Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
Hentu starfs-
fólkinu út í
sundlaugina
SUNDMEISTARAMÓT Vest-
mannaeyja íór fram nú fyrir
skömmu og þrátt fyrir að jólin
nálgist iét iþróttafólkið það ekki
aftra sér til afreka. Sundfólkið
unga í Vestmannaeyjum keppti
um titilinn sunddrottning og
sundkóngur eyjanna. Sigfrið
Björgvinsdóttir vann titilinn
sunddrottning Vestmannaeyja
1979 en tveir piltar skildu
hnifjafnir í baráttunni um
sundkóngstitilinn. Sundfólkið i
Vestmannaeyjum hefur náð góð-
um árangri á skömmum tíma
með tilkomu hinnar nýju sund-
hallar, og miðað við hversu stutt-
an tima þau hafa notið tilsagnar.
Að sundmótinu loknu, brugðu
keppendur á leik og hentu þjálf-
ara sínum og starfsfólki sund-
hallarinnar alklæddu út í laug
við mikinn fögnuð áhorfenda, og
ekki síst þeirra sjálfra.
þr/sj.
Smári Harðarson og Árni
Sigurðsson skiptu bróður-
lega með sér titlinum
sundkóngur Vestmanna-
eyja. Ljósm. Sigurgeir.
Staðan í 1. deild kvenna
Staðan í 1. deild
íslandsmótsins í hand-
knattleik kvenna eftir
leiki helgarinnar:
Grindavík — FH 16—23
KR - Víkingur 13-16
Fram 6 6 0 0 113-64 12
KR 6 4 0 2 98-71 8
Víkingur 6 3 0 3 104-86 6
Valur 5 3 0 2 82-79 6
HandknalllelKup
------------------/
Haukar 6 3 0 3 88—90 6
Þór 5 2 0 3 84-85 4
FH 6 2 0 4 95-118 4
Grindavik 6 0 0 6 62-133 O
Markahæstar í 1. deild.
Guðríður Guðjónsd., Fram 48/22
Margr. Theod. Haukum 46/29
Kristjana Aradóttir, FH 37/16
Ingunn Bernód. Vík. 31/11
Sjöfn Ágústsdóttir, Grindav. 30
Hansína Melsteð, KR 29/17
íris Þráinsdóttir, Vík 24/6
Eirika Ásgrímsdóttir, Vík. 23
Harpa Guðmundsdóttir, Val 22
Katrín Danivalsdóttir, FH 21
Elnkunnagiofln
ÍR: Þórir Flosason 2, Hörður Hákonarson 2, Guðmundur Þórðarson 2,
Guðjón Marteinsson 2, Bjarni Hákonarson 2, Ársæll Hafsteinsson 2,
Bjarni Bjarnason 2, Bjarni Bessason 3, Sigurður Svavarsson 2, Pétur
Valdimarsson 1.
VALUR: Brynjar Kvaran 1, ólafur Benediktsson 1, Þorbjörn Jensson
2, Steindór Gunnarsson 3, Þorbjörn Guðmundsson 1, Bjarni
Guðmundsson 2, Jón H. Karlsson 2, Stefán Gunnarsson 1, Gunnar
Lúðviksson 2, Stefán Halldórsson 1, Björn Björnsson 1, Brynjar
Harðarson 1.
DÓMARAR: Árni Tómasson og Jón Friðsteinsson 3.
HAUKAR: Ólafur Guðjónsson 2, Gunnlaugur Gunnlaugsson 1, Hörður
Harðarson 1, Andrés Kristjánsson 3, Stefán Jónsson 3, Þórir Gíslason
3, Árni Sverrisson 2, Árni Hermannsson 2, Júlíus Pálsson 2,
Guðmundur Haraldsson 1, Sigurgeir Marteinsson 2, Svavar Geirsson
1.
KR: Pétur Hjálmarsson 2, Gisli F. Bjarnason 2, Konráð Jónsson 4,
Haukur Ottesen 3, Haukur Geirmundsson 1, Þorvarður Höskuldsson
1, Ölafur Lárusson 2, Friðrik Þorbjörnsson 3, Björn Pétursson 3,
Jóhannes Stefánsson 2, Simon Unndórsson 1.
DÓMARAR: Guðmundur Kolbeinsson og Rögnvald Erlingsson 2.
FRAM: Guðjón Erlendsson 2, Birgir Jóhannsson 2, Björn Eiríksson 1,
Theodór Guðfinnsson 2, Jón Árni Rúnarsson 2, Sigurbergur
Sigsteinsson 2, Egill Jóhannesson 2, Atli Hilmarsson 2, Erlendur
Daviðsson 2, Andrés Bridde 3, Hannes Leifsson 3.
FH: Birgir Finnbogason 1, Sverrir Kristinsson 2, Valgarður
Valgarðsson 2, Guðmundur Magnússon 3, Geir Hallsteinsson 1,
Guðmundur Árni Stefánsson 2, Pétur Ingólfsson 2, Hafsteinn
Pétursson 1, Kristján Arason 2, Eyjólfur Bragason 2, Sæmundur
Stefánsson 4, Árni B. Árnason 2.
DÓMARAR: Karl Jóhannsson og Björn Kristjánsson 3.
