Morgunblaðið - 11.12.1979, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
Spjallað við verðlaunamann MBL.
Eftirminnileqast að
vinna sigur a Dönum
Leikmaður íslandsmótsins i
handknattleik var kjörinn á
síðasta ári markvörður íslands-
meistara Vals, ólafur Bene-
diktsson. Ólafur á að baki sögu-
legan og litríkan feril sem hand-
knattieiksmaður. Hann er einn af
fáum íslenskum markvörðum
sem komist hafa i heimsklassa,
og oftar en einu sinni hefur hann
verið maðurinn á bak við sigra
Vals og íslenska landsliðsins. Á
síðasta keppnistímabili var Ólaf-
ur maðurinn á bak við sigur Vais
í úrslitaieik íslandsmótsins i
handknattleik. og það var honum
fyrst og fremst að þakka að
góður sigur vannst á erki-
fjöndum vorum, Dönum, á úti-
velli í fyrsta sinn. 1 þeim ieik
varði Óli betur en nokkru sinni
fyrr og þá er mikið sagt. ólafur
er því vel að verðlaunabikar
Morgunblaðsins kominn. í tilefni
verðlaunaafhendingarinnar
spjölluðum við lítillega við Ólaf
og fer spjallið hér á eftir.
Nú er Islandsmótið vel á veg
komið. Verður þú með í vetur eins
og endranær og hvert er álit þitt á
handknattleiknum nú?
— Ég hef átt við meiðsli að
stríða í baki og er því ekki kominn
í jafn góða æfingu eins og skyldi.
Ég er góður í bakinu einn daginn
en slæmur þann næsta. Vonandi
fer þetta að lagast, ég er í meðferð
hjá lækni. Ég hef hugsað mér að
ólafur er mikill keppnismaður og tekur ávallt mikinn
þátt í leiknum. Hér er verið að vísa Ólafi útaf í landsleik
á móti Tékkum.
stunda æfingar af kappi í vetur.
Samkeppnin hjá Val er hörð og til
þess að geta leikið með mfl. karla
í marki þarf maður að vera í
toppformi.
Mín skoðun á Islandsmótinu er
sú, að það verði skemmtilegt.
Leikirnir hafa verið nokkuð jafnir
og boðið upp á spennu og sæmi-
legasta handknattleik. Það verða
þrjú lið sem verða á toppnum.
Valur, FH og Víkingur. Þá getur
lið Fram verið til alls líklegt. En
baráttan verður hörð, Víkingar
eiga eftir að tapa stigum, sannaðu
til.
Hefur þú alltaf jafn gaman af
handknattleiknum?
— Já, það hef ég. Við erum með
góðan þjálfara hjá Val þar sem
Hilmar Björnsson er. Hann er
með fjölhæfar og skemmtilegar
æfingar og þá er andinn í hópnum
góður. Ég byrjaði að æfa hand-
knattleik 17 ára gamall árið 1970,
þá fyrst hjá Víkingi enda átti ég
heima í Víkingshverfinu. En
stuttu seinna gekk ég í Val og sé
ekki eftir því. I fyrstu lék ég sem
útileikmaður en fór í markið á
einni æfingunni og þar hef ég
verið síðan. Nú er ég kominn með
um 230 leiki í meistaraflokki og
þeir eiga eftir að verða fleiri.
Hefur þetta verið þess virði?
— Já, svo sannarlega, þær eru
margar r.iinningarnar sem ég á
frá keppnisferðum hér heima og
erlendis. Þá lék ég um tíma í
Svíþjóð og það var lærdómsríkt og
skemmtilegt. íþróttirnar gefa
ungu fólki möguleika á að ferðast
mikið og þau eru orðin mörg
löndin sem ég hef komið til, bara
vegna þeirra.
Eru einhverjir leikir eftirminni-
legir?
— Þeir eru margir. Fyrsti
landsleikurinn mínn, hann gleym-
ist seint. Við sigruðum Danmörku
15—12 og ég átti góðan leik að ég
held. Annar landsleikur var á
móti Dönum er við unnum þá í
Baltic-keppninni í ár, 18—15, þar
vorum við greinilega betra liðið og
Ólafur Benediktsson leikmaður íslandsmótsins í hand-
knattleik fyrir keppnistimabilið 1978—79.
sigruðum verðskuldað. Nú af fé-
lagsleikjum er af mörgu að taka.
En sigurinn á móti Víkingi í
úrslitaleik mótsins í fyrra, er við
Valsmenn tryggðum okkur sigur-
inn í mótinu þriðja árið í röð, var
afar skemmtilegur. Fullt hús af
æstum áhorfendum og mikil
stemmning.
Hefur þú nokkuð breytt um stíl
í markinu gegnum árin?
— Nei, ég hef ekkert breytt um
stíl. Samt finnst mér ég ekki
hugsa eins mikið um leikinn eins
og ég gerði hér áður fyrr. Ég var
nefnilega oft ákaflega tauga-
óstyrkur fyrir leiki. Mér finnst
best að koma beint í upphitunina
fyrir leikinn, fer aldrei á fundi
með leikmönnum fyrir leik. Það
gerir mig taugaóstyrkan
Hvaða skot finnst þér best að
verja?
— Það er nú ekki gott að segja.
