Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
7
L
Úrslit
kosninga
Urslit nýafstaðinna
kosninga hafa oröið
mðrgum umræðuefni, að
vonum. Hér ó eftir fara
hugleiöingar um þetta
efni, sem fram komu í
leiöara íslendings, mál-
gagns sjálfstæðismanna í
Noröurlandskjördæmi
eystra:
„Úrslit þingkosn-
inganna á dögunum urðu
Sjálfstæöisflokknum
verulegt áfall, sem hlýtur
aö verða forystuliöi
flokksins umhugsunar-
efni á næstu mánuðum.
Aðstæður voru þannig í
þjóðfélaginu, þegar blás-
ið var til kosninga, að
búist var viö verulegri
fylgisaukningu Sjálf-
stæðisflokksins. Enn ein
vinstri stjórn var að
syngja sitt síðasta og í
kosningunum 1978 hafði
flokkurinn tapað veru-
legu fylgi eftir fjögra ára
stjórnarsetu meö Fram-
sókn. Var því búist viö að
Sjálfstæðisflokkurinn
næði nú að endurheimta
fyrri stöðu sína á Alþingi,
jafnvel gott betur. Gengu
sumir svo langt að spá
flokknum hreinum meiri-
hluta.
En þetta fór á annan
veg. Þegar úrslitin lágu
fyrir kom í Ijós að Sjálf-
stæöisflokkurinn haföi aö
vísu aukiö fylgi sitt um
3%, en aöeins bætt við
sig einum þingmanni.
A-flokkarnir fengu sína
ráðningu hjá kjósendum,
en Framsóknarflokkur-
inn, sem stjórnaö hefur
þjóðarskútunni, að eigin
sögn, síðasta áratuginn,
þann áratug, sem mest
hefur gefiö á skútuna,
stóð uppi sem sigurveg-
ari kosninganna."
„Ástæðurnar fyrir
þessum óförum Sjálf-
stæðisflokksins eru
margþættir og erfitt að
benda á eitt einstakt at-
riði, sem skipti sköpum.
Þó vegur „leiftursókn
gegn verðbólgu" þungt á
metunum. Málin þróuð-
ust nefnilega þannig í
kosningabaráttunni, að
„leiftursóknin" varð aðal-
kosningamáliö, þaö var
kosiö um hana, en ekki
óráðssíu vinstri stjórnar-
innar. Þannig var snúið
við þeirri venju sem hér
hefur verið, aö gengi
stjórnmálaflokka mótist
meira af óförum annarra,
en eigin ágæti. „Leiftur-
sóknin“ er áræöin stefnu-
mörkun, en þó raunhæf
til lausnar á þeim vanda-
málum sem við er að
stríöa. Andstæðingunum
tókst samt að gera hana
tortryggilega, vöktu upp
allskyns drauga, án þess
að benda á betri leiðir
sjálfir. Þá var „leiftur-
sóknin" borin fram með
allt of stuttum fyrirvara,
þannig að ekki gafst
nægilegt tóm til að skýra
efni hennar fyrir kjósend-
um.
Sjálfstæðisflokkurinn
gekk ekki heill til skógar
í þessum kosningum.
Klofningsframboð komu
fram í tveimur kjördæm-
um og sköðuöu flokkinn
verulega, ekki bara í
þeim kjördæmum, heldur
í heild. Þá héldu and-
stæðingarnir því líka
óspart á lofti, að þessi I
klofningsframboð væru i
ekki annað en talandi
dæmi um ástandið í |
flokknum, þeim væri ekki .
treystandi til stjórnar, I
sem ekki gætu stjórnað i
sér sjálfir. Ágreiningur
innan flokksins hefur þó |
ekki verið málefnalegur, ,
en hann verður að setja I
niður áður en gengið er I
aftur til kosninga.
Þessi tvö atriði skiptu I
sköpum fyrir Sjálfstæðis- i
flokkinn í kosningunum, 1
en auk þess urðu ýmis j
smærri atriði til þess aö .
flokkurinn náði aldrei I
„takti" við kjósendur. Að I
auki er orðtakiö „allt er
betra en íhaldið" ekki |
alveg útí bláinn meðal .
vinstri manna. Þeir geta '
hugsaö sér að refsa |
sínum flokki með því aö
kjósa annan vinstri flokk, I
en aldrei með því að i
kjósa Sjálfstæðisflokkinn 1
hvað sem á gengi.
Úrslit kosninganna .
boða enn eina vinstri I
stjórn ef að líkum lætur. |
Stjórnarmyndunarviö-
ræður standa nú yfir, en I
ekki séö að betur horfi ■
með árangur af störfum *
vinstri stjórnar en áður. |
Ýmsar blikur eru á lofti .
og kosningar gætu oröiö I
fyrr en seinna. Það er því i
ástæöa fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn að skoða strax í |
eigin barm og finna þau .
mein og fjarlægja sem '
þar er aö finna. Takist |
það gengur flokkurinn
tvíefldur til næstu kosn- I
inga og þá þarf ekki að i
spyrja aö leikslokum.“
Argerö 1980 komin
Sérstakt jólatilboó
250.000 út og rest á 6 mán.
TÖKUM NOTUÐ TÆKI UPP í NÝ
Verö 22“ 711.980,-
26“ 749.850.-
r
Verslióisérverslun með
UTASJÓNVÖRP og HUÓMTÆK!
k
29800
Skipholti19
Á
ÞESSI
BÁTUR
ER
TIL
SÖLU
með góðum kjörum ef
samið er strax og í skipt-
um fyrir bíl. Báturinn er
nýr og vélarlaus, 6 metrar
á lengd og 2,12 tonn.
Upplýsingar veittar í
símum 81410 og 37930
Jón Hjartarson.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU