Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
BYGGUNG afhendir íbúðir:
EIGENDUR tveggja her-
bergja íbúða við Eiðis-
granda, sem nú er verið að
afhenda hjá Byggung,
Byggingasamvinnufélagi
ungs fólks í Reykjavík,
fullbúnar með frágeng-
inni sameign, þurfa að-
eins að greiða fyrir þær
8,1 milljón króna. Sé
reiknað með því að við-
komandi hafi lagt fram
lífeyrissjóðslán að upp-
hæð 3 milljónir króna og
sú upphæð lögð við 5,4
milljónir króna sem við-
komandi fær að láni hjá
Húsnæðismálastjórn
ríkisins kemur í ljós að
hann er með í höndunum
104% íbúðarverðsins.
Þriggja herbergja íbúð-
ir sem nú er verið að
afhenda kosta 10.4 millj-
ónir króna og sé gengið út
frá sömu forsendum og
hér að framan hefur við-
komandi eigandi í hönd-
unum 81% kaupverðs
íbúðarinnar.
Fjögurra herbergja
íbúðir kosta 12.9 milljónir
króna og miðað við sömu
forsendur hefur eigandi
slíkrar íbúðar 66% af
íbúðarverðinu í höndun-
um, þ.e. 5.4 milljónir
króna í Húsnæðismála-
stjórnarláni og 3 milljónir
í lífeyrissjóðsláni.
Byggung fékk úthlutað lóð
fyrir íbúðirnar í marz 1978 og
hófust framkvæmdir þegar
mánuði síðar. Húsið varð síðan
fokhelt í ágústmánuði s.l. Að,
sögn Þorvalds Mawby, fram-
íbúðirnar í þessum fyrri
áfanga félagsins við Eiðis-
granda í marzmánuði n.k. Það
séu því rétt um tvö ár frá því
að félagið fékk úthlutað þang-
að til síðustu íbúarnir flytji
inn.
Þorvaldur sagði að fram-
kvæmdir við seinni áfangann
væru komnar vel á veg og væri
ætlunin að ljúka honum síðla
næsta árs. Aðspurður um
hvernig hægt væri að byggja
íbúðirnar á þessu ævintýra-
lega lága verði sagði Þorvaldur
að beitt hefði verið ítrustu
hagkvæmni við öll verk. Bygg-
ung hefur verið verktakinn á
staðnum, og samið um hin
ýmsu verk, ekkert hefur verið
boðið út. Auk þess sem Bygg-
ung væri auðvitað ekki rekið
sem gróðafyrirtæki. „Það sem
vekur kannski hvað mesta
athygli okkar, sem í þessu
stöndum, er að á sama tíma og
við afhendum þessar tveggja
herbergja íbúðir á liðlega 8
milljónir króna er verið að
afhenda íbúðir hjá Verka-
mannabústöðum Reykjavíkur
fyrir ríflega 16 milljónir í
sama ástandi, þ.e.a.s. fullbún-
ar,“ sagði Þorvaldur ennfrem-
ur.
„Það, sem stendur okkur
hins vegar fyrir þrifum nú, er
að við fáum ekki lóð undir
frekari byggingar, á sama
Fjölbýlishús Byggungs við Eiðsgranda.
Eigendur 2ja herbergja
íbúða fá greitt til baka
Inni i stofu fjögurra herbergja ibúðar, f.v. Þórhallur
Steingrímsson. Þorvaldur Mawby framkvæmdastjóri
Byggungs og Jón Þorsteinn Gunnarsson, en þeir Þórhallur og
Jón eru í stjórn félagsins. Ljósmynd Mbl. RAX
Mjög er vandað til allra innréttinga eins og þessi mynd sýnir
glögglega.
kvæmdastjóra félagsins, hafa
framkvæmdir gengið sam-
kvæmt áætlun og er búist við
að lokið verði við að afhenda
tíma og við sýnum fram á að
við byggjum ódýrar en nokkur
annar fyrir unga fólkið. Þetta
kemur sér sérstaklega iila
— hafi þeir lagt fram
3ja milljón króna líf-
eyrissjóðslán að við-
bættu 5,4 milljón króna
láni frá Húsnæðismála-
stofnun ríkisins, en
íbúðirnar eru af-
hentar tilbúnar á 8.1
milljón króna
fyrir okkur þar sem við höfum
fjárfest mikið í tækjum ýmiss
konar, en við bíðum og vonum
að úr rætist," sagði Þorvaldur
ennfremur.
