvörðun tekin að beita sér fyrir sameiginlegum sjón- varpshnetti, verður ekki aftur snúið. Norðurlöndin eiga þann mögu- leika að verða fyrst í heimi með sameiginlegan fjarskiptahnött. Sú staðreynd að Vestur-Þýska- land og Frakkland hafa nýlega gert með sér samning um slíkan sjónvarpshnött setur stórt strik í reikninginn, þegar ákvörðun verður tekin um Nordsat. Fransk-þýski hnötturinn verður rekinn á allt öðrum grundvelli þ.e.a.s. fjármagnaður með aug- iýsingum. Verði Norðurlöndin ekki fyrri til með sinn hnött getur ekkert hindrað fransk- þýsku augiýsingastöðvarnar að varpa yfir löndin. Þar af leiðir, að staða fjölmiðla á Norðurlönd- unum mun verða allt önnur í kringum 1985 hvernig svo sem verður með Nordsat. Kostnaður Það mun taka minnst átta ár frá því að tekin er fullnaðar- ákvörðun um tilkomu hnattar- ins, þar til hann verður kominn í reglubundna notkun. Ennfremur er reiknað með að það líði 15—20 ár áður en öll heimili í viðkom- andi löndum geti tekið á móti sendingum hnattarins. Kostnaður við hnöttinn, sendi- kerfið, rekstur og önnur útgjöld í viðbót við núverandi rekstrar- kostnað verður samkvæmt út- reikningum nefndarinnar um 4,5 milljarðar sænskra króna fyrstu tuttugu árin, eða um það bil 250 milljónir á ári. Þessum kostnaði mun verða skipt í samræmi við brúttóþjóðartekjur landanna, og mun hlutur Svía verða stærstur, eða 43 prósent. Mikill kostnaður mun koma beint í hlut sjón- varpsnotenda. Til þess að geta tekið á móti sendingum Nordsat þarf sérstök loftnet (parabol- loftnet). Staðsetning hnattarins verður í 36.000 km hæð yfir vesturströnd Afríku, og þaðan mun hann senda útvarps- og sjónvarpsdagskrár, sem sendar eru upp frá jarðstöðvunum. Að auki þarf sérstök móttökutæki innanhúss sem umbreyta send- ingum hnattarins fyrir sjón- varpstækið. Þessi útbúnaður, ásamt uppsetningu, er áætlað að kosti nú 4—5 þús. sænskar krónur (tæpl. hálf millj. ísl. krónur) fyrir einbýlishús og rað- hús með sér loftnet, en yrði mun ódýrara fyrir fjölbýlishús með sameiginleg loftnet. Aðdragandi — markmið. Hugmyndin um norrænan sjónvarpshnött á rætur sínar að rekja til áranna rétt fyrir og upp úr 1970, þegar Norðurlandaráð ræddi og tók ákvarðanir um aukið norrænt samstarf á svið sjónvarps. Á árunum 1974-77 kom hnötturinn inn í myndina sem tæknilegur möguleiki. Síðan hefur mikill og stöðugt vaxandi undirbúningur svo að segja ein- göngu beinst að Nordsat sem lausn á sameiginlegu norrænu sjónvarpi. Þó er enn viss áhugi á umfangsminni og ódýrari lausn, eins og þeirri að hafa norrænar sjónvarpssendingar með jarðlínu. Markmiðið með samnorræn- um sjónvarpshnetti er fyrst og fremst að auka menningarleg samskipti Norðurlandanna, og eins að bæta gagnkvæma þekk- ingu og skilning á lífsháttum og tungumálum þjóðanna. Gert er ráð fyrir að hluti sjónvarpsefnis- ins verði þýddur til þess að gera þættina áhugaverðari fyrir ná- grannaþjóðirnar. Þýðingar séu fyrst og fremst nauðsynlegar efni sem sent verður út á finnsku og íslensku. Aukið sjónvarpsgláp? Samkvæmt tillögum nefndar- innar á austurhlutinn, þ.e.a.s. Svíþjóð, Finnland, Danmörk og Noregur, að geta náð öllum 7 sjónvarpsstöðvunum og 11 út- varpsstöðvum. ísland, Færeyjar og Grænland verða vegna legu sinnar að láta sér nægja 5 sjónvarps- og 10 útvarpsstöðvar , (það eru þær finnsku sem falla út). Ekki verður hægt að hlusta á sendingar hnattarins í bílút- varpi eða ferðatæki, þar eð tenging í fast loftnet er nauð- synleg. Sérfræðingar könnunar- innar búast ekki við neinum stórfelldum breytingum á sjón- varpsglápi fólks almennt með tilkomu Nordsat. Þeir sem að öllum líkindum munu horfa meira eru þeir sem þegar í dag horfa mikið á sjónvarp. Talið er að Svíar horfi að meðaltali um V4 klst á dag á sjónvarp, en það eru börn 9-14 ára, sem horfa mest, 3-4 klst. Telja