Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
29
Þjóðsaga gefur
út ljóðabók
eftir Baldur
Pálmason
Björt mey
BÓKAÚTGÁFAN Þjóðsaga hef-
ur gefið út nýja Ijóðabók eftir
Baldur Pálmason. Nefnist hún
„Björt mey og hrein“. Bókin er 80
blaðsíður, hönnuð og skreytt frá
hendi Hafsteins Guðmundssonar.
Baldur Pálmason tileinkar bók-
ina móður sinni, Margréti Kristó-
fersdóttur frá Köldukinn á Ásum.
Ljóðabókin skiptist í þrjá kafla,
og hrein
Rismál, Dagmál og Hádegi. Höf-
undur ritar nokkur orð til lesenda
og getur þess, að fyrir 2 árum hafi
Þjóðsaga gefið út ljóðabók hans,
„Hrafninn flýgur um aftaninn",
en það hafi verið ljóð ort á síðasta
aldarfjórðungi. Nú birtist í „Björt
mey og hrein“ ljóð æskuáranna.
Bókin er sett og prentuð í Odda
h.f., en bundin í Sveinabókbandinu
h.f.
Hiö íslenzka bókmenntafélag:
Samþykkir að koma
á fót Stof nun
Jóns Sigurðssonar
AÐALFUNDUR Hins íslenzka bókmenntafélags samþykkti á sunnu-
dag að koma á fót sjálfseignarstofnun, sem beri nafn Jóns
Sigurðssonar forseta og heiti Stofnun Jóns Sigurðssonar. Til
stofnunarinnar verði lagðar þær 10 milljónir króna, sem ríkisstjórnin
veitti Hinu íslenzka bókmenntafélagi í minningu hundruðustu ártíðar
Jóns, og önnur framlög sem bcrast kynnu af sama tilefni.
Sigurður Líndal forseti félags-
ins minntist Jóns Sigurðssonar og
bar síðan fram tillöguna um
Stofnun Jóns Sigurðssonar. Til-
lagan var samþykkt án umræðna
með öllum greiddum atkvæðum.
Stofnuninni er ætlað að styðja
Hið íslenzka bókmenntafélag og
þá einkum með því að kaupa og
reka fasteignir x þágu félagsins og
styðja það með fjárframlögum og
öðrum áþekkum hætti eftir því
sem efni standa til.
Stjórn og fulltrúaráð Hins
íslenzka bókmenntafélags fer með
stjórn stofnunar eða setur henni
sérstaka stjórn. Skipulagsskrá
stofnunarinnar verður lögð fyrir
næsta aðalfund og að fengnu
samþykki hans leitað staðfest-
ingar forseta íslands á skipu-
lagsskránni.
Á aðalfundinum á sunnudag
gerði Sigurður Líndal grein fyrir
starfsemi félagsins á liðnu ári og
lagði fram reikninga, sem voru
samþykktir samhljóða. Endur-
skoðunarmenn félagsreikninga
voru endurkjörnir einróma þeir
Guðmundur Skaftason og Gústaf
Á. Ágústsson. Sveinn Einarsson
þjóðleikhússtjóri flutti erindi um
leikstjórn. Fundarstjóri var Óskar
Halldórsson og fundarritari Ólaf-
ur Pálmason.
Fundarmenn voru 28, en félags-
menn eru nú 1999.
Aðventukvöld
og „litlu jólin“
á Grenivík
Grenivík, 17. des. 1979.
í GÆRKVÖLDI var haldin
aðventusamkoma hér í Greni-
víkurkirkju. Séra Bolli
Gústavsson sóknarprestur í
Laufási prédikaði, kirkjukór-
inn söng sálma „Nóttin var
sú ágæt ein“ og „f Betlehem
er barn oss fætt“ og börn úr
sunnudagaskólanum fluttu
helgileik um fæðingu frelsar-
ans.
Að lokum sungu allir
viðstaddir jólasáiminn
„Heims um ból“. Grenvík-
ingar fjölmenntu á aðventu-
kvöldið og var kirkjan þétt
setin.
í gær voru „litlu jólin“ í
barnaskólanum og er fólk nú
almennt farið að komast í
jólaskap þrátt fyrir það að
jörð er auð og allt útlit fyrir
að hér verði „rauð jól“.
Tíðin hefur verið með ein-
dæmum góð undanfarið, hlýtt
og milt og minnir helst á
vorveður. Gæftir hafa verið
góðar og bátar aflað með
ágætum.
Jólakveðjur frá Grenivík,
— Vigdís.
