Morgunblaðið - 11.12.1979, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
Gígjan hefur lít-
ið fundið af loðnu
GÍGJA RE 340 hélt úr hófn í
Reykjavík á föstudaginn og var
ferðinni heitið norður fyrir land
til tilraunaveiða á loðnu. Eyjólf-
ur Friðgerisson fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknarstofnun er um
borð í Gígju og verður leiðang-
ursstjóri, en Gígja verður vænt-
anlega við loðnuveiðar og kann-
anir fram að jólum.
Á sunnudagskvöld var Gígja um
120 mílur norðaustur af Siglufirði
Bill Holm á
Kjarvalsstöðum
BILL Holm verður á Kjarvals-
stöðum i kvöld og mun fremja
þar ljóðalestur ásamt tilheyrandi
píanóleik og öðru þvi er hann
kann að finna upp á.
Samkoman hefst klukkan 20.30
og er öllum þeim er hafa áhuga á
ljóðalestri hæfilega blönduðum
gamni bent á að þetta er síðasta
tækifærið til að hlýða á Bill
hérlendis, en hann er á förum. Bill
hefur verið prófessor í ensku við
Háskóla íslands undanfarin miss-
eri.
og hafði þá lítið fundizt af loðnu
og ekkert verið reynt að veiða.
Eitt af markmiðunum með þessari
ferð Gígjunnar er að finna hve
langt austur loðnugöngurnar eru
komnar. Sjómenn hafa mikinn
áhuga á að fá að byrja loðnuveiðar
strax eftir áramót og fá þá að
veiða það magn, sem leyft verður
að veiða utan hrognatímans, með-
an loðnan er enn sæmilega feit. í
þessum leiðangri Gígju verður
kannað hvernig göngurnar haga
sér á leiðinni austur, en undanfar-
in ár hefur það verið mjög breyti-
legt frá ári til árs hve langt austur
og jafnvel suður loðnan hefur
verið komin í janúarbyrjun.
I haust voru gerðar verulegar
breytingar á Gígjunni í Dan-
mörku, m.a. sett ný aðalvél í
skipið og nýjar ljósavélar, allt
spilkerfi skipsins var endurnýjað
o.fl. Eftir breytingarnar er reikn-
að með að Gígjan beri tæp 800
tonn. Breytingunum í haust átti
að ljúka mun fyrr en varð og kom
skipið ekki til landsins fyrr en
daginn áður en vertíðinni lauk 10.
nóvember. Breytingarnar kostuðu
um 500 milljónir króna.
Knut Frydenlund:
Viðræður við Islend-
inga á næsta leiti
KNUT Frydenlund, utanríkisráð-
herra Noregs, sagði nýlega á
fiskiþingi i Álasundi, að ríkis-
stjórnin vonaðist til að ná sam-
komulagi við íslendinga i Jan
Mayen-málinu sem fyrst og að
viðræður við íslendinga gætu
hafist fljótlega eftir Alþingis-
kosningarnar á fslandi 2. og 3.
desember.
Hveragerði:
Bókamarkaður
opnar í Eden
Hveragerði, 10. desember.
ÞORSTEINN Matthíasson rit-
höfundur og fyrrverandi
skólastjóri hefur opnað bóka-
markað i Eden í Hveragerði
og verður hann opinn daglega
til jóla.
Þar verða á boðstólum bæði
nýútkomnar bækur og eldri
bókmenntir. Þorsteinn hefur
síðast liðið ár rekið bóka- og
ritfangaverzlun í Hveragerði
sem er til húsa á Bóli.
Kaupfélag Árnesinga hefur
undanfarin ár selt bækur
síðustu dagana fyrir jól en
hefur nú lagt niður þá þjón-
ustu. Bókamarkaður Þorsteins
kemur því í góðar þarfir.
—Sigrún
— Við munum stefna að því að
fá íslendinga til að samþykkja
norskt svæði við Jan Mayen, sagði
Frydenlund. — Á móti erum við
tilbúnir að gefa íslendingum veru-
lega hlutdeild í fiskveiðum á Jan
Mayen-svæðinu, sagði ráðherrann.
Hann bætti því við, að samningar
yrðu erfiðir og það hefði gert
málin flóknari er Danir gerðu
kröfu vegna hagsmuna Grænlands
á þessu svæði.
