Morgunblaðið - 01.11.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1979
19
stóraukin fiskirækt í ánni væri í
boði og margháttaðar lagfæringar
við veiðistaði árinnar ásamt gerð
nýrra veiðistaða með aðstoð nýj-
ustu véltækni borgarinnar.
Þetta er sorgarsaga, ásamt
ennþá lengri sorgarsögu að baki
kælivatnstöku Áburðarverksmiðj-
unnar úr ánni á sínum tíma, sem
ekki verður rakin hér að sinni.
Hinsvegar mætti þessi saga
gjarna koma fyrir almennings
sjónir til upplýsingar og fróðleiks
um stöðu og stjórn veiðimálanna í
landinu, ægilega rangláta veiði-
löggjöf og loks um harðfylgi jarð-
eigenda.
Fiskiræktarstarfsemi Reykja-
víkurborgar væri þó sannarlega
ekki síður full þörf á fjárhagsleg-
um bakhjarli frá þessari laxveiðiá,
vegna hinnar stóru eignaraðildar
borgarinnar í ánni, sem og frá
Elliðaánum. En því miður lætur
Reykjavíkurborg mergsjúga sig í
þessum efnum og hefst ekki að
nema á neikvæðan hátt hingað til.
Vonandi fer brátt að birta í lofti í
málum þessum.
3. Laxá í Kjós er þriðja
laxveiðiáin, sem Reykjavíkurborg
á eignaraðild að, fyrir landi Þor-
láksstaða, sem að vísu er ekki
nema 1,4% af heildarveiðiréttind-
um árinnar. En menn vita þó vel
að há leiga er greidd fyrir Laxá í
Kjós. Og ekki er vitað til þess að
fiskiræktarstarfsemi borgarinnar
beri þar neitt úr býtum, enda
sennilega látið ganga til ábúanda
Þorláksstaða.
Enn er ótalið ítak til laxveiða í
Soginu, sem að vísu er smávægi-
legt. Þá má nefna möguleikana á
því að gera Hólmsá að snoturri
stangaveiðiá í framhaldi af Elliða-
ánum og Elliðavatni.
Ég hefi hér reynt að fara fljótt
yfir sögu um vatnasvæði Reykja-
víkurborgar, eignaraðildir og ítök
og leitast við á einfaldan hátt að
sýna fram á þau verðmæti og þá
möguleika til veiðiskapar og úti-
vistar, sem fyrir hendi eru,
óskipulagðir og lítt nýttir enn af
borgarbúum. Hefi ég bent á að
eignaraðildir og ítök borgarinnar
til silungs- og laxveiða mótast af
óvenju stóru og tilbreytingarríku
vatnasvæði, sem lýsa má í stuttu
máli á eftirfarandi hátt:
1. Þrem stórum og ágætum
silungsveiðivötnum með ágætum
fiskastofnum i hrifandi fögru
umhverfi náttúrunnar og ítök í 3
smærri vötnum.
2. Þrem sérlega gjöfulum og
góðum laxveiðiám, tveim innan
nýjasta skipulags borgarinnar
auk ítaka i tveim öðrum ám.
Þau eru ekki lítil verðmætin,
sem borgin á í þessum vötnum og
ám og það eru engar smávegis
veiðiréttindatekjur, sem vatna-
svæði borgarinnar gæti gefið með
góðu skipulagi og samstarfi allra
hlutaðeigandi aðila.
Menn geta svo gert það að
gamni sínu að ákveða dagstanga-
fjölda til silungsveiði í vötnunum,
dagstangafjölda til laxveiða í án-
um, verðlagt svo hverja stöng sem
seld yrði, til dæmis 50% af
heildarstangafjöldanum í 2
sumarmánuði og þannig fengið út
varlega áætlaða tekjuupphæð,
sem verja ætti svo til fiskiræktar-
starfsemi borgarinnar í öllu
vatnasvæðinu.
