Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 Hreppsneínd Stykkishólms: Mælir með óbreyttri skipan skelveiðimála HREPPSNEFND Stykkishólms- hrepps gerði síðastliðinn þriðjudag ályktun vegna yfirstandandi deilu um skelveiðimál. Segir í ályktun- inni, að núverandi ástand mála, sé i eðlilegu framhaldi af þeirri upp- byggingu og sérhæfingu í vinnslu, sem átt hafi sér stað síðustu árin. Ályktunin er eftirfarandi: „Hreppsnefndin lýsir yfir fullu trausti á starfsmönnum Sjávarút- vegsráðuneytisins sem fjalla um skelveiðimál á Breiðafirði. Um leið hvetur hreppsnefnd ráðuneytið til að standa traustan vörð um markaða stefnu í þeim málum. Hreppsnefnd minnir á niðurstöður og árangur fundar um skelveiðimál, sem hald- inn var í Stykkishólmi 12. janúar sl. að forgöngu hreppsnefndar, með heimaaðilum, fiskifræðingum og starfsmönnum sjávarútvegsráðu- neytisins. Núverandi skipan mála er í eðli- legu framhaldi af þeirri uppbygg- ingu og sérhæfingu í vinnslu, sem átt hefur sér stað í Stykkishólmi hin síðari ár og verið einn meginþáttur í atvinnusköpun staðarins." Framkvæmdastjóri VSÍ um bráðabirgðalögin; „íhlutun í gildandi kjarasamninga44 MEÐ bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar frá í fyrradag var ákveðin 2% hækkun á lægstu iaun. Morgunblaðið spurði Þor- stein Pálsson framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands íslands um afstöðu VSÍ til þessara bráðabirgðalaga. „Okkar afstaða er sú, að við lítum á þetta, sem íhlutun í gildandi kjarasamninga", sagði Þorsteinn. „Með þessu er verið að raska umsömdum launahlutföll- um. Vinnuveitendasambandið og Alþýðusambandið sömdu í júní- mánuði síðastliðnum um 3% grunnkaupshækkun og á grund- velli þess verðbótakerfis, sem ákveðið var með efnahagslögunum í apríl. Ef þau hefðu náð fram að ganga óbreytt hefðu allir laun- þegahópar fengið jafna hlutfalls- lega kauphækkun. Nú hefur ríkis- stjórnin ákveðið grunnkaupshækk- un upp á eigin spýtur að því er varðar hluta launþega og þetta raskar að sjálfsögðu þeim launa- hlutföllum, sem verið hafa í gildi og mun þar af leiðandi gera samningana eftir áramótin miklu erfiðari en ella. Við teljum það vera algjörlega óafsakanlegt hjá ríkisstjórn að breyta þannig gildandi kjarasamn- ingum, enda er hér ekki um neitt annað að ræða en aukna verðbólgu og gerir allar yfirlýsingar þeirra, sem ábyrgð bera í ríkisstjórninni, um frjálsa kjarasamninga mark- lausar," sagði Þorsteinn að lokum. ísafirði 20. nóv. — Svartasta skammdegið fer nú í hönd. Á myndinni, sem tekin var á ísafirði s.l. föstudag, sést sólin setjast yfir örnum hellandi síðustu geislum sínum yfir staðinn á þessu ári áður en hún hvarf bak við Vatnahnúk. 