Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
Þýðandinn, dr. Jónas Kristjánsson, ásamt þeim Hrólfi Halldórssyni og
Helga Sæmundssyni sýna blaðamönnum hina nýju bók á fundi í gær,
og að auki fyrra bindið sem nú er endurútgefið. Myndina tók Emilía
Björnsdóttir.
Síðara bindið af
Grikklandi hinu
forna komið út
„SWEATSHIRTS"
BBKrFUUU!
ritsafni Rómaveldi I — II, 1963—
64, einnig í þýðingu dr. Jónasar
Kristjánssonar, en er löngu upp-
selt.
Grikkland hið forna I—II lýsir
uppruna, vexti, þroska og hrörnun
grískrar menningar frá elstu
minjum Krítar og Tróju fram til
þess er Rómverjar vinna ríki
Grikkja. Dr. Jónas Kristjánsson
segist í formála síðara bindis hafa
tekist þetta þýðingarverk á hend-
ur að beiðni föðurbróður síns,
Jónasar Jónssonar frá Hriflu.
Setti þýðandi sér það takmark að
íslenska bindin um Rómaveldi og
Grikkland hið forna, og má nú
kalla að því ætlunarverki sé lokið.
Bæði bindi Grikklands hins forna
eru prýdd fjölda mynda og hinu
síðara lýkur með ítarlegri nafna-
skrá og landabréfum.
Ameríski sagnfræðingurinn
Will Durant (fæddur 1885) hóf að
semja hið risavaxna verk sitt um
sögu mannkynsins árið 1927. Til
að kynnast söguslóðum með eigin
augum lagði hann hvað eftir
annað í mikil ferðalög og fór
meðal annars tvisvar umhverfis
jörðina eftir mismunandi leiðum.
Nam rit hans alls ellefu bindum
og þykir frábært. Durant hefur
komist svo að orði að hann hafi
dæmt sjálfan sig til ævilangrar
fangelsisvistar þegar hann réðst í
að semja sögu allrar heimsmenn-
ingarinnar. En í því fangelsi hefur
verið mikil birta og vistin þar
honum engan veginn eintóm raun,
enda talar hann á öðrum stað um
þá sælu sem hafi að öðrum þræði
verið fólgin í þessari rannsóknar-
iðju sinni.
Grikkland hið forna I—II er
samtals 754 blaðsíður að stærð og
ritið prentað og bundið í Prent-
smiðju Hafnarfjarðar. Bindin eru
einnig seld hvort úm sig þeim er
þess óska.
ÚT ER komin hjá Bókaútgáfu
Menningarsjóðs og Þjóðvinafé-
lagsins síðara bindið af GRIKK-
LANDI HINU FORNA eftir Will
Durant, i þýðingu dr. Jónasar
Kristjánssonar. Fyrra bindið
kom út árið 1967, og er nú
endurprentað um leið og síðara
bindið kemur út i frumútgáfu,
enda var það löngu uppselt.
Ritið nefnist á frummálinu The
Life of Greece, og er annað bindið
í hinu víðkunna ritsafni The Story
of Civilization. Höfundur þess,
ameríski sagnfræðingurinn og rit-
höfundurinn Will Durant, er
heimsfrægur af þessu verki. Áður
hefur birst á íslensku úr sama
„Sweatshirt“ Verð kr. 5.500,—
Hettupeysa Verð kr. 7.800. —
Næstsíðasti dagur ársins
Næstsíöasti dagur ársins
eftir Normu E. Samúelsdóttur.
Beta, húsmóðir í Breiðholti, situr við dagbókarskriftir
og gerir upp líf sitt, hispurslaust og af einlægni. Upp
af slitróttum dagbókarblöðum þar sem renna saman
endurminningar, svipmyndir daglegs lífs og hvers
konar utanaökomandi áreiti rís smám saman heil-
steypt persónulýsing, skýr og trúverðug mynd af
hlutskipti láglaunafólks, húsmæðra fyrst og fremst, í
svefnhverfum Stór-Reykjavíkur. Því nærtæka viö-
fangsefni hafa ekki fyrr verið gerð skil í íslenskri
skáldsögu.
Næstsíöasti dagur ársins
er fyrsta bók Normu E. Samúelsdóttur.
Mál og menning
Trimmgalli
Verðkr. 11.400,-
Jólamarkaðurinn í kjallara
Idnaðarmannahússins Hallveigarstíg 1
Opid til kl. 10 í kvöld
k J