Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979 Afturelding rassskellti KA LIÐIÐ, sem kom upp úr 3. deild í íyrra, Afturelding í Mosfells- sveit, lætur ekki að sér hæða. Um helgina tóku þeir lið KA frá Akureyri í kennslustund í hand- knattleik og sigruðu með 11 marka mun eða 27—16. Staðan í hálfleik var 10—9, Aftureldingu í hag. Norðanmenn hafa sjálfsagt átt von á minni mótspyrnu en raunin varð á að Varmá. En Afturelding hefur sannað það í leikjum sínum að ekkert lið getur bókað sér sigur fyrirfram á móti þeim. Liðið lék á laugardaginn tvímælalaust sinn besta leik í 2. deild til þessa. Sóknarleikurinn var beittur og varnarleikur og markvarsla Emils Karlssonar voru allan tímann mjög góð. Fyrri hálfleikur var allur mjög jafn, þrátt fyrir að lið UMFA hefði oftast frumkvæðið í að skora og hefði eitt mark yfir í hálfleik. Leikmenn KA virtust ekki vera á þeim buxunum að taka leikinn mjög alvarlega og meiri baráttu- kraft vantaði í leik þeirra. í síðari hálfleik hrundi leikur 27:16 KA gjörsamlega. Og á sama tíma gekk allt í haginn hjá Aftureld- ingu. Liðið náði hverju hraðaupp- hlaupinu af Öðru, þar sem KA- menn létu þá komast ínn í send- ingar og eftirleikurnn var auð- veldur. Staðan breyttist úr 10—9 í 17—10. Þorleifur Ananíasson var eini maðurin n sem eitthvað virt- ist geta hjá KA. Skoraði hann sex af sjö mörkum liðsins í síðari hálfleiknum. Leikmenn UMFA héldu áfram að bæta við forskotið og þegar leikurinn var flautaður af var munurinn orðinn 11 mörk. Lið UMFA er ört vaxandi og gerir margt mjög laglega. Hraðaupp- hlaupin voru til dæmis laglega útfærð svo og margar línusend- ingar sem gáfu mörk. Besti maður UMFA var Emil Karlsson markvörður, hann varði allan leikinn mjög vel, enda var vörnin sterk fyrir framan hann. Þá er Steinar hættulegur leik- maður, svo og Gústaf Baldvin. En styrkur UMFA felst ekki síst í því hvað liðið er í heildina jafnt og leikmenn berjast vel. Verður fróð- legt að fylgjast með liðinu í næstu leikjum. Lið KA var frekar dapurt í þessum leik. Það var eins og leikmenn væru að bíða eftir að hlutirnir kæmu að sjálfu sér. Greinilegt var að þeir vanmátu andstæðing sinn svo um munaði og það lofar aldrei góðu. Þorleifur Ananíasson var langbesti leik- maður KA og í rauninni sá eini sem eitthvað kvað að Gauti markvörður átti góða spretti og varði vel inn á milli en allt kom fyrir ekki. Mörk UMFA: Steinar 7, Gústaf 7, Lárus 5, Sigurjón 4, Þórður 2, Magnús 1, Ingvar 1. Mörk KA: Þorleifur 7, Alfreð 5, Gunnar 4. - þr. Hörkuvörn og gæðamark- varzla afgreiddi KA FYLKIR var ekki í vandræðum með að Ieggja KA að velli í 2. deild ísLandsmótsins í hand- knattleik i Laugardalshöllinni um helgina. Lokatölur leiksins urðu 22—15 fyrir Fylki, staðan í hálfleik var 12—6. KA reið því ekki feitum hesti frá Reykja- víkurferðinni sinni að þessu sinni, tapaði fyrst með 11 mörk- um fyrir nýliðum UMFA og síðan með 7 mörkum fyrir Fylki, eða 18 mörk samanlagt. Fylkir stendur nú mjög vel að vígi í deildinni og er liðið líklegur kandídat í 1. deild. En það eru fleiri og leiðir timinn í ljós hvert verður fyrir valinu. KA hóf leikinn með óskaplegum hraða, a.m.k. þrjú þrumuskot skullu á varnarvegg Fylkis strax í fyrstu sókninni. KA komst í 2—0, en síðan ekki söguna meir. Sókn- arleikur Iiðsins var einhæfur og lykilmenn liðsins voru ekki í essinu sínu, t.d. skoraði Alfreð Gíslason aðeins 4 mörk í leiknum, en hann hefur áreiðanlega skotið 2. DEILD Úrslit í 2. deild karla í handknattleiknum um helgina urðu þessi: Afturelding—KA 27—16 Þróttur—Þór, Vest. 27—21 Fylkir-KA 22-16 Staðan er nú þannig: Fylkir 5 4 0 1 105 - 90 8 Þróttur 6 4 0 2 131-123 8 Armann 4 2 1 1 97—78 5 Afturelding 4 2 1 1 83—76 5 KA 4 2 0 2 74-87 4 Týr, Vest. 2 1 0 1 45-38 2 Þór, Vest. 3 0 0 3 52-82 0 Þór, Ak. 4 0 0 4 72-84 0 Markhæstir í 2. deild eru þeir ... Sigurður Sveinsson Þrótti Þorleifur Ananiasson KA Friðrik Jóhannesson Ármanni Páll ólafsson Þrótti Alfreð Gislason KA ólafur H. Jónsson Þrótti Sigurður Sigurðsson Þór Þráinn Ásmundsson Ármanni Ragnar Hermannsson Fylki 50 25 