Á þessu fiskiþingi, sem haldið
var í Sunmöre-fiskelag, var mikið
rætt um íslenzka loðnustofninn og
norsk-íslenzku síldina. Norskir
fiskifræðingar voru gagnrýndir
fyrir að viðurkenna að loðnan á
Island — Jan Mayen-svæðinu væri
af íslenzkum stofni án þess að
hafa rannsakað það að nokkru
marki sjálfir. Því var haldið fram
á fundinum að þessi loðna gæti
alveg eins verið komin frá Bjarn-
areyju, Svalbarði eða úr Barents-
hafi. Þá var friðun síldar vð Noreg
gagnrýnd, fundarmenn sögðu að
meiri síld væri í sjónum en
fiskifræðingar héldu fram og með-
an Norðmenn héldu að sér hönd-
um veiddu aðrar þjóðir, þ.á m.
íslendingar, þessa síld. Þá var
bent á að tiltölulega lítið hefði
verið veitt af síld við Noreg
síðustu ár, en stofninn hefði lítið
stækkað að mati fiskifræðinga, ,en
selir og hvalategundir hins vegar
lifað góðu lífi á síldinni, eins og
segir í norska blaðinu Fiskaren.
Jólasöfnun Mæðrastyrks-
nefndar farin af stað
HIN ÁRLEGA jólasöfnun Mæðra-
styrksnefndarinnar í Reykjavík er
nú hafin og hafa söfnunarlistar
verið sendir í fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir í borginni segir í frétt frá
nefndinni.
Þar segir ennfremur að það sé
eindregin von nefndarinnar, að
Reykvíkingar bregðist enn einu sinni
vel við og láti nokkuð af hendi rakna
til þess að nefndin geti létt hag og
stutt við bakið á fjölmörgum efnalit-
um heimilum hér í borg, sem eiga við
margs konar erfiðleika að etja. Munu
bæði einstæðar konur og efnalítil
heimili njóta þeirrar aðstoðar, sem
veitt verður á komandi jólum af fé
því, sem vonast er til að safnist í
desember.
Ennfremur segir að mikla og
brýna nauðsyn beri til, að nefndinni
berist söfnunarféð sem fyrst svo að
tryggt sé að það komi að notum nú
fyrir jólin. Til að auðvelda einstakl-
ingum og fyrirtækjum að koma fénu
áleiðis hefur nefndin komið sér upp
póstgírónúmeri sem er 36600-5.
Á síðastaári tókst Mæðrastyrks-
nefndinni að styðja við bakið á 265
efnalitlum aðilum í Reykjavík með
fjárstyrkjum. Nefndin mun nú sem
fyrr úthluta öllum góðum og hrein-
um fatnaði til þeirra, sem á þurfa að
halda. í því skyni veitir hún slíkum
fatnaði móttöku, einkanlega er
barnafatnaður vel þeginn.
Skrifstofa nefndarinnar er að
Njálsgötu 3 í Reykjavík og er síma-
númer þar 14349. Skrifstofan verður
opin fram til jóla virka daga milli
13-18.
Þar sem bíllinn fór út af er kanturinn um 20 cm hár. h)08"1 K**
Komst af eigin ramm-
leik upp á bryggjuna
Norðurvararbryggja er í miðri höfninni og fór billinn út af þar
sem merkt er með hring og er dýpi þar 7,5 m.
Sótti hjálp með-
an hin héngu
á bryggjunni
TVÖ ungmenni frá Þorlákshöfn
fórust si. laugardag er bíll, sem
þau voru farþegar í fór fram af
svonefndri Norðurvarar-
bryggju í Þorlákshöfn um kl.
15 á laugardag. Fjórir aðrir
voru i bílnum, ökumaðurinn 17
ára piltur og þrjár stúlkur
15—16 ára. Tókst einni þeirra
að komast af eigin rammleik
upp á bryggjuna, eftir dekkjum
sem hanga á henni, til að sækja
hjálp og var hinum þremur
bjargað upp skömmu siðar.
Þau sem fórust voru: Auður
Jónsdóttur, 15 ára, Selvogsbraut
27, Þorlákshöfn og Guðni Gestur
Ingimarsson, 17 ára, Oddabraut
15, Þorlákshöfn.