Á sama tíma og Byggung
afhendir tveggja herbergja
íbúðir fyrir 8.1 milljón króna
kostar samsvarandi eign á
bilinu 21—24 milljónir króna.
Þriggja herbergja íbúð sem
afhent er hjá Byggung fyrir
10.4 milljónir króna og fjög-
urra herbergja íbúðir, sem
afhentar eru á 12,9 milljónir
króna hjá Byggung, kosta á
aimennum markaði frá 30—34
milljónir króna samkvæmt
þeim upplýsingum sem Mbl.
hefur aflað sér.
Kommúnistahreyfingin á
íslandi 1921 til 1934
Ný bók eftir Þór Whitehead
KOMIN er út hjá Bókaútgáfu
Menningarsjóðs og Þjóðvina-
félagsins bókin Kommúnista-
hreyfingin á Islandi 1921 til
1934 eftir Þór Whitehead. Bók-
in er 135 blaðsíður að stærð,
prýdd ljósmyndum af mönnum
og atburðum sem við sögu
koma, prentuð í Steinholti h.f.
Þetta er nýtt bindi í ritröð-
inni í Sagnfræðirannsóknum
— Studia historica sem Sagn-
fræðistofnun Háskóla íslands
og Bókaútgáfa Menningarsjóðs
standa að, en ritstjóri hennar er
Þórhallur Vilmundarson próf-
essor. Fjallar Kommúnista-
hreyfingin á íslandi 1921 —
1934 um árdaga kommúnista-
hreyfingarinnar hér á landi,
klofninginn í Alþýðuflokknum
og vekalýðshreyfingunni og að-
dragandann að stofnun Komm-
únistaflokks íslands sem verður
fyrirrennari Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokksins og
síðar Alþýðubandalagsins. Bók-
in skiptist í átta meginkafla , en
Viðbætir 1—4 hefur að geyma
skrá um alþingis- og bæjar-
stjórnarkosningar 1927—1934,
lög kommúnistaflokksins, félag-
atal Áhugaliðs alþýðu 1921 og
sýnishorn bolsévískrar sjálfs-
Þór Whitehead.
gagnrýni, þar sem kommúnistar
gagnrýndu sjálfa sig fyrir að
víkja frá „réttri" stefnu. Loks
eru tilvitnanir í heimildir,
heimildaskrá og nafnaskrá.
Tarzan enn
á ferðinni
Áður hefur komið út hjá
Sagnfræðirannsóknum —
Studia historica: Gunnar
Karlsson: Frá endurskoðun til
valtýsku. Björn Teitsson:
Eignarhald og ábúð á jörðum í
Suður-Þingeyjarsýslu 1703—
1930. Heimir Þorleifsson: Saga
íslenzkrar togaraútgerðar
fram til 1917. Hjörtur Pálsson:
Alaskaför Jóns Ólafssonar
1874.
AUGLYSINGASIMrNN ER:
22480
!H»r0unblatkib
Siglufjarðarprentsmiðja gefur
út nokkrar Tarzanbækur fyrir
jólin, en Tarzanbækurnar eru ein-
hverjar víðlesnustu barnabækur í
veröldinni. Söguhetjan lendir að
vanda í ótrúlegustu þrautum sem
honum tekst ætíð að leysa og
hugmyndaflugið kemst á fulla
ferð þegar lesandinn fylgir honum
á hinum hættulegu ferðum.
Tarzanbækurnar sem Siglu-
fjarðarprentsmiðja gefur nú út
eru Tarzan og dvergarnir og
Tarzan og gullna ljónið. Þá gefur
Siglufjarðarprentsmiðja einnig út
myndabók um Tarzan og heitir
hún Tarzan og örlagaríkir atburð-
ir.