Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979
---------------------------?--------------------------------------r
Per Oscarsson (Apollinaire), Gösta Ekman (Picasso) og Lennart
Nyman (Rousseau).
Laugarásbíó:
Ævintýraf erill Picasso
LAUGARÁSBÍÓ frumsýnir i dag sænsku gamanmyndina „Ævintýrafer-
ill Picassosu. Leikstjóri er Tage Danielsson sem einnig samdi handritið
ásamt Hans Alfredson og Gösta Ekman. Tónlistin er eftir Gunnar
Svensson, Puccini, Erik Sarie og fleiri. Myndatökumenn voru Tony
Forsberg og Roland Sterner. Málverkin i myndinni eru öll eftir Per
Ahlin.
Oliver Twist (Mark Lester) ásamt Fagin og nokkrum drengjanna
þjófaflokk hans.
Með aðalhlutverkin fara Gösta
Ekman, sem leikur Picasso, Hans
Alfredson (Don José), Margaretha
Krook (móðir listamannsins), Bir-
gitte Andersson (Guggenheim) og
Lena Nyman (Sirkka).
Myndin er skopmynd um einn
frægasta listmálara aldarinnar,
Pablo Picasso. Hún hefst á því er
rannsóknir hafa leitt í ljós að
Picasso hét alls ekki því nafni,
hann hét Gösta Ekman og var
lygilega líkur sænskum leikara
RIKISSTJÓRNIN hefur að undan-
förnu fjallað um frumvarp til
fjárlaga fyrir árið 1980. Á ríkis-
stjórnarfundi i gær, 20. nóvember
1979, voru teknar ákvarðanir um
mikilvægar breytingar á fjármála-
stefnunni fyrir næsta ár, og verða
tillögur þar að lútandi lagðar.fyrir
Alþingi, þegar það kemur saman
eftir kosningar.
Veigamesta breytingin frá frum-
varpi því til fjárlaga, sem fyrrver-
andi fjármálaráðhefra lagði fram i
október, er sú, að lagt verður til, að
tekjuskattur einstaklinga lækki um
7.2 milljarða króna og gjöld rikis-
sjóðs lækkuð á móti. Áætlað er að
tekjur rikissjóðs verði samkvæmt
þessum tillögum innan við 28,5% af
þjóðarframleiðslu 1980 og jafn-
framt er tryggður öruggur rekstr-
arafgangur.
Lækkun tekjuskattsins hefur það í
för með sér, að álagðir beinir skattar
á einstaklinga verða lægri á árinu
1980 en þeir voru á árinu 1979 í
hlutfalli við tekjur manna, og jafn-
framt er tryggt, að heildartekjur
ríkissjóðs i hlutfalli við þjóðartekjur
verði lægri 1980 en 1979. Komi þessi
lækkun tekjuskatts jafnt á alla
skattþegna, svarar hún til hækkunar
skattvísitölu um 8%. Ríkisstjórnin
áformar hins vegar að beita þessari
lækkun fyrst og fremst til að lækka
skatta þeirra, sem lægstar tekjur
hafa.
Á móti Iækkun tekjuskattsins
verða gerðar ýmsar breytingar á
áætlunum um útgjöld ríkissjóðs á
árinu 1980 frá því, sem ráðgert var í
Ný ljóðabók eftir
Bjarna Bernharð
ÚT ER komin ný ljóðabók eftir
Bjarna Bernharð. Er þetta fjórða
Ijóðabók höfundar og heitir hún
Ljóðför á hendur Grásteini.
Bókin er pappírskilja, fjölrituð í
Letri en höfundur sér sjálfur um
útgáfuna. 21 ljóð er í bókinni og
teikningar eftir höfundinn. Bókin er
30 blaðsiður.
Fyrsta ljóðabók Bjarna Bernharðs
kom út 1975 og hét Upp og ofan, en
eins og áður sagði hefir hann gefið
út 4 ljóðabækur.
með því nafni. Segir síðan frá
þessum mikla manni en frjálslega
er þó farið með efnið og ýmislegt
ekki sannleikanum samkvæmt.
Myndinni lýkur er Picasso flyst
til Rivierunnar þar sem hann hittir
æskuunnustu sína frá Spáni. Eftir
mikla yfirvegun ákveður hann að
hverfa og um leið hurfu allar
áritanir af myndum hans.
