Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
27
Fólk og fréttir í máli og myndum
• Mikið er rætt um það þcssa dagana, að Hamburger SV og
Barcelona kunni að hafa áhuga á að skipta á ieikmönnum, þ.e.a.s. að
Alan Simonsen fari til IISV og Kcegan fari í hans stað til Barcelona.
Talið er að báðir hafi áhuga á þessum skiptum, en tíminn mun leiða í
ljós hvað gerist.
Það er gamalkunnugt vanda-
mál, að alls kyns ferfætlingar
hlaupa skyndilega inn á knatt-
spyrnuvelli og trufla það sem þar
fer fram. Yfirleitt eru þetta hund-
ar og kettir sem sloppið hafa úr
misjafnlega strangri gæslu eig-
enda sinna. T.d. líður vart sá
leikur suður í Keflavík, að einn
eða fleiri hundar ólmist ekki um
völlinn, gangi þar örna sinna og
geri fleiri óspektir. Og skemmst er
þess að minnast, að svartur og
lítill köttur var á músaveiðum inni
í marki Zbrojovka Brno á Mela-
vellinum í haust.
En hundar og kettir eru ekki
alvarlegt mál, en dæmi eru þess,
að önnur dýr hafi brölt inn á
leikvelli, ekki öll jafn meinlaus.
Skammt frá leikvangi einum í
sveitahéraði í Argentínu átti
bóndi nokkur lítinn afgirtan gras-
völl. Þar geymdi hann voldugasta
nautið sitt, sem hafði það m.a. til
brunns að bera að vera afar
skapstirt. Eitt sinn átti heimaliðið
í vök að verjast og lið gestanna
var í þann mund að ganga þannig
frá leiknum, að heimaliðið ætti
ekki viðreisnar von, þegar bóndi
gerði sér lítið fyrir og sleppti
tudda út á völlinn. Þar með var
þeim leik lokið.
Öðrum leik lauk jafn skyndi-
lega, en hann fór fram í Kongó.
Var skammt til leiksloka, þegar
hlébarði kom skokkandi inn á
leikvöllinn. Var leiknum frestað
um óákveðinn tíma. Annars stað-
ar í Afríku truflaðist leikurinn
þegar híena hóf að elta leikmenn
glefsandi og urrandi. Var henni
lógað og lék grunur á að hún hefði
verið með hundaæði.
Furðulegasta dæmi þess að leik-
ur hafi stöðvast átti sér hins vegar
stað í Eþíópíu fyrir nokkrum
árum. Þar fór þá fram meiri
háttar knattspyrnuleikur og þegar
síðari hálfleikur var hálfnaður var
staðan enn jöfn, 0—0. Allt gat
gerst. Og allt gerðist! Engisprettu-
faraldur gekk þá yfir, ekki aðeins
völlinn heldur einnig borgina og
nærsveitir. Var fljótlega sýnt að
frekari knattspyrnuiðkun var
óhugsandi með öllu. Var leiknum
frestað.
OOO
Benny Nielsen, hinn kunni
danski knattspyrnulandsliðs-
maður, leikmaður með Ander-
lecht, verður hugsanlega að leggja
skóna á hilluna vegna meiðsla.
Hann verður skorinn upp í hné um
jólin og skýrast þá málin.
OOO
Gerry Daly, írski landsliðs-
maðurinn hjá Derby, fékk stór-
grýti í höfuðið, er írska lýðveldið
lék gegn Norður-írum á Windsor
Park í Belfast eigi alls fyrir löngu.
Þurfti að sauma fjögur spor á
höfði Daly.
OOO
Á sama tíma og West Ham
tapaði 0—3 fyrir Shrewsbury í 2.
deildinni í Englandi, gerðist eftir-
farandi: Keith Robson og Alan
Taylor skoruðu báðir fyrir Nor-
wich. Bryan Robson skoraði fyrir
Sunderland og Bill Jennings skor-
aði sigurmark Orient gegn Notts
County. Allir eru kappar þessir
fyrrum framherjar hjá West
Ham, allir voru seldir, þar sem
ekki var pláss fyrir þá í aðalliði
West Ham!
OOO
Eftir að Danny Blachflower
sagði af sér sem landsliðseinvald-
ur Norður-írlands, var Terry Neill
boðið starfið, en Neill er stjóri hjá
Arsenal. Hann hafði ekki áhuga.
OOO
Talið er víst, að ítalska liðið
Napólí hafi boðið slíka upphæð í
Manfred Kaltz, þýska landsliðs-
bakvörðinn og fyrirliða Hamburg-
er SV, að hvorki félag eða leik-
maður sjái sér fært að neita.
OOO
Valur og FH eiga flesta lands-
liðsmennina í handknattleik frá
upphafi, 24 leikmenn hvort félag,
Víkingur á 21 landsliðsmann og
Fram 20 stk. Síðan kemur frekar
stórt gat niður í næsta sæti, en
það skipa Haukar með 13 menn,
IR og KR eiga 10 landsliðsmenn,
önnur færri. Athyglisvert er að
sjö erlend félög eiga leikmenn með
landsliði íslands, það eru Danker-
sen (2), Göppingen (2) og einn
hvert: Olympia, HSV, Donsdorf,
Árhuus KFUM, Lugi Lund. Barce-
lona bætist síðan í hópinn í næstu
landsleikjum, auk þess leika
íslenskir landsliðsmenn með
Grambke og sá þriðji er hjá
Dankersen þó ekki hafi Jón Pétur
leikið landsleiki sem leikmaður
með þýska liðinu.