24. janúar á næsta ári fagna Isfirðingar sólinni aftur með sólarkaffi á hverju heimili. — Úlfar. Meðalþungi dilka 1,30 kg minni en í fyrra: Tap sauðf járbænda 2000 milljónir króna Tíðarfarið rysjótt og lítill afli á landi TÍÐARFAR hefur að undanförnu verið rysjótt vestra og afli því lítill. Fyrstu 10—12 daga mánað- arins voru Vestfjarðatogararnir á ufsaveiðum og aflaðist ágætlega, einkum norður af Víkurál. Togar- arnir komu flestir inn f gær og i fyrrinótt eftir 2 daga á veiðum. Margir togarar lágu undir Grænuhlíð í fyrrinótt vegna veð- urs fyrir utan. — Það er greini- legt að togaraflotinn er alls ekki of stór og ekki nægilega stór til að halda uppi atvinnu nema þann stutta tima þegar aflatopparnir koma, sagði Jón Páll Halldórsson á ísafirði í gær. Að sögn Jóns Páls var gott fiskirí hjá línubátunum fram að helgi, en mjög tregur er bátarnir komust á sjó eftir landlegu. Þá varð ekki vart neins smokkfisks í fiskinum, en undanfarið hefur smokkfiskur ver- ið í allri fiskislóðinni norður með Vestfjörðum. Hins vegar er langt síðan smokkfiskur hvarf úr fjörð- um fyrir vestan. SAUÐFJÁRSLÁTRUN mun að mestu lokið. í einstaka sláturhúsi er þó verið að slátra fullorðnu fé þessa daga, en lftið er um að dilkum sé slátrað. Hinn 15. nóv- ember hafði verið slátrað samtals 960.999 dilkum og 123.363 full- °rðnU' Meðalfallþungi dilka reyndist vera 13.08 kg, en í fyrra var hann 14.38 kg. í ár var slátrað tæpum 29 þúsund dilkum fleira en i fyrra en kjötmagnið reyndist vera 839 tonnum minna. Nú hefur verið slátrað 33.805 fullorðnu fé fleira en i fyrra og kjöt er 616 tonnum meira. Slátrun dilka er mun minni en gert var ráð fyrir í upphafi sláturtíðar, vanhöld hafa orðið mun meiri en áætlað var. Miðað við Verðlagsgrundvallarverð í haust nemur tap sauðfjárbænda um 2000 milljónum króna vegna mismunar á fallþunga dilka nú og í fyrra. Tap framleiðanda á þessu ári vegna vanhalda, aukins fóð- urkostnaðar og lækkaðs meðal- fallþunga er mjög tilfinnanlegt, segir í frétt frá Upplýsingaþjón- ustu landbúnaðarins. Mesti munur í einu sláturhúsi á fallþunga nú og í fyrra var hjá Kaupfélagi Lang- nesinga, Kópaskeri, þar var með- alfallþungi 2.59 kg. minni. Minnsti munur var í sláturhúsi hjá Afurðasölu Friðriks Friðriks- sonar, Miðkoti, Þykkvabæ, en þar var meðalfallþungi 0.22 kg. lægri en í fyrra. í öllum sláturhúsum Sláturfélags Suðurlands var mun- urinn tæpt 1.0 kg. I Árneshreppi á Ströndum var munurinn 2.52 kg., en þar hefur meðalfallþungi dilka undanfarin ár verið með því hæsta, sem gerist á landinu. Hæstur var meðalfallþungi dilka 15.80 kg., það var hjá Kf. Tálkna- fjarðar, Sveinseyri. í fyrra höfðu bændur í Árneshreppi á Ströndum vinninginn þá var meðalfallþungi í sláturhúsi Kf. Strandamanna á Norðurfirði 16.22 kg. Skylduaðild að lífeyrissjóðum Frumvarp flutt á næsta Alþingi RÍKISSTJÓRNIN heíur ákveðið að flytja á næsta Alþingi frumvarp til laga um skylduaðild að lífeyrissjóð- „Hraunkvika neðanjarðar til framleiðslu á háþrýstigufu“ ÞORBJÖRN Sigurgeirsson prófessor nefndi erindi það, sem hann flutti á ráðstefnu Jarðfræðaféiags íslands siðast- liðinn föstudag, „Hugleiðingar um notkun hraunkviku til framleiðslu háþrýstigufu". I er- indinu reyndi hann að meta, hvað gerast muni ef vatni er veitt á bráðna hraunkviku við þrýstingsástand það, sem ríkir á 3000 metra dýpi. I ágripi að erindinu segir hann: „Þar sem hraunkvika er djúpt í jörðu eins og t.d. á Kröflusvæðinu, eru aðstæður fyrir hendi til að framleiða þar gufu með hliðstæðum aðferðum og gert er í Vestmannaeyjum. Ein aðalforsendan fyrir þvi, að gufuframleiðslan gangi greið- lega er sú, að bergið springi við kólnunina, sem vatnið veidur, svo að opnar sprungur veiti vatninu stöðugt aðgang að nýju, heitu bergi eftir því sem kólnunin breiðist út. Vitað er að þetta gerist þegar vatni er veitt á bráðið hraun á yfirborði jarðar.