Enginn vafi er á því, að ekki má
lengur dragast að fiskiræktar-
starfsemi borgarinnar verði stór-
lega styrkt og efld með arði og
fjárhagslegri aðstoð frá þessum
miklu veiðivatnaverðmætum, sem
Reykjavíkurborg á yfir að ráða.
Áhugi fatlaðra
og lamaðra
Ég vék stuttlega að því áður í
þessu greinarkorni mínu, hvað
Iþróttafélag fatlaðra og lamaðra
hefði sýnt mikinn áhuga fyrir
þeirri aðstöðu, sem fiskiræktar-
starfsemi borgarinnar hefði skap-
að þeim á bökkum Elliðavatns.
Einnig var sköpuð tilsögn við
þetta fatlaða og lamaða fólk í
meðferð veiðarfæra, einkum með
kaststengur. Þetta starf má engan
veginn falla niður, heldur verður
að auka það verulega. Og færi svo
að áhuginn ykist jafnt og þétt, þá
má auðvitað stækka og bæta
aðstöðuna og jafnvel skapa hana
víðál- en við Elliðavatnið og á
bökkum þess.
Fiskirækt
Fiskirækt þarf að stórauka fyrir
hið mikla vatnasvæði borgarinnar
og borgin á sjálf að tryggja og
bera ábyrgð á fiskiræktinni með
fiskiræktarstarfsemi sinni og að-
setri í Klak- og eldisstöðinni við
Elliðaárnar. Þar á að leggja
áherzlu á að rækta úrvals lax-
fiskastofna, urriða, bleikju og lax,
jafnvel einnig regnbogasilung.
Leggja beri áherzlu á að rækta
snemmgenginn lax og forðast að
veiða síðgenginn lax til undaneldis
og ræktunar. Rétt væri einnig að
gera tilraunir með kynbætur á
laxi.
Fiskeldi
Fiskiræktarstarfsemi Reykja-
víkurborgar ætti einnig að beita
sér fyrir forrannsóknum á því,
hvar bezt væri að koma fyrir og
hefja fiskeldi í landi borgarinnar.
Á þann hátt gæti fiskiræktar-
starfsemi borgarinnar lagt grunn
að arðbærum atvinnurekstri í
borgarlandinu, sem bæði mundi
skapa fjölda manns atvinnu og um
leið miklar gjaldeyristekjur af
útflutningi.
Laxeldi í sjó
Fiskiræktarstarfsemi borgar-
innar hefur þegar hafið undirbún-
ing á þessu sviði, og er gott til þess
að vita. Laxeldi í sjó er þegar
orðinn gróskumikill atvinnuvegur
í nágrannalöndum okkar, sem nú
orðið byggist býsna víða á keypt-
um laxaseiðum frá íslandi. Það er
upplýst að hnattstaða og lega
Reykjavíkur er á sama sviði og
þessi atvinnuvegur hefur gengið
hvað bezt í Noregi. Hversvegna
hefjumst við ekki handa sjálfir?
Öll kostar þessi starfsemi, sem
hér hefur verið vikið að, mikið fé.
En tekjustofnarnir eru fyrir hendi
í vatnasvæði Reykjavikurborgar.
Og Reykjavíkurborg er framsýn
borg, sem jafnan hefur viljað veg
sinn sem mestan.
Fiskiræktarstarfsemi borgar-
innar gæti orðið næsta stórátakið.
Bláa byltingin bíður á næsta
leiti.
Jakob V. Hafstein lögfr.
Hjólreiðakeppni umferðarráðs:
Fjórir efstu til Eng-
lands í alþjóðakeppni
í marsmánuði undanfarin ár
hefur Umferðarráð, í samvinnu við
lögreglu og menntamálaráðuneyt-
ið, staðið fyrir árlegri spurninga-
keppni fyrir 12 ára nemendur i
skólum landsins. Þeir nemendur
sem hafa staðið sig best hafa siðan
tekið þátt i hjólreiðakeppni, sem
byggist á góðakstri og hjólreiða-
þrautum. Hefur sú keppni farið
fram í Reykjavik og á Akureyri
fyrri hluta aprílmánaðar ár hvert.