OOO
Sepp Meier er farinn að æfa
knattspyrnu á nýjan leik, en sem
kunnugt er slasaðist þessi snjalli
markvörður illa í umferðarslysi í
haust. „Ég ætla að ljúka ferli
mínum sem markvörður en ekki
sem krypplingur," er haft eftir
kappanum.
OOO
Kurt Jara, austurríski lands-
liðsmaðurinn hjá MSV Duisburg,
er óánægður með þjálfara liðsins,
Heinz Höffer. Um þverbak keyrði
hins vegar þegar Jara lýsti því
yfir í sjónvarpsviðtali, að hann
myndi ekki leika með Duisburg
fyrr en að Höffer hefði verið
rekinn. Höffer sem var að horfa á
sjónvarpið heima hjá sér, varð
fyrri til og setti Jara út úr liðinu.
OOO
Hjátrú skipar háan sess meðal
knattspyrnumanna víða um heim,
ekki síst í Suður-Ameríku. í úr-
slitaleik nokkrum gerðist það eigi
alls fyrir löngu, að annað liðið
hafði náð allgóðum tökum á leikn-
um og skorað eitt mark. Var síðari
hálfleikur u.þ.b. hálfnaður þegar
einn leikmanna lakara liðsins
meiddist inni í vítateig mótherj-
anna. Nuddari liðsins reyndist
hins vegar vera frístundakuklari
og hann var ekki fyrr kominn inn
á völlinn en hann þreif dauðan
frosk úr tösku sinni og var nafn
markvarðarins ritað á bak frosks-
Páll Björgvinsson Víking lék íyrir skömmu sinn 300. leik með
meistaraflokki Vikings í handknattleik. Myndin er tekin við það
tækifæri en þá voru Páli færðir stórir blómvendir. Leikurinn var því
mikill blómaleikur hjá Páli, í tvennum skilningi. Lið hans sigraði Val
og blómstraði Páll í lciknum. auk þess sem hann fékk þessi fallegu
blóm.
Ljósm.: Kristján.
ins. Hóf nuddarinn miklar sær-
ingar og galdraþulur og var langt
kominn þegar dómarinn kom að-
vífandi og rak hann af leikvelli.
En of seint, markvörðurinn var
miður sín og gersamlega heillum
horfinn, hann skoraði tvö sjálfs-
mörk áður en yfir lauk og lið hans
tapaði 1—2.
OOO
Jose Martinez Sanchez, betur
þekktur einfaldlega sem Pirri,
fyrirliði Real Madrid, hefur hugs-
að sér að leggja skóna á hilluna.
Hann er 34 ára og hefur m.a.
leikið 41 landsleik fyrir Spán. „Ég
hef leikið knattspyrnu í 16 ár, það
er búið að sparka í mig í 16 ár,
þetta er orðið gott í bili,“ er haft
eftir kappanum. Pirre er íslensk-
um knattspyrnuáhugamönnum
ekki með öllu ókunnur. Hann lék
bæði gegn Fram og ÍBK í Evrópu-
keppnunum.
OOO
Allar líkur eru nú á því, að
Ipswich selji hinn marksækna
framherja sinn, Alan Brazil, til
Celtic. Félagið hefur þrjá snjalla
kappa í sigtinu sem arftaka Braz-
il, þá Alan Biley frá Cambridge,
Ray Hankin frá Leeds og Derek
Parlane frá Rangers.
OOO
Franska lögreglan lét 411 öku-
menn meðal áhorfenda að 1. deild-
arleik þar í landi blása í blöðru.
Reyndust 410 þeirra vera meira
eða minna drukknir.
OOO
Ronnie Hellström, markvörður-
inn kunni hjá Kaiserslautern,
klæðist jafnan skærgulri peysu í
markinu. Ástæðuna segir hann
vera, að vegna þess hve skær
peysan er, skjóti mótherjar óafvit-
andi beint á hann, þar sem þejr
noti gjarnan hinn skæra lit til
þess að áætla hvar markið er,
þegar lítill tími er til umhugsunar
í vítateignum.
OOO
ítalskur uppfinningamaður hef-
ur stungið upp á því að framvegis
verði notaðir ferkantaðir knettir í
knattspyrnu...
Það er oít skemmtilcgt að íylgj-
ast með svipbrigðum þjálfara
þegar lið þcirra cru að keppa.
Þar ríkir ekki síður spenningur
en hjá leikmönnum liðanna. Pét-
ur Bjarnason er búinn að vera í
eldlínunni i mörg ár og þjálfa
mörg lið. Nú er Pétur þjálfari hjá
meistaraflokki Fylkis sem leikur
í 2. deild. Ilér að ofan má sjá
Pétur lifa sig inn í leikinn og
greinilega fylgist hann vel með
öllu.
7VL3HB&-
mm MMP
• Tvær sætar og ungar eyjadömur slappa af eftir góðan sundsprett i
sundhöllinni í Vestmannaeyjum. En þær tóku þátt í sundmeistaramót-
inu sem þar fór fram á dögunum.
Ljósm.: SÍKurKcir.
: 11 HET ELFTAL VAN DE WEEK
Preud’homme
• il (Standard)
Bastijns Dalving Schepens Mariman
(Cl. Brugge) (Lokeren) (SVC Brugge) (Antwerp)
Geypen T. Haleydt Meeuws Helleputte
(Beringen) (Waregem) (Cl. Brugge) (Luik)
í' Gudjohnssen Miicher II
(Lokeren) (Beerschot)
Vierde selektie voor Walter Meeuws; tweede voor Michel Preud-
1 'homme, Fons Bastijns, Herman Helleputte en René Mucher; eer- ste voor de anderen. 1
• Þetta rákumst við á í belgisku blaði nú fyrir skömmu.
Islendingurinn Arnór Guðjohnsen í liði vikunnar.