“ Morgunblaðið spurði prófessor Þorbjörn að því hverjir væru möguleikar á því að þessi hug- mynd gæti orðið að veruleika á Kröflusvæðinu. —Um þetta veit ég í rauninni ósköp lítið, sagði Þorbjörn. —Ég býst við að hægt sé að bora niður á þetta dýpi, en veit hins vegar ekki um hversu auðvelt er að fá vatn og fleira slíkt. Mjög líklegt er, ef reynt yrði, að hægt væri að fá upp heita og háþrýsta gufu, ef á annað borð tekst að framleiða gufu á þennan hátt. Aðstæður eru þarna allt aðrar en í Vest- mannaeyjum, þar sem gufan tapast út í loftið ef einhver þrýstingur kemur á hana. Þarna væri hún lokuð inni og þyrfti að fara upp í gegnum borholur, sem sérstakiega væru boraðar fyrir þetta. Aðstæður eru þó þær sömu að því leyti, að vatni væri veitt á bráðið hraun í báðum tilvikum, en í Eyjum þurfum við Þorbjörn Sigurgeirsson próf- essor. ekki borholur til að veita vatni á hraunið. — Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort þrýstingurinn gæti varnað því, að sprungur mynduðust við kælinguna eins og myndast í hrauninu í Vest- mannaeyjum. Þær eru algjör nauðsyn til þess að hagkvæmt sé að ná varmanum úr hrauninu á þennan hátt og gera það að verkum, að vatnið berst stöðugt nálægt _ bráðnu hrauni þó að hraunið" kólni niður. Eg tel líklegt að ástandið sé þannig að sprungur mynduðust, þó svo að endanlega hafi ekki verið sýnt fram á það. Betri vitneskju vantar um eiginleika storku- bergsins til að geta verið viss. — Þessi hugmynd er komin í framhaldi af því, að við notum í Vestmannaeyjum bráðnað hraunið til að vinna úr því varma og þá kemur eðlilega upp hugmyndin hvort hægt sé að beita hliðstæðum aðferðum neð- anjarðar. Þetta hefur hvergi verið gert, en í Bandaríkjunum eru hópar, sem hafa áhuga á þessum málum, þ.e. orkuvinnslu úr bráðnu hrauni og ég hef verið í sambandi við þá aðila síðan í sumar, sagði Þorbjörn Sigur- geirsson að lokum. um, sem tryggja myndi, ef að lögum yrði, lifeyrissjóðsréttindi allra landsmanna á aldrinum 16— 74 ára, sem atvinnutekjur hafa hér á landi. í fréttatilkynningu frá heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytinu segir: „í athugasemdum við frum- varp það til laga um eftiriaun til aldraðra, sem ríkisstjórnin lagði fram á Alþingi vorið 1979, sagði, að stefna bæri að því, að þegar á árinu 1979 yrði komið á skylduaðild að lífeyrissjóði fyrir alla starfandi menn, sem þátttökuskylda nær enn ekki til samkvæmt lögum eða kjara- samningum.“ Óska- stjórn Fram- sóknar MARKÚS Á. Einarsson, frambjóðandi Framsóknar- flokksins í Reykjaneskjör- dæmi, sagði á fundi með menntaskólanemum í Kópa- vogi í fyrrakvöld að óska- stjórn Framsóknarflokksins eftir kosningar væri vinstri stjórn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.