„Ævintýraferill Picassos" var kos
in besta kvikmyndin í Svíþjóð árið
1978.
frumvarpi því til fjárlaga, sem fram
var lagt í október siðastliðnum. í
meginatriðum eru breytingarnar
þessar:
1) Lagt verður til, að útgjöld til
vegagerðar lækki um 2.500 m.kr.
Þrátt fyrir þessa lækkun munu
vegaframkvæmdir verða nær fjórð-
ungi meiri 1980 en 1979.
2) Lagt verður til, að framlög til
niðurgreiðslna lækki um 2.020 m.kr.,
eða til samræmis við niðurgreiðslu-
stig og verðlagsforsendur fjárlaga-
frumvarpsins; en tillaga um framlög
til niðurgreiðslna var hækkuð um
þessa fjárhæð skömmu áður en
októberfrumvarpið fór í prentun, án
samkomulags eða skýringa.
3) í októberfrumvarpinu var gert
ráð fyrir, að lögbundin framlög
ríkisins til fjárfestingarlánasjóða
yrðu lækkuð um 15% frá því, sem
gilt hefði að óbreyttu. Lagt verður til
að þessari stefnu verði framhaldið
og að auki verði lögbundið hámark
útflutningsbóta á landbúnaðaraf-
urðir einnig lækkað um 15%. í
þessari tillögu felst 1.100 m.kr.
viðbótarlækkun útgjalda. Hér verð-
ur stigið skref í þá átt að draga úr
sjálfvirkum útgjöldum ríkissjóðs á
næstu árum.
4) Gerðar verða tillögur um hag-
ræðingu og sparnað í rekstri land-
helgisgæslunnar sem nemur um 580
m.kr. Lagt verður til að önnur
Fokker-vél landhelgisgæslunnar
verði seld, og rekstri varðskipsins
Árvakurs verði hætt. Talið er, að
önnur Fokkervél landhelgisgæslunn-
ar nægi til þess að anna þörfum
fyrir eftirlit úr lofti, enda er eldri
Fokkervélin lítið sem ekkert notuð.
Þeirri þjónustu, sem Árvakur hefur
innt af hendi, má sinna með öðrum
hætti.
5) Lagt verður til, að dregið verði úr
kostnaði við rekstur hafrannsókna-
skipa, með því að fella niður fjár-
veitingu til reksturs rannsókna-
skipsins Hafþórs á næsta ári, en
hluta þess sparnaðar, sem þannig
næst, verði varið til þess að efla
starfsemi Hafrannsóknastofnunar á
öðrum sviðum. Sparnaður af þessum
sökum er áætlaður a.m.k. 280 m.kr. a
árinu 1980.
6) Þá verður lagt til, að dregið verði
nokkuð úr ýmsum einstökum fram-
Erfiðleikar
hjá Hitaveitu
Siglufjarðar
ERFIÐLEIKAR hafa að undan-
förnu verið hjá Hitaveitu Sigluf jarð-
ar og hefur ekki fengist nægilega
mikið vatn úr borholunum frammi i
Skútudal. Hefur þvi verið gripið til
þess ráðs að hita upp vatn til að
setja inn á dreifikerfi Hitaveitunn-
ar, en ekki má mikið út af bregða til
að slæmt ástand geti skapast.
Hreinn Júlíusson í orkunefnd
kaupstaðarins sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær-
kvöldi, að einhvern veginn þyrfti að
bjarga málinu, bæði til langframa og
eins yrði að gera bráðabirgðaráðstaf-
anir. Sagði hann búið að tengja fleiri
hús Hitaveitunni en borholurnar
önnuðu. Því þyrfti að bora fleiri
holur, koma upp fjarvarmaveitu eða
gera aðrar ráðstafanir. Nú hefðu
dælur ekki undan ef einhver truflun
yrði, ekki mætti fara nema niður í
120 metra dýpi í holunum, en nú væri
komið niður á 118 metra dýpi með
dælun. Málið kom til umræðu á fundi
bæjarstjórnar nú f vikunni, og var
þar varað við litlu vatnsmagni og
hvatt til þess að ráðstafanir yrðu
gerðar til úrbóta. í bókun þessari,
sem Hreinn gerði, kom meðal annars
fram, að þegar rafmagnið fór af
bænum í eina klukkustund fyrir
skömmu, tæmdist miðlunartankur og
hefur tekið fjóra sólarhringa að fá
vatn í hann aftur.
„Það, sem við þurfum að gera
núna, er að sjá um að allir fái orku til
að hita upp hús sín, enda gengur það
ekki að fólk byggi hús sín án
reykháfa og kyndiaðstöðu, en fái
sfðan ekki orku,“ sagði Hreinn.
lögum öðrum frá tillögum frum-
varps frá í október, svo sem framlög-
um til tilraunabúa með hugsanlega
fækkun búanna fyrir augum, flýti-
greiðslum vegna framræslu og
litilsháttar úr framkvæmdum vegna
ríkisspftaia o.fl. Samtals er hér um
sparnað að ræða sem nemur um 250
m.kr. á árinu 1980.
Auk ofangreindra breytinga á
fyrra fjárlagafrumvarpi, munu
verða gerðar ýmsar aðrar tillögur
um breytingar á fjármálum rfkisins
1980 án þess að fjáröflun verði
aukin. Dregið verður úr lántökum
Lánasjóðs ísl. námsmanna á næsta
ári, en beint framlag ríkissjóðs til
lánasjóðsins verði aukið að sama
skapi. Ennfremur verði komið til
móts við óskir iðnaðarins um ráð-
stöfun tímabundins aðlögunargjalds
til iðnaðarþarfa.
Ríkisstjórnin mun einnig f þing-
byrjun gera tillögur um jöfnun
kyndikostnaðar og tryggja aukið fé
til olíustyrks til heimila, þannig að
það nægi til þess að greiða fullan
olíustyrk samkvæmt gildandi regl-
um að teknu tilliti til breytinga á
olíuverði, en í tillögum októberfrum-
varps til fjárlaga skorti þar á um
a.m.k. 1.300 m.kr.
Lántökuáformum ríkisins á næsta
ári verður breytt, fyrst og fremst
með því að draga úr erlendum
lántökum um að minnsta kosti 4.400
m.kr. frá tillögum októberfrum-
varpsins.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Eining
á Akureyri hefur ákveðið að
segja upp samningum fyrir 1.
desember i því augnamiði að þeir
verði lausir um áramót. Þessi
ákvörðun var tekin og einróma
samþykkt á almennum fundi i
félaginu, laugardaginn 17. nóv-
ember.
Á fundinum var jafnframt sam-
þykkt ályktun um kröfugerð fé-
lagsins. Taldi fundurinn allt of
Stjörnubíó:
Oliver
STJÖRNUBÍÓ hefur á morgun
endursýningar á bandarisk-
ensku kvikmyndinni Oliver.
Handritið samdi Lionel Bart eftir
sögu Charles Dickens, „Oliver
Twist“. Bart samdi einnig söng-
texta og tónlistina við myndina.
Kvikmyndin Oliver var gerð árið
1969 og fékk þá 6 óskarsverð-
laun sem besta myndin, fyrir
bestu leikstjórnina, bestu dans-
listina, bestu sviðssetninguna,
Tillögur þær, sem hér hefur verið
lýst í meginatriðum eru miðaðar við
sömu verðlags- og kaupgjaldsfor-
sendur og fjárlagafrumvarp J)að,
sem lagt var fram í október s.l. Áður
en fjárlög verða afgreidd þarf að
endurskoða þessar forsendur. Tillög-
ur þær, sem hér hafa verið ráktar,
gefa í sjálfu sér ekki tilefni til
breytinga á verðlagsforsendum.
Reyndar má ætla, að breytingar
þessar á skattheimtu og útgjöld
ríkisins, stuðli fremur en fjárlaga-
frumvarpið frá í október að því, að
verðlags- og kaupgjaldsforsendur fái
staðist. Fyrst og fremst vegna þess
að breytingarnar fela í sér nokkurn
samdrátt í ríkisútgjöldum í heild, og
þar með viðnám gegn verðbólgunni,
sem októberfrumvarpið gerði ekki.
Sú lækkun tekjuskatts einstaklinga,
sem er meginatriði þessara tillagna
ætti að auðvelda gerð kjarasamn-
inga, og gæti þannig orðið liður í
raunhæfum aðgerðum til hjöðnunar
verðbólgu. Samkvæmt þessum til-
lögum lækka niðurstöðutölur fjár-
lagafrumvarps um 7 milljarða króna
en greiðslujöfnuður og endurgreiðsl-
ur skulda verða með líkum hætti og í
októberfrumvarpinu. Ennfremur
verður lagt til, að dregið verði úr
erlendum lántökum.