Áð henni afiokinni hafa svo þeir
f jórir bestu verið verðlaunaðir með
þátttökurétti i alþjóðiegri hjóla-
keppni sem fer fram til skiptis i
hinum ýmsu höfuðborgum Evrópu í
maimánuði, á vegum PRI (Alþjóða-
samtök Umferðarráða).
Þar sem æfingar og þjálfun hér-
lendis er mjög háð verðráttu þykir
heppilegra að í framtíðinni fari
hjólreiðakeppnin fram í kjölfar
spurningakeppninnar síðar á vorin,
þ.e. í maí. Með því móti gefst
nemendum rýmra tækifæri til æf-
inga. — Síðan að lokinni úrslita-
keppni, sem fari fram að hausti bíði
þeir sem ná bestum árangri í hálft
ár þátttöku í alþjóðlegu keppninni.
Vegna þessara breytinga fór fram
keppni milli þeirra 12 næstbestu frá
hjólreiðakeppni s.l. vors, þ.e.a.s.
þeirra sem urðu í 5.—16. sæti í
Reykjavík og á Akureyri. Á Akur-
eyri fór keppnin fram 18. október við
Oddeyrarskólann, en í Reykjavík 24.
október við Austurbæjarskólann.
Urslit urðu sem hér segir:
Grunnskólanum, Búðardal 548.
2. Hreiðar Haraldsson,
Laugalækjarskóla, Reykjavík 534
3. Hermann Örn Ingólfsson,
Glerárskóla, Akureyri 530
4. Bragi Gunnarsson, Æfinga-
og tilraunskóla K.H.Í., Rvík 528
5. Karl Gunnlaugsson,
Réttarholtsskóla, Reykjavík 525
6. Logi Jóhannesson,
Víghólaskóla, Kópavogi 515
Þeir fjórir efstu hafa því unnið sér
rétt til þátttöku í alþjóðlegu hjóla-
keppninni sem fer fram í Englandi
næsta vor.
stig
1. Ingþór Oli Thorlacíus,
VOLVO hlONUSTA
Nú bjóða öll umboðsverkstæði VOLVO
umhverfis landið sérstaka
VETRARSKOÐUN
1. Vélarþvottur
2. Hreinsun og feiti á
geymissambönd
3. Mæling á rafgeymi
4. Mæling á rafhleðslu
5. Hreinsun á blöndung
6. Hreinsun á bensíndælu
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
Skipt um kerti
Skipt um platínur
Stilling á viftureim
Skipt um olíu og olíusíu
Mæling á frostlegi
Vélastilling
Ljósastilling
Verð með söluskatti:
4 cyl.
6 cyl.
kr. 37.057,-
kr. 39.990,-
Innifalið í verði: Platínur,
olíusía, ísvari, ventlalokspakkning,
kerti, vinna, vélarolía.
Fasteign á hjólum
Akranes: Bílvangur, Bílaverkstæði Gests Friðjónssonar.
Borgarnes: Bifreiða- og trésmiðja Borgarness.
Stykkishólmur: IMýja bílaver.
Tálknafjörður: Vélsmiðja Tálknafjarðar.
ísafjörður: Bifreiðaverkstæði ísafjarðar.
Bolungarvík: Vélsmiðja Bolungarvíkur hf.
Sauðárkrókur: K.S., Sauðárkróki.
Akureyri: Þórshamar hf.
Húsavík: Bifreiðaverkstæði Jóns Þorgrímssonar.
Þórshöfn: Bifreiðaverkstæði K.L.
Egilsstaðir: Fell sf., Hlöðum við Lagarfljótsbrú.
Hornafjörður: Vélsmiðja Hornafjarðar, Höfn.
Kirkjubæjarklaustur: Bifreiðaverkstæði
Gunnars Valdimarssonar.
Hvolsvölur: K.R. Hvolsvelli og Rauðalæk.
Selfoss: K.Á. Við Austurveg.
VOLVO
—
Suðurlandsbraut 16 • Sími 35200
Úlfarsá.