Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 1
48 SÍÐUR 258. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Atburðirnir i íran: , „Sprengjum sendiráðið beiti Bandaríkin valdi“ Teheran, Washington, 21. nóvember. AP. Reuter. ÍRÖNSKU stúdentarnir, sem hafa bandaríska sendiráðið í Teheran á valdi sínu og halda þar enn 49 Bandaríkjamönnum í gíslingu, hótuðu í dag að sprengja sendiráðið i loft upp með öllum gíslunum, geri Bandaríkin alvöru úr þeirri hótun sinni að beita hervaldi til að reyna að frelsa gíslana. Einn stúdentaleiðtoganna sagði í samtali við fréttamann, að allir gíslarnir yrðu drepnir jafnskjótt og fyrsti bandariski hermaðurinn stigi fæti á íranska jörð. Jafnframt var því hótað að allir aðrir Bandaríkjamenn i íran, u.þ.b. 300 manns, verði einnig drepnir, láti Bandaríkjamenn til skarar skriða. Þessi yfirlýsing kemur í kjölfar hótunar Carters Bandaríkjaforseta í gær þess efnis, að Bandaríkja- stjórn geti neyðzt til að grípa til vopna verði allir gíslarnir ekki látnir lausir. Flugmóðurskipið Kitty Hawk er nú á leið frá Filipseyjum inn á Indlandshaf, en þar er fyrir annað slíkt skip, Midway, og í fylgd með þessum skipum, sem bæði eru búin full- komnustu árásarflugvélum, eru fjölmörg minni herskip. Ayatollah Khalkhali, einn trúar- leiðtoganna í Iran, sagði í dag, að réttast væri að efna til eins konar Núrnberg-réttarhalda yfir Carter Bandaríkjaforseta og Richard Helms fyrrum yfirmanni banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA, og sendiherra í Iran. Fólkið, sem stúdentarnir í sendi- ráðinu í Teheran slepptu fyrr í vikunni, kom í dag á fund frétta- manna í Frankfurt. Hér er um að ræða fimm konur og átta blökku- menn. Var lesin yfirlýsing frá stúdentunum í sendiráðinu, en gíslarnir fyrrverandi kváðust ekki vilja svara spurningum frétta- manna vegna öryggis þeirra gísla, sem eftir urðu í sendiráðinu. Fólkið leit allt bærilega vel út. Það heldur í dag heim til Bandaríkjanna. I yfirlýsingu stúdentanna, sem lesin var, segir m.a. að Iranskeisari fyrrverandi muni fá sanngjarna meðferð verði hann framseldur til írans og Carter Bandaríkjaforseta er boðið að koma og vera viðstaddur réttarhöldin yfir honum. (Simamynd AP) Reykhaf stigur til himins eftir að æstur múgur hafði kveikt í bandaríska sendiráðinu i Islamabad i Pakistan. .Skjótum banda- 99 rísku hundana 64 100 Bandaríkjamönnum bjargað af þaki sendiráðsins í Pakistan Islamabad, 21. nóvember. AP. Reuter. EINN bandariskur hermaður beið bana og um hundrað Bandaríkja- menn voru lokaðir inni i margar klukkustundir, þegar æstur múg- ur réðst á bandariska sendiráðið i Islamabad i Pakistan i dag og Herútboð í Zambíu Lusaka, 21. nóvember. AP. KENNETH Kaunda Zambíuforseti kallaði í dag út allan varaher landsins, svo og alla fyrrverandi hermenn til að mæta árásum frá Zimbabwe-Rhódesíu. Herútboðinu fylgdu miklar árásir í blöðum landsins á Bretland fyrir afstöðu Breta í Rhódesíudeilunni. Litið er á herútboðið sem varnar- ráðstöfun af hálfu Kaunda frekar en undirbúning beinna aðgerða gegn Rhódesíu. kveikti í þvi. Her landsins bjarg- aði fólkinu af þaki sendiráðsins, þegar eldurinn tók að breiðast um húsið. Mikil skothrið var um hrið i sendiráðinu, þegar árásin var gerð á það og særðust 37 menn í þeirri hrið. Fólkinu var komið fyrir í brezka sendiráðinu, þar sem öflug- ur hervörður gætir starfsmanr.a. Þúsundir Pakistana tóku þátt í árásinni í þeirri trú, að Bandaríkja- menn