Mér finnst gott að fá leikmenn
beint á móti mér inn í teiginn.
Línuleikmenn t.d. Og líka ágætt
að fá menn í hraðaupphlaupum.
En hvort tveggja eru skot sem er
ákaflega erfitt að verja, en það vill
samt heppnast furðu oft. Það
getur líka oft verið gott að ráða
við langskot. Annars er þetta upp
og ofan.
Annars reyni ég bara ávallt að
gera mitt besta. Ég á frekar
erfiðara með örvhenta leikmenn
er rétthenda. Og sá erfiðasti sem
ég hef leikið gegn er Klempel sá
pólski. Hann er rosalegur.
Ég þakka Ólafi þetta stutta
spjall og hann segist að lokum
vilja láta það koma fram, að hann
sé þakklátur fyrir þá viðurkenn-
ingu sem Mbl. veitti honum. „Ein-
kunnagjöfin er og verður ávallt
umdeild en hún hvetur leikmenn.
Ég ætla mér að vera í baráttunni
um titilinn leikmaður íslands-
mótsins þetta keppnistímabil
líka,“ sagði Óli og brosti.
- þr.
KR-ingar komnir með flóóljós og gefa út hljómplötu
Miðvikudaginn 28. nóvember
s.I., vígðu KR-ingar ný flóðljós á
iþróttasvæði sínu við Kaplaskjól,
með innanfélagsleik á milli
íslandsmeistara II. fiokks og
m.fl. Flóðlýsing þessi er mikið
mannvirki, sem samanstendur af
sex 19 metra háum staurum með
36x1500 vatta ljóskösturum og er
því hér um að ræða einhverja
bestu flóðlýsingu sem nokkurt
iþróttafélag hér á landi hefur
yfir að ráða. bað sem er hvað
eftirtektarverðast við þetta
mannvirki er það, að knatt-
spyrnudeild félagsins hefur á
eigin spýtur séð um alla fjár-
mögnun verksins, án styrkja frá
opinberum aðilum, en heildar-
kostnaður mun nema rúmum 10
millj. króna.
Verður þetta að
teljast vel að vcrki staðið. Rétt
þykir að geta þess að KR-ingar
eru nú að koma upp einhverri
glæsilegustu aðstöðu til knatt-
spyrnuiðkunar sem hér á landi
þekkist. Tveir stórir grasvellir
verða teknir formlega í notkun
næsta sumar og unnið er nú við
þann þriðja. bað má því segja að
það sé bjart yfir KR-ingum þessa
dagana.
Þess má geta, að KR-ingar æfa
af kappi þessa dagana þrátt fyrir
frost og skammdegi. Magnús
Jónatansson hefur verið endur-
ráðinn þjálfari liðsins.. Mörgum
þykir kannski of langt gengið að
hefja æfingar fyrir næsta sumar á
þessum árstíma, en Vilhelm Fred-
riksen, einum leikmanna KR,
fannst það ekkert tiltökumál er
Mbl. bar það undir hann. „Við
þurfum fyrir vikið ekki að fara
eins geyst af stað þegar nær,
dregur sumri," sagði Vilhelm.
Þá hafa meistaraflokksmenn
KR í knattspyrnu sungið inná sína
fyrstu hljómplötu, sem nú er
komin á markaðinn. Þetta mun
vera í fyrsta sinn á íslandi sem
knattspyrnulið syngur inná
hljómplötu. Erlendis, t.d. á Bret-
landseyjum, er það algengt að
félagslið í knattspyrnu eða lands-
lið gefi baráttusöngva sína út á
hljómplötu.
Á þessari fyrstu KR plötu eru
tvö lög. Bæði lögin hefur Árni
Sigurðsson samið. Lögin heita
„Afram KR“ og „Mörk“. Hið fyrra
baráttusöngur KR-inga, en seinna
lagið fjallar um knattspyrnuað-
dáanda nokkurn sem dreymir um
að sjá mörk og aftur mörk.
Undirleikur á plötunni er í
höndum þekktra hljómlistar-
manna sem allir eru KR-ingar.
Lagahöfundurihn Árni Sigurðsson
sér um söng á plötunni auk
liðsmanna meistaraflokks KR í
knattspyrnu. Árni leikur einnig á
belggítar. Jónas Þ. Þórisson leikur
á flygil, Ragnar Sigurðsson á
rafgítar, Kristinn I. Sigurjónsson
á bassa, Guðjón B. Hilmarsson á
trommur og Þorleifur Gíslason og
Stefán S. Stefánsson leika á saxó-
fóna.
Platan var hljóðrituð í Tón-
tækni í byrjun sumars 1979. Upp-
tökumaður var Sigurður Árnason.
Pressun og skurður var í höndum
Norsk Grammofoncompani.
Víkingsprent og Formprent prent-
uðu. Erlingur Aðalsteinsson tók
myndir á plötuumslagi.
Útgefandi plötunnar er G.B.H.
hljómplötur.
Kór meistaraflokks K.R., Magnús G., Hreiðar, Guðjón, Sigurður P., Börkur, örn, Birgir, Sigurður I., Elías,
Vilhelm, Jón Odds, Sæbjörn, Stefán, Jósteinn, Ágúst, Haukur, Guðm Jó., Sverrir, Magnús O.