Morgunblaðið - 22.11.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979
19
Formaður félagsins, Arnfriður Ísaksdóttir, með Rannveigu Gunn-
laugsdóttur, sem varð nr. 2 i Norðurlandakeppninni og Norðurlanda-
meistari i daggreiðslu i framúrstefnustil. Hún heldur á verðlaunaskál-
inni úr þykkum krystal.
voru búnir að æfa sig í mánuð á
hverju kvöldi. Og það er mikil
ábót, þegar fólk er með heimili og
börn og vinnur við hárgreiðslu,
eins og bæði Rannveig og Sólveig
gera. Og ekki hægt nema eiga góða
maka.
Þær voru báðar sammála um að
álagið væri mjög mikið í keppn-
inni, og einnig fyrir módelin. En
tími er skammtaður, allir byrja í
einu og hætta. Þegar Rannveig
hafði lokið sinni greiðslu, kom
danski formaðurinn og sagði við
hana: Þú ert búin að vinna þetta!
Rannveig hélt alveg eins að hann
væri að gera grín að sér og hljóp
niður. Þangað varð svo Arnfríður
að sækja hana, þegar úrslitin
komu.
Ahorfendur voru margir, yfir
2000 manns, of margir að dómi
þeirra. Vildu þrengja að köðlun-
um. En þar sem leyft er að hafa
eftirlitsmann, þótt allir notfæri
sér það ekki, höfðu íslenzku kepp-
endurnir Guðfinnu Jóhannsdóttur
á gólfinu sér til aðstoðar. Sögðu,
að hún hefði verið til mikillar
hjálpar. Varði þau t.d. ágætlega,
þegar að þrengdi.
Keppt var á einum degi í öllum
þremur greiðslunum, þ.e. gala-
greiðslu, framúrstefnu-dag-
greiðslu og klippingu og blæstri.
Klippinguna er að sjálfsögðu ekki
hægt að æfa nema takmarkað á
módelinu, heldur verður keppand-
inn að vera öruggur þar í fyrsta
skipti. Og var sigur Sólveigar þvi
mjög mikill.
Rannveig hafði skapað sína
framúrstefnudaggreiðslu með því
að snúa hárið upp, en ekki flétta í
smáfléttur eins og títt er. Og vakti
handbragð hennar mikla hrifn-
ingu. Rannveig tók fram að hún
ynni eingöngu með vörum frá
Wella, sem hún hefði góða reynslu
af. Telur að það hafi hjálpað sér.
En hárgreiðslumeistarinn velur
sjálfur það sem hann er vanur og
kemur með það.
Borgar það sig að leggja svo
mikið á sig? spurðum við — Já, en
ekki fjárhagslega, svaraði Sólveig.
En þegar starfið og áhugamálin
fara saman, þá borgar það sig.
— Já, það borgar sig ánægjunn-
ar vegna, tók Rannveig undir.
Að lokum bað Arnfríður okkur
fyrir þakklæti til allra þeirra, sem
aðstoðuðu við að gera þátttöku í
keppninni mögulega. En slík
þátttaka er mjög dýr. Milli 20 og
30 hárgreiðslustofur hafa aðstoð-
að við sýningar hér heima og 14
hárgreiðslustofur lögðu einnig
beinlínis fram fé. Það gerðu 4
heildsalar líka, en þeir gáfu flug-
far.
- E.Pá.
Vantar þig
eldhúsinnréttingu ?
Hefur þú athugað að nú er hagkvæmasti tíminn
til að panta eldhúsinnréttingu. Verðið lægst og
kjörinn best. Komið, sjáið sýnishorn á staðnum.
Látið teikna og gera föst verðtilboð ykkur að
kostnaðarlausu.
Athugið — Þegar pöntun er staðfest, stendur verðið.
Raunhæf verðtrygging í verðbólgunni.
FIPA
Smiðjuvegi 44 Kópavogi
Símar 27511 og 71100.
UtankjarstaðakiMiing
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins er í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, símar 39790, 39788,
39789.
Sjálfstæöisfólk, vinsamlegast látiö skrif-
stofuna vita um alla kjósendur, sem ekki eru
heima á kjördegi.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá.
Utankjörstaöakosning fer fram í Miðbæjar-
skólanum alla daga 10—12, 14—18 og
20—22 nema sunnudaga 14—18.
ÞAÐ ER SAMA HVERT
UTIÐ ER HURÐIRNAR
ERUALLARFRA
SIGURÐI ELlASSYNI
Sdkoinnihurðir HKwl k
-gœöi ifyrirrúmi
SIGURÐUR
ELÍASSON HF.
AUÐBREKKU 52. KÓPAVOGI, SiMI 41380
Tónlistar-
unnendur
ALTEC hátalarar
—clraiiiniir um fullkoinleika
Um langt árabil hefur ALTEC LANSING verið eitt
skærasta Ijós í framleiðslu úrvals hátalara.
Langflest leikhús, stór fjöldi studioa og
ótölulegur fjöldi hljómsveita nota ein-
göngu ALTEC hátalara. Nú getum við
boðið yður beint frá ALTEC U.S.A. þessa
úrvals hátalara í mörgum gerðum.
tvlSU'J*3.
Verið velkomin að kynnast ALTEC LANSING
hátölurunum, sem þér hafið alltaf leitað að.
EINAR FARESTVEIT& CO.HF.
BERGSTAOASTRÆTI 10A-SÍMI 16995