24 22 22 21 20 18 17 l’K 22:15 fjórum sinnum þá tölu. Góð frammistaða KA framan af fyrri hálfleik átti ekki síst rætur að rekja til markvörslunnar, en Gauti varði þá mjög vel. Síðan fjaraði markvarslan út og var ekki nema rétt þokkaleg það sem eftir var. Vörn Fylkis var sannkölluð mulningsvel og markvarsla Jóns Gunnarssonar var í landsliðs- klassa. Sóknarleikur Fylkis er ekki augnayndi, en hann er árang- ursríkur í meira lagi, liðið virðist stefna hraðbyri á 1. deild og eitt er víst, að ef liðið fer upp, mætir það til leiks með miklu sterkara lið en það sem féll í 2. deild í fyrra. Einar Ágústsson átti sinn besta leik í langan tíma. Þessi hávaxni leikmaður hefur lengi verið lykil- maður í vörninni, en skoraði nú mikið af mörkum með góðum langskotum. Einar og Jón mark- vörður voru bestu menn Fylkis, en liðið var mjög jafnt að þessu sinni og í því felst einn meginstyrkur liðsins. Hjá KA var meðalmennsk- an ríkjandi, helst var það Gunnar Gíslason sem stóð upp úr. Mörk Fylkis: Einar Ágústsson 6, Guðni Hauksson, Magnús Sigurðs- son og Gunnar Bjarnason 3 hver, Ragnar Hermannsson, Ásmundur Kristinsson og Óskar ÁSgeirsson 2 hver, Sigurður Símonarson eitt mark. Mörk KA: Gunnar Gíslason 5 (2), Alfreð Gíslason 4, Guðbjörn Gíslason og Þorleifur Ananíasson 2 hvor, Magnús Birgisson, Rúnar Steingrímsson og Guðmundur Lárusson eitt hver. gg • Unglingalandsliðsmaðurinn Alfreð Gíslason, sem á myndinni sést reyna markskot, skoraði 9 mörk i þeim tveimur leikjum er hann lék með liði sinu KA um helgina. Ljósm. Kristján. Þorbjörn Jensson var einn af fáum í liði Vals sem átti góðan 1 sínum í leiknum. Bjarni Hákonarson ÍR er til varnar. Enn tapa íslant — Við erum bara ekki betri en þetta, það vantar allan vilja til þess að berjast fyrir íslandsmeistaratitilinum í ár, sagði Hilmar Björnsson þjálfari Valsmanna er liðið hans hafði tapað sinum þriðja leik i mótinu. Að þessu sinni var það ÍR, sem tók stig af Val og er það ekki fyrsta skipti i íslandsmótinu i handknattleik sem Valsmenn fara niðurlútir af velli eftir að hafa mætt þeim. Óvænt úrslit í meira lagi, ekki sist vegna þess að ÍR-ingar léku á köflum svo illa að það hefði betur sæmt 3. deildar hði en liði í leikmenn gerðu. Reyndar er það leiki mörg liðin i 1. deild hafa þverbak keyrir. Gangur leiksins Það voru ÍR-ingar sem höfðu frumkvæðið í leiknum fyrsta kort- érið, en þá tókst Valsmönnum að jafna leikinn 5—5, og náðu foryst- unni og komust í 10—6 á 18. mínútu. Á þessum tíma lék liðið eins og það á að sér en það stóð frekar skammt. Þrátt fyrir mikil mistök í sendingum sín á milli og oft ótímabærum skot tókst ÍR að klóra í bakkann og aðeins tveggja . deild. Slíkar voru skyssurnar sem líka umhugsunarefni hversu slaka sýnt. Áhugaleysið er slíkt að um marka munur var á liðunum í hálfleik, 12—10 fyrir Val. í síðari hálfleik fór leikur Vals- manna að riðlast og á 39. mínútu ná ÍR-ingar að jafna, 14—14, og nokkur spenna fór að færast í leikinn. Nú kom þáttur Bjarna Bessasonar. Hann hafði verið nokkuð óheppinn mað skotin fram að þessu en nú fór hann virkilega í gang og skoraði fjögur mörk á skömmum tíma. ÍR nær tveggja Staðan í Staðan í 1. deild íslandsmótsins í hand- knattleik er nú þessi. Víkingur—IIK 24-18 Valur—ÍR 22—26 Víkingur 5 5 0 0 112-89 10 FH 5 4 1 0 117-103 9 KR 6 4 0 2 135-126 8 Valur 6 3 0 3 123-113 6 Haukar 6 2 1 3 124-133 5 ÍR 5 2 0 3 104-105 4 Fram -5 0 2 3 100-111 2 HK 6 0 0 6 96-131 0 Markhæstu leikmenn 1. deildar eru þessir: Bjarni Bessason ÍR 33 Ragnar Ólafsson HK 31 1. deild Páll Björgvinsson Vík. 28 Ólafur Lárusson KR 27 Atli Hilmarsson Fram 25 Haukur Ottesen KR 25 Konráð Jónsson KR 23 Kristján Arason FH 23 Þórir Gíslason Haukum 23 Andrés Bridde Fram ’ 21 Þorbjörn Guðmundsson Val 21 Sæmundur Stefánsson FH 20 Pétur Ingólfsson FH 19 Björn Pétursson KR 18 Sigurður Gunnarsson Vík 18 Steindór Gunnarsson Val 17 Bjarni Guðmundsson Val 17 Hörður Harðarsson Haukum 16 Steinar Birgisson Vík. 16 Guðmundur Magnússon FH 16 Andrés Kristjánsson Haukum 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.