Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
19
Athugasemd frá
Búvörudeild
Sambandsins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá bú-
vörudeild SÍS:
Vegna skrifa Morgunblaðsins í
leiðara sunnudaginn 16. þ.m. vill
Búvörudeild Sambandsins taka
eftirfarandi fram:
í greininni er vísað til viðtals
blaðamanns við verzlunarstjóra
hjá Sláturfélagi Suðurlands og
þar meðal annars haft eftir hon-
um að Sláturfélagsbúðirnar verði
að kaupa þeirra vörur frá þeirra
framleiðsluaðila þ.e. Sambandinu.
Hér mun vera um missögn að
ræða þ.e. Sambandið eða fyrirtæki
þess Kjötiðnaðarstöðin og Afurða-
salan afgreiða ekki og hafa ekki
afgreitt umræddar vinnsluvörur
til Sláturfélagsbúðanna.
Reykjavík 17.12.1979
Búvörudeild Sambandsins.
Fjárfesting í íbúð-
arhúsnæði í ár ná-
lægt 95 milljörðum
FASTEIGNASKRÁ ársins 1979
var lögð fram 1. desember s.l. og
kemur þar m.a. fram að heild-
armat allra fasteigna á landinu
er 2.062.6 milljarðar króna og
hefur því hækkað um 62,8% frá
siðustu skrá.
Fasteignamat hækkar sam-
kvæmt framreiknistuðlum sem
Yfirfasteignamatsnefnd ákveður.
Á þessu ári var ákvörðun nefndar-
innar þannig, að íbúðarhús á
höfuðborgarsvæðinu skyldu
hækka um 60%, aðrar fasteignir
þar með taldar lóðir á höfuðborg-
arsvæðinu skyldu hækka um 55%
og loks skyldu aðrar fasteignir á
landinu hækka um 50%.
Sem dæmi um mat einstakra
fasteigna má nefna að 100 fer-
metra fjögurra herbergja íbúð í
blokk í Arbæ er metin á 23,1
milljón króna, 150 fermetra sér-
milljónir króna og tveggja her-
bergja íbúð, 55 fermetrar að
stærð, er metin á 9,5 milljónir
króna.
Samkvæmt upplýsingum Fast-
eignamats ríkisins hafa eignir að
stærð 2.507.952 rúmmetrar verið
teknar til mats í fyrsta sinn í ár.
Þar af eru 1.426.702 rúmmetrar
íbúðarhúsnæði og bílskúrar.
Ef þessar tölur fara nærri lagi
um nýbyggingar er fjárfesting
landsmanna í íbúðarhúsnæði í ár
nálægt 95 milljörðum og um 35
milljarðar í öðrum byggingum,
eða samtals um 130 milljarðar
króna.
Ætla má að viðhaldskostnaður
húsnæðis á öllu landinu sé nálægt
40 milljörðum króna, ef miðað er
við að hann sé 1,5% af bygg-
ingarkostnaði.
Skipting fasteignamats eftir
hæð við Rauðalæk er metin á 28,5 notkun eigna er þannig:
Stærð Mat
þús. m;í % millj. %
Ibúðarhús og bílskúrar 28.046,9 50,1 1.266,4 61,4
Verslunar- og skrifst.h. 2.940,5 5,3 143,9 7,0
Iðnaðarhús og vörugeymslur 10.770,2 19,3 237,2 11,5
Útihús jarða 6.956,1 12,4 38.0 1,8
Sérhæfðar byggingar 6.434,5 11,5 291,4 14,1
Önnur mannvirki 787,6 1,4 16,3 0,8
Ób. land, ræktun, hlunnindi .69,2 3,4
Landið allt 55.935,8 100% 2.062,6 100%
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA
SÍMINN ER:
22480
í gær var kveikt á jólatré í Kópavogi, en tréð er gjöf til Kópavogsbúa frá vinabæ Kópavogs í Sviþjóð,
Nyköping. Forseti bæjarstjórnar Kópavogs, Skúli Sigurgrímsson og Bjarni Þór bæjarritari veittu því
viðtöku úr hendi fulltrúa sendiráðs Sviþjóðar á íslandi. Ljósm: Kristján.
BARNAREIÐHJÓL-ÞRÍHJÓL
Mesta úrval landsins af reiðhjólum og þríhjólum,
fæst hjá okkur.
Góð varahluta- og viðgerðaþjónusta.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Myndir úr
rqunveruleík
ÖRN&ÖRIYGUR
VESTURCÖTU 42, SÍMI 25722
Skáldsaga eftir Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur
Aöalheiöur er löngu landskunn fyrir afskipti sín af
verkalýös- og félagsmálum. í bók sinni segir hún frá
saklausum börnum og hrösunargjörnu fólki, barnaverndar-
nefnd og betrunarstofnunum, fangelsum og fínum heimil-
um, og allt heföi.þetta getaö gerst.