margir að Nordsat geti haft jákvæðar af- leiðingar fyrir þau, því að fram- boð til barnaefnis verður meira og gefur þeim innsýn í tungumál og hagi nágrannaþjóðanna. Þeir sem eru mótfallnir sjónvarps- hnettinum benda á þá reynslu sem fengist hefur í Evrópu, þar sem hægt er að horfa jafnframt á sjónvarpsstöðvar nærliggjandi „Fyrsta öngstræti til hægri” frumsýnt á Akureyri á morgun Akureyri, 28. október. Örn Bjarnason er ungur höfundur, sem fyrir nokkrum árum vakti á sér mikla at- hygli fyrir snjallar smásögur, sem birtust eftir hann m.a. í Lesbók Morgunblaðsins. Fyrir tveimur árum var leik- ritið „Biðstöð 13“ leikið í Ríkisútvarpið og einnig skrif- aði Örn skáldsögu um sama efni og með sama nafni. Um svipað leyti byrjaði hann á leikritinu „Fyrsta öngstræti til hægri“, sem Leikfélag Ak- ureyrar hefir nú tekið til sýningar. Leikritið er að mestu saga tveggja stúlkna, Maríu, sem leikin er af Svanhildi Jóhann- esdóttur, og Önnu, sem leikin er af Sunnu Borg. María kem- ur til borgarinnar og kynnist þar Önnu, sem lifað hefir lífi þess fólks, sem kallað hefir verið utangarðs. Með þeim tekst mikil vinátta, og er ferill þeirra rakinn, auk þess sem liðin atvik koma við og við inn í frásögnina. Þær stöllur lenda í ýmsum ævintýrum, þar til örlögin skilja þær sundur. Yfirvöldin grípa í taumana, hver stofnunin eftir aðra reyna að koma þeim út úr öngstrætinu og á réttan kjöl, en það ætlar að reynast erfitt. Leikstjóri er Þórunn Sigurð- ardóttir, Sigurjón Jóhannes- son, yfirleiktjaldasmiður Þjóðleikhússins, hannaði leik- mynd, en Hallmundur Krist- insson smíðaði hana. Ljósa- meistarinn, Ingvar Björnsson, er nýráðinn til L.A., en var áður hjá Þjóðleikhúsinu. Persónur leikritsins eru 19, en leikendur eru 10, þar af 8 fastráðnir leikarar Leikfélags Akureyrar. Þar hafa orðið | % Wsmii. y/fÆÁ- , VjÉjá| J r- mA F.v. Sigurjón Jóhannsson, leikmyndahönnuður, Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri og Örn Bjarnason höfundur. Guðbjörg Guðmundsdóttir og Sigurveig Jónsdóttir. Þráinn Karlsson. Sunna Borg og Svanhildur Jóhannesdóttir i hlutverkum sinum. nokkur mannaskipti, og ný- ráðið starfsfólk auk Ingvars Björnssonar eru leikararnir Bjarni Steingrímsson og Sunna Borg, og Friðgeir Guð- mundsson, framkvæmdastjóri. Leikhússtjóri er sem áður Oddur Björnsson, rithöfundur. — Þetta er 2. verkefni L.A. á þessu leikári, en nú standa yfir sýningar á sjónleiknum „Galdrakarlinn í Óz“. Fyrr í haust voru nokkrar sýningar á „Skrýtinn fugl, ég“, en það voru í raun réttri framhalds- sýningar frá síðasta leikári. Þegar eftir frumsýninguna á föstudaginn verður byrjað að æfa „Puntilla og Matti" eftir Berthold Brecht. Leik- stjóri verður Hallmar Sigurðs- son, sem lagt hefir stund á leikstjórnarnám í Svíþjóð að undanförnu. Þórunn Sigurðardóttir, leik- stjóri, lét í ljós mikla ánægju með að starfa með höfundi leikritsins og hönnuði leik- myndar, og einnig kvað hún samvinnuna við leikara og 3tarfsmenn L.A. hafa verið ágæta. Hún sagði, að leikritið væri að sinni hyggju vel samið og af næmri tilfinningu fyrir högum og örlögum þess fólks, sem ætti í baráttu vegna ofnotkunar áfengis og lyfja. Reynt væri, bæði frá sinni hendi og höfundarins, að sjá viðfangsefnið í nýju ljósi og með öðrum hætti en oftast tíðkaðist og fremur reynt að sjá efnið innan frá fremur en utan frá. Leitast hefði verið við að byggja á kynnum og þekkingu lækna, hjúkrunar- fólks og sjúklinga og leita skilnings á vandamálum áfengis- og fíkniefnaneytenda. Þetta væri þó fjarri því að vera eina efnisatriði leikrits- ins, þar væri margt annað tekið til meðferðar, t.a.m. hin innilega vinátta stúlknanna. Næstu sýningar eftir frum- sýningu verða á laugardags- og sunnudagskvöld, 3. og 4. nóvember. _ _

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.