Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 22.11.1979, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1979 37 sérstaka stund á hana. En hann safnaði leikritum og átti, áður en lauk, allmikið safn af því tagi. Ég vil svo ljúka þessum fáu og fátæklegu orðum með þökk fyrir löng og góð kynni. Mér brá við skyndilegt fráfall Boga Sigurðs- sonar. Allra síðast votta ég nán- ustu ástvinum hans, ekki sízt börnunum, innilega samúð mína, um leið og ég lýsi yfir söknuði okkar hjóna eftir horfinn vin. Þóroddur Guðmundsson. Enda þótt, Bogi Sigurðsson hafi átt við vanheilsu að stríða um nokkurra ára skeið kom dánar- fregnin á óvart, það er svo stutt síðan ég hitti hann kátan og hressan á gangi í Hlíðunum ná- lægt heimili sínu og mínum vinnu- stað. Leiðir okkar sköruðust á vett- vangi barnaheimilamála í Reykjavík um langt árabil hjá Sumargjöf og í nefnd á vegum Reykjavíkurborgar. Náin kynni hófust fyrst síðla sumars 1962 er ég tók við for- mennsku í stjórn Barnavinafé- lagsins Sumargjafar og áttum við náið samstarf á þeim starfsvett- vangi í 12 ár en eins og kunnugt er var Bogi framkvæmdastjóri fé- lagsins um langt árabil, frá 1946 - 1973, eða í 27 ár. Leiðir af líkum að á starfstíma Boga hjá Sumargjöf urðu stór- vægilegar breytingar á umfangi starfs félagsins og átti hann sem framkvæmdastjóri drjúgan þátt í öllum framkvæmdum og frum- kvæði að ýmsum þáttum sem til hagsbóta mátti telja í starfsem- inni. Með þakklátum huga minnist ég þessa tímabils í ævi minni sem gaf mér tækifæri til að kynnast náið áhugaverðum verkefnum en þó sérstaklega fyrir að eiga þess kost að kynnast því fólki sem starfaði hjá Sumargjöf á þessum árum. Bogi var ötull í starfi og taldi ekki vinnustundirnar þótt fleiri væru en til var ætlast. A stundum var starfið ærið erilsamt enda í mörg horn að líta t.d. þegar hátíðahöld sumardagsins fyrsta voru í undirbúningi, en hann var ekki sú manngerð sem kvartaði undan vinnuálagi. Það er margs að minnast frá mörgum samverustundum, á fundum, í heimsóknum á barna- heimilin, á námskeiðum og á gleðistundum m.a. á heimili þeirra hjóna. Þafkom oft í ljós hvern hug starfsfólk og þá sérstaklega for- stöðukonur báru til hafs en á milli þeirra og hans voru skemmtileg tengsl alvöru og vináttu. Með Boga er fallinn einn þeirra sem mest og lengst hafa unnið að málefnum yngstu barnanna í Reykjavík og verður starf hans á þeim vettvangi seint metið til fulls. Blessuð sé minning hans. Ingibjörgu og öðrum ástvinum bið ég blessunar. Ásgeir Guðmundsson í dag er til moldar borinn Bogi Sigurðsson, en hann varð bráð- kvaddur að heimili sínu 14. þ.m. Með örfáum orðum langar okkur að minnast þessa hógværa en staðfasta manns, sem með ljúf- mannlegri framkomu sinni skap- aði sér veglegan sess, bæði í störfum sínum og innan fjöl- skyldubanda. Eftir um það bil 30 ára kynni reikar hugurinn aftur til margra samverustunda, en að leiðarlokum munum við staldra við og hugleiða hversu einstaklega vel hann reyndist stjúpbörnum og konu sinni, og þá ekki síst nú undanfarna mánuði er hún þurfti hans svo mjög við í sínum miklu veikindum. Innan fjölskyldunnar allrar hefur Ingibjörg systir okkar verið hin styrka stoð, bæði í gleði og sorg. öll hefðum við vonað að þau hjónin hefðu lengur getað notið samveru á sínu fallega heimili að Hamrahlíð 7, en enginn má sköpum renna. Við biðjum Guð að styrkja systur okkar og fjölskylduna alla. Blessuð sé minning Boga Sig- urðssonar. Mágkonur. STILL-LONGS ULLARNÆRFÖT Nælonstyrkt dökkblá fyrir börn og fulloröna ULLARSOKKAR SOKKAHLÍFAR REGNFATNAÐUR KULDAFATNAÐUR GÚMMÍSTÍGVÉL GÚMMÍSKÓR, REIMAÐIR • Ginge slökkvitæki Þurrdufts Froöu- Vatns- Kolsýru- og Halon- tæki REYKKÖFUNARLÍNUR HVERFISSTEINAR BRUNATEPPI REYKSKYNJARAR BRUNABOÐAR BRUNAAXIR BRUNASLÖNGUR BRUNASLÖNGUTENGI SLÖNGUSTÚT AR SLÖNGUKLEMMUR HLÍFÐAR HJÁLMAR margir litir EYRNAHLÍFAR EYRNATAPPAR ANDLITSHLÍFAR HLÍFÐARGLERAUGU RYKGRÍMUR SNJÓSKÓFLUR KLAKASKÖFUR BÍLSKÓFLUR BÍLDRÁTT ARTÓG VÉLATVISTUR í 25 KG BÖLLUM GRISJUR í RÚLLUM TJÖRUHAMPUR SKÓLPRÖRAHAMPUR PLASTKÖRFUR VÍRKÖRFUR SLEGGJUSKÖFT HAKASKÖFT HAMARSKÖFT ARINSETT KOPARPOTTAR undir arinviö Ananausturri Sími 28855 BIFREIÐAR A KJÖRDAG Sjálfstæöisflokkinn vantar fjölda bifreiöa til aksturs frá hinum ýmsu bifreiöastöövum D-listans á kjördag. Stuöningsmenn sjálfstæöisflokksins eru hvattir til aö bregöast vel viö, þar sem akstur og umferö er erfiö á þessum árstíma og leggja listanum lið m.a. meö því aö skrá sig til aksturs kjördagana 2. ög 3. desember næstkomandi. Þörf er á jeppum og öörum vel búnum ökutækjum. Vinsamlegast hringiö í síma 82927. Skráning bifreiöa og sjálfboöaliöa fer einnig fram á skrifstofum hverfafélaganna. -UsClnn STEREO- unnendur Viö höfum nú flutt verkstæöi okkar í vistleg húsakynni aö Höföatúni 2 (Sögin h.f.). í tilefni þess bjóöum viö upp á á nokkrum Radionette og Toshiba hljómtækjum, útvarpstækjum, mögnurum, cassettutækjum og plötuspilurum. SA 300 langb., miöb., og FM bylgja 2X14 wött. RMS. Kr. 198.000- 8 < *s iJ * * * * > i * »i mn * a i» ‘ 'wr ~ * iMHf ' ’w111"1" SB 220 2X25 wött Kr. 219.000.- Látiö ekki happ úr hendi sleppa. SA 500 miðb., og FM bylgja 2X35 wött RMS. Kr. 256.000- SB 514 4ra rása meö CD 4 Kr 396.000.- Tilboðiö stendur í vikutíma. Komiö og spjalliö um kjörin okkar. Hljóðvirkinn Höfðatúni 2. Sími 13003.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.