Þau er komust út úr bílnum
gátu haldið sér uppi er þau náðu
taki á dekkjum á bryggjunni og
hafði þá ökumaður bílsins dregið
eina stúlkuna þangað eftir að
henni hafði þá skotið upp
skammt þar frá. Utgerðarmaður
er var við vinnu í bát sínum við
bryggjuna kom fyrstur á staðinn,
sótti hjálp og kallaði út björgun-
arsveit auk þess sem hringt var
til lögreglunnar. Komu menn á
vettvang eftir fáar mínútur og
tókst að bjarga þeim þremur upp
og koma þeim í hús og undir
læknishendur, en ekki var talin
ástæða til að flytja þau á sjúkra-
hús þar sem meiðsli þeirra voru
ekki teljandi. Guðni Sturlaugs-
son, sá er kom fyrstur á staðinn,
sagði að fjara hefði verið á er
slysið varð og ljóst er að stúlkan
sem komst upp á bryggjuna af
eigin rammleik hefur sýnt mikið
þrek þar sem hátt var upp. Sagði
Guðni að fljótt hefði drifið að
menn og því gengið fljótt og vel
að bjarga fólkinu upp á bryggju
og hlú að þeim. Kafari var og
fenginn strax og fann hann bílinn
þar sem hann var á botni hafnar-
innar og lík þeirra er fórust.
Norðurvararbryggja er L-laga
og var mikil hálka er slysið varð.
Bílnum var ekið fram bryggjuna
og tókst ökumanni ekki að ná
beygjunni er hann hugðist aka
fram á bryggjuendann og skipti
engum togum að bíllinn rann
útaf.
Aðeins eru um 6 vikur liðnar
síðan piltur og stúlka frá Þor-
lákshöfn létust er bíll þeirra fór
fram af Suðurvararbryggju í Þor-
lákshöfn. Sagði Ragnheiður Ól-
afsdóttir fréttaritari Mbl. þar að
allir íbúar Þorlákshafnar væru í
sárum, það væri jafnan svo að
þegar einn væri særður að þá
væru allir íbúar í sárum, enda
væri missir þessa unga fólks
mikið áfall fyrir alla.
Viðvörunar- og bannskilti
verða sett upp í vikunni
— til að sporna
við umferð um
hafnarsvæðið
HAFN ARSTJÓRNIN í Þorláks-
höfn kom saman til auka fundar i
gær þar sem rætt var almennt um
hvað skyldi gera í framhaldi af
þeim slysum er orðið hafa í
höfninni nú i haust. Benedikt
Thorarensen formaður hafnar-
stjórnarinnar sagði í samtali við
Mbl. að eftir fyrra slysið hefði
verið ákveðið að setja upp skilti
við bryggurnar er bannaði alla
óþarfa umferð við höfnina.
Skiltin hafa verið í pöntun og
geri ég ráð fyrir að þau verði
tilbúin í vikunni og þá sett strax
upp og er það í samvinnu við
lögregluna, sem þessar aðgerðir
voru ákveðnar, sagði Benedikt.
Gestur Ámundason hafnarstjóri
sagði að kanturinn á flestum
bryggjunum í höfninni væri 20 cm
hár og væri það í samræmi við
aðrar hafnir og svo sem reglan
mælti fyrir um. Bryggjuendar
Gestur Ámundason hafnar-
stjóri með kort af höfninni.
væru þó gjarnan hærri eða 45 cm
en þar legðust bátar ekki upp að.
Væru kantar hærri en 20 cm yllu
þeir vandræðum við uppskipun
o.fl. og kváðu þeir Benedikt og
Gestur því vart unnt að hækka þá.
— Það sem við getum gert, sagði
Benedikt, er að reka áróður fyrir
því að menn séu ekki á ferli um
bryggjurnar að óþörfu og við
getum bannað óviðkomandi um-
ferð eins og þegar hefur verið
ákveðið að gera. Hefur mér einnig
skilist í ráðuneytinu að slíkt sé
fyrirhugað að gera út um allt land.
Það er mjög erfitt í framkvæmd
að loka eða útiloka algjörlega
umferð frá bryggjum, því að bátar
eru að koma og fara á öllum
tímum og því teljum við að helst
sé til ráða að fá almenningsálitið
þannig með okkur að ekki skuli
aðrir aka eða fara út á bryggjur en
þeir sem þangað eiga erindi.
Meðal íbúa í Þorlákshöfn er
talað um að efla þurfi löggæslu í
bænum og við höfnina og jafnvel
banna þar alla umferð og sagði
Stefán Gárðarsson skrifstofu-
stjóri á skrifstofu Ölfushrepps að
þessari kröfu ykist stöðugt fylgi
og væri það mál hafnarstjórnar-
innar að taka ákvörðun um hvort
svo yrði gert. Ljóst væri þó að efla
þyrfti löggæslu við höfnina á
einhvern hátt og gat hann þess að
lögreglan hefði ekki aðsetur í
Þorlákshöfn, en komi frá Selfossi
þegar hún væri kvödd til. Tæki þá
20—30 mínútur að fá hana á
staðinn.