hefðu staðið að árásinni á helgistað Múhameðstrúarmanna í Mekka. Voru hrópuð ókvæðisorð um Bandaríkjamenn og menn hvattir til að „skjóta bandarisku hundana“. Zia-ul-Haq forseti Pakistan bað Carter Bandaríkjaforseta í dag per- sónulega afsökunar á árásinni á sendiráðið og skoraði á þegna landsins að veita erlendum mönnum í landinu starfsfrið. Múgur réðst einnig á menning- arstofnun Bandaríkjanna í Rawal- pindi og brenndi brezka bókasafnið í sömu borg. Efnt var til mótmæla- aðgerða gegn Bandaríkjunum í ýmsum öðrum borgum Pakistans í dag. Zia forseti sagði í kvöld í sjón- varpsávarpi að það hefðu verið öfgafullir Múhameðstrúarmenn sem stóðu fyrir þessum árásum, en það væri skylda sannra Múha- meðstrúarmanna að virða réttindi útlendra sendimanna í landinu. Zia sagði að það væri fjarstæða að kenna Vesturlöndum um árásina á moskuna í Mekka. Trudeau hættir Ottawa, 21. nóv. AP. Reuter. PIERRE-ELLIOT Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, tilkynnti i dag í Ottawa, að hann hygðist hætta afskiptum af stjórnmál- um og segja af sér for- mennsku í Frjálslynda flokknum frá næsta marz- mánuði. Trudeau var forsæt- isráðherra í Kanada í 11 ár samfleytt, eða þar til flokkur hans beið ósigur í þingkosn- ingum fyrr á þessu ári. Trud- eau sagði á fundi með frétta- mönnum i dag, að tími væri kominn til fyrir flokk hans að fá nýja leiðtoga og að það væri nauðsynlegt, ætti flokk- urinn að ná völdurn í landinu á nýjan leik. Trudeau átti við ýmis erfið vandamál að glíma á valda- ferli sínum, þ.á m. vaxandi hreyfingu aðskilnaðarsinna í Quebec, þaðan sem hann er sjálfur upprunninn. Einkalíf hans og fyrrverandi konu hans, Margrétar, var einnig mikið í sviðsljósinu á meðan hann var ráðherra. Trudeau er nú sextugur að aldri. Hann kom í stutta, opinbera heim- sókn til íslands fyrir nokkrum árum. Vissu um Blunt segir Margaret Thatcher Lundúnum, 21. nóvember. AP. VIÐ upphaf umræðunnar um mál Anthony Blunts, sem árið 1964 viðurkenndi að hafa stundað njósnir i þágu Rússa, lýsti Mar- garet Thatcher forsætisráðherra þvi yfir i neðri málstofunni, að fyrirrennurum hennar á forsæt- isráðherrastóli hefði verið kunn- ugt um málið. Skýrði Thatcher meðal annars frá því að enda þótt Sir Alec Douglas Home, sem var forsætis- ráðherra þegar Blunt viðurkenndi sekt sína, hefði lýst því yfir fyrir nokkrum dögum að hann hefði ekkert vitað um málið, hefði það rifjast upp fyrir honum síðar. Sjá grein bls. 22. Hala enn hluta mosk- unnar á valdi sínu Riyadh, 21. nóvember. AP. SÍÐUSTU fregnir frá Mekka herma að enn skirrist saudi- arabiskir hcrmenn við að ráðast til atlögu við „trúvillingana“, sem hafa hluta Moskunnar miklu, ásamt ótilteknum fjölda gísla, á valdi sinu. Fregnir af árásinni á Moskuna eru mjög óljósar, en óstaðfestar fregnir frá Kuwait, þar sem ráðherrar frá Saudi-Arabiu eru i hópi fulltrúa á fundi Arababandalagsins, herma að Saudi-Arabar hafi með vopn- aðri árás fyrr i dag náð mestum hluta moskunnar, garði hennar og Kaaba úr klóm árásarmanna. auk þess sem þeir hafi frelsað f jölda gisla. Meðal gísla, sem enn er talið að séu á valdi árásarmanna, er fjöl- skylda Yamanis olíumálaráð- herra. Gífurleg reiði er nú í öllum löndum Múhameðstrúarmanna vegna þeirra helgispjalla, sem þarna hafa verið unnin, en talið er að í áhlaupinu á moskuna í gær hafi árásarmenn fellt fjölda pílagríma og sært enn fleiri. Sjá nánar grein á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.