LIÐ VÍKINGS: Jens Eiriksson 2, Kristján Sigmundsson 2, Steinar
Birgisson 3, Árni Indriðason 3, ólafur Jónsson 2, Erlendur
Hermannsson 2, Sigurður Gunnarsson 3, Páll Björgvinsson 2,
Þorbergur Aðalsteinsson 3, Brynjar Stefánsson 2, Guðmundur
Guðmundsson 1, Heimir Karlsson 1.
LIÐ HK: Einar Þorvarðarson 2, Kolbeinn Andrésson 1, Bergsveinn
Þórarinsson 2, Kristinn ólafsson 1, Gunnar Árnason 1, Hilmar
Sigurgíslason 2, Karl Jóhannsson 1, Ragnar ólafsson 3, Erling
Sigurðsson 2, Kristján Þór Gunnarsson 2, Jón Einarsson 3, Magnús
Guðfinnsson 2.
DÓMARAR: Rögnvald Erlingsson og óli Ólsen 3.
Sigfríð Björgvinsdóttir
sunddrottning
Vestmannaeyja 1979.
Syim ]
....-..
FH breytti
tapaðri stöðu
í sigur!
UMFG:FH
16:23
FH krækti í tvö stig í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik
kvenna, er liðið sótti Grindavík
„heim“ í Njarðvík. Lokatölur
leiksins urðu 23—16 fyrir FH, en
Grindavík hafði þó forystuna í
hálfleik, 10-7.
Það leit sannarlega ekki út fyrir
sigur FH framan af, er lið Grinda-
víkur sýndi á sér nýjar hliðar.
Mörkin hlóðust upp og UMFG
náði mest 8 marka forystu, 10—2.
Þá tóku FH-dömurnar hins vegar
að síga á og tókst að minnka
muninn niður í þrjú mörk fyrir
leikhlé. Síðari hálfleikur var síðan
einstefna og FH-stúlkurnar skor-
uðu hvert markið á fætur öðru.
Þau urðu loks 16 gegn 6 í hálf-
leiknum, þannig að þrátt fyrir
ömurlega byríun. hafði FH unnið
stórsigur, 23—16.
Mörk UMFG: Sjöfn 7, Hildur,
Svanhildur og Kristólína 3 hver.
Mörk FH: Kristjana 9, Katrín 7,
Svanhvít 4 og Kristín 3 mörk.
Handknattlelkur
... ..... .......-______/
Víkingur náði toppleik
VÍKINGAR sýndu mjög góðan
leik þegar liðið lagði KR að velli í
1. deild íslandsmótsins i hand-
knattleik kvenna um helgina.
Víkingur vann öruggan sigur,
16—13, en staðan í hálfleik var
8—6 Víkingi í hag.
Víkingur tók þegar forystuna í
leiknum, komst í 2—0 og 3—1.
KR jafnaði hins vegar í 3—3,
4—4 og 5—5, en þá seig Vikingur
fram úr og náði tveggja marka
forystu áður en hálfleikur rann
upp. í siðari hálfleik dró enn i
sundur og munaði þá nokkrum
sinnum 5 mörkum, 14—9,15—10
og loks sex mörkum, 16—10.
Voru úrslit leiksins þar með
ráðin, enda þá frekar skammt til
leiksloka. KR-dömurnar réttu þó
heldur úr kútnum með því að
skora þrjú siðustu mörkin í
leiknum, þannig að Iokatölurnar
urðu 16—13 eins og áður sagði.
VíkingunKR
16:13
Víkingur er að koma upp með
mjög sterkt kvennalið, fram hjá
því verður ekki horft. Að vísu
vantar enn að liðið sýni sömu
festuna frá einum leik til annars,
en líklegt er að það komi allt
saman. Liðið var í bullandi fall-
hættu á síðasta keppnistímabili,
en stórátak hefur verið gert. Var
vart hægt að hugsa sér drýginda-
legri þjálfara en Eggert hjá
Víkingi, þar sem hann gekk um
gólf sperrtur eins og andarsteggur
með vindil í hendi. Að vísu var
slokknað í vindlinum í lokin er KR
skoraði hvert markið af öðru, en
hvað um það. Víkingur vann góðan
sigur. KR virðist gersamlega hafa
gefið möguleika sína upp á bátinn
við það að tapa fyrir Fram. Liðið
var lélegt að þessu sinni, en getur
miklu meira.
Lið Víkings var jafnt, en þrjár
stúlkur báru af, þær Ingunn,
Eiríka og íris. Það er helst að
finna að Víkingum, að breiddin í
markaskoruninni er lítil. Þá varði
Jóhanna í markinu ágætlega. Hjá
KR var það einkum Karólína sem
eitthvað kvað að, en liðið náði sér
aldrei á strik.
Mörk Víkings: Ingunn 7, íris 5,
Eiríka 3 og Sigurrós 1 mark.
Mörk KR: Hansína og Karólína
3 hvor, Arna, Hjördís og Hjálm-
fríður 2 mörk hver og Olga eitt
mark.
— gg
• Birna ryðst í gegn um vörn Vikings, en er hindruð og víti var dæmt.
Ljósm. Emilia.