Morgunblaðið - 18.12.1979, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
3 3
Á jólunum klæðast allir sinum
beztu fötum, þvi allir vilja taka
þátt i hátiðinni. Stúlkan á litlu
myndinni er i íslenzkum búningi,
upphiut, »k hún er nú aldeilis fín.
Þarna er Pottasleikir búinn að
sleikja stóran pott með ein-
hverju góðgæti, því annars væri
hann ekki svona ánægður á
svipinn og héidi um magann
saddur og sæll eins og Halldór
Pétursson teiknar hann.
Jólasveinarnir:
Komnir á kreik
um allt land
Nú er Pottasleikir kominn til byggða og þá mega húsmæður fara að
vara sig á því að láta potta, pönnur og kirnur vera á glámbekk, því sá
gamli góði jólasveinn er ekki svifaseinn ef pottur með einhverju góðgæti
liggur á lausu.
Það var mikið við að vera í Reykjavík og víðar á landinu sl. sunnudag
því þá var fullt af jólasveinum á ferðinni í borginni og m.a. komu þeir á
Austurvöll til þess að spjalla við krakkana og taka lagið. Einnig fóru
þeir í gönguferð til þess að skoða í búðarglugga og þeir voru aldeilis
hlessa að sjá allt sem var til í þeim húsum. Á Austurvelli sungu
jólasveinarnir mörg jólalög með krökkunum og þeir létu sig ekki muna
um það að fara upp á húsþök til þess að allir krakkarnir sæju þá.
Krakkarnir voru í sparifötunum sínum þegar þau hittu jólasveinana
sína og einnig var kveikt á stóru jólatré á Austurvelli sem höfuðborg
Noregs, sem heitir Osló, gaf Reykjavíkurborg. — á.j.
Jólasveinarnir að kikja i búðargluggana og það þótti þeim
skemmtilegt.
Skemmtilegar og góöar barnabækur fyrir börn
7—13 ára.
Stafafell
% x á ZnzSTj? EFÞAÐERFRÉTT- SJ NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐtNU
ÍSLANDI
í bókinni eru saman komin æviágrip og ættartölur manna í
löggiltum iðngreinum bókagerðar, ásamt frásögn af þróun hverrar
iðngreinar. Mikill fjöldi mynda er i bókinni. Upplag mjög takmarkað.
Dreifing bókarinnar fer fram frá skrifstofu Hins íslenzka prentara-
félags, Hverfisgötu 21, Reykjavík. Sími 16313.
I -
Nú fer hver að verða síðastur
að eignast bókina