Mikilvægast er þó, að tillögur
þessar munu stuðla að traustum
ríkisfjárhag á næsta ári, sem er
veigamikið framlag ríkisins í barátt-
unni við verðbólguna.
mikið launabil vera milli hæstu og
lægstu launa í þjóðfélaginu og
einnig í lífeyrisgreiðslum fólks.
Því þurfi lægstu launin að hafa
algjöran forgang í næstu kjara-
samningum og fái meiri hækkun
en hin hærri. Jafnframt því sem
verðbótavísitala verði notuð til
launajöfnunar. Fundurinn ítrek-
aði þá skoðun sína að krónutölu-
hækkun væri ekki markmið í
sjálfu sér, heldur kaupmátturinn.
Því sé það brýnasta hagsmunamál
Twist
bestu leiksviðsuppsetninguna,
bestu útsetningu tónlistar og
bestu hljóðupptökuna. Leikdans-
listinni stjórnaði Onna White,
framleiðandi var John Woolf en
Carol Reed sá um leikstjórnina.
Með aðalhlutverkin fara Ron
Moody (Fagin), Oliver Reed (Bill
Sikes) Harry Secombe (Hr.
Bumble, Shani Wallis (Nancy) og
Mark Lester (Oliver).
Myndin greinir frá litlum dreng
sem fæddist á fátækrahæli í
Lundúnum. Móðir hans var ógift
og enginn þekkti hafn hennar.
Litli drengurinn er skírður Oliver
Twist og elst hann upp á fátækra-
heimilinu við ill kjör. Síðan strýk-
ur snáði til Lundúna þar sem hann
lendir í klóm Fagins, foringja
þjófaflokks. Oliver eru kenndar
ýmsar „þjófalistir". Eitt sinn er
hann tekinn og sakaður um að
hafa stolið veski eldri manns, hr
Barlow. Hann er sýknaður en
gamli maðurinn tekur drenginn til
sín og fer að gruna að Oliver sé
sonur frænku sinnar.
En Fagin er hræddur um að
Oliver ljóstri upp um þjófaflokk
hans og rænir drengnum frá
Barlow sem hefur nú fengið vitn-
eskju um að Oliver er í raun sonur
frænku hans. Barlow hefur til-
raunir til að ná Oliver úr klóm
Fagins.
Markaða leit-
að fyrir isl.
hrossakjöt
GERT er ráð fyrir því, að í haust
verði fellt allmiklu meira af hross-
um en undanfarin ár til þess að létta
á fóðrum. Af þeim sökum hefur verið
leitað markaða erlendis fyrir
hrossakjöt, og er þegar búið að senda
sýnishorn til Noregs, þaðan sem
beðið er eftir mati og verðlagningu.
Norðmenn kaupa hrossakjöt sem
vinnslukjöt í ákveðnar pylsutegund-
ir og hafa þeir þurft að flytja inn
2—300 lestir í þessu skyni árlega.
Einnig hefur verið leitað markaða
víðar, m.a. í Svíþjóð, en án árangurs
til þessa, segir í Sambands-fréttum.
lægst launaða fólksins að úr
verðbólgunni dragi.
Fundurinn ályktaði einnig um
atvinnuskort, sem skapazt hefði á
einstökum stöðum vegna siglinga
togara með afla sinn til sölu á
erlendum mörkuðum. Mótmælti
fundurinn slíku harðlega, sem
stofnaði til atvinnuleysis eða
minnkandi atvinnu á félagssvæð-
inu. Því aðeins taldi fundurinn
siglingar með afla réttlætanlegar,
að innlendar fiskvinnslustöðvar
væru að fullu mettaðar og kæmust
ekki yfir að nýta aflann. Krafðist
fundurinn þess, að hagsmunir
fólksins í byggðarlaginu yrðu
látnir sitja í fyrirrúmi í þessu
efni.
Fréttatilkynning fjármálaráðuneytisins:
Tekjur ríkissjóðs verði inn-
an 28,5% af þjóðarframleiðslu
Eining á Akureyri ákveð-
ur að segja upp samningum
i H ttl ui i rn if f ti« f n t
rcfiit»<<
1.1 1 ÁVI
7DOOI