Leikfélag Akureyrar
komið heim úr fyrstu
utanlandsferð sinni
— Rætt við Odd Björnsson leikhússtjóra
Sagði hann það mál manna
á sýningunni að það sem L.A.
hefði haft fram að færa væri
fyllilega sambærilegt við það
sem kom fram frá leikurum
frá hinum Norðurlöndunum
og sjálfur kvaðst Oddur vera
þeirrar skoðunar að íslenskt
leikhús væri ekkert síðra en
þarna gat að líta, þó hann
hefði að vísu ekki getað séð
allar sýningarnar. Auk Leik-
félags Akureyrar voru þarna
leikfélög frá Svíþjóð, Noregi,
Danmörku og Finnlandi, og
að auki gestaleikhópur frá
Washington í Bandaríkjun-
um.
Akureyri og víðar. Hefði það
vakið furðu, að til dæmis á
síðasta ári hefðu um 14
þúsund manns séð leiksýn-
ingar L.A., en íbúar Akur-
eyrar eru aðeins rösklega 12
þúsund talsins. Þá mætti
einnig geta þess að nú í haust
væru yfir 6 þúsund gestir
búnir að koma á sýningar
félagsins. Einnig hefði hin
mikla gróska í leikhúslífi á
Akureyri vakið athygli fyrir
það að þar skuli vera unnt að
frumsýna fimm verk á ári, að
fastráðnir leikarar skuli að-
eins vera 8 talsins og styrkur
til leikfélagsins aðeins einn
þriðji af „heildarútgerðinni".
Leikritið Fyrsta öngstræti
til hægri er annað verkefni
L.A. á þessu ári, því í haust
var frumsýnt verkið Galdra-
karlinn frá Oz, og voru þau
bæði sýnd fyrir fullu húsi er
farið var utan. Hæfust nú
sýningar á þeim aftur sagði
Oddur, og síðan verður frum-
sýnt leikritið Puntilla og
Matti um miðjan janúar.
Sem fyrr sagði er Oddur
Björnsson leikhússtjóri hjá
Leikfélagi Akureyrar, og er
þetta annað árið sem hann
gegnir því starfi, en hann er
einnig vel þekktur leikrita-
höfundur.
— AH.
„Tungumálaerfiðleikar gerðu
áhorfendum ekki verulega
erfitt fyrir, enda er leikritið
ákaflega auðskilið, en að
auki fengu áhorfendur úr-
drátt úr verkinu fyrir sýn-
ingu,“ sagði Oddur. „Var
sýningum okkar vel tekið, og
einkum fengu þær Sunna
Borg og Svanhildur Jóhann-
esdóttir góða dóma fyrir leik
sinn, en þær leika aðalhlut-
verkin í leikritinu. Fékk sýn-
ingin þá dóma að hún væri
fersk og hressileg, og upp-
setning Þórunnar Sigurðar-
dóttur leikstjóra vakti tals-
verða athygli, svo og leik-
mynd Sigurjóns Jóhannssón-
ar.“
Ferðalagið var leikhópnum
Leikkonurnar Sunna Borg og Svanhildur Jóhannesdóttir i
hlutverkum sinum í leikriti Arnar Bjarnasonar, Fyrsta öngstræti
til hægri. Páll Pálsson.
NORRÆN leikhúsvika at-
vinnuleikhúsa utan höfuð-
borganna var nýlega haldin
í Örrebro í Svíþjóð, nánar
tiltekið dagana 3. til 8.
desember síðastliðinn, og að
þessu sinni var íslenskt
leikhúsfólk í fyrsta sinn
meðal gesta. Það var hópur
frá Leikfélagi Akureyrar
sem fór utan, en þar nyrðra
er starfrækt eina atvinnu-
leikhúsið utan Reykjavíkur.
Morgunblaðið ræddi stutt-
lega við Odd Björnsson
leikhússtjóra hjá L.A. af
þessu tilefni, er hópurinn
kom heim aftur.
„Þessi ferð var ákaflega
lærdómsrík og skemmtileg,
og að okkar mati komum við
heim reynslunni ríkari,"
sagði Oddur. „Þarna voru
margar leiksýningar á dag,
alla dagana, víðs vegar um
bæinn, og samhliða fóru
fram námskeið og ráðstefnur
um eitt og annað er snertir
leikhús og starfsemi leikfé-
laga.
Við fórum utan með leik-
ritið Fyrsta öngstræti til
hægri, eftir Örn Bjarnason,
sem við höfum sýnt í haust á
Akureyri við mjög góðar
undirtektir. Sýndum við leik-
ritið tvisvar sinnum og feng-
um ágætar undirtektir."
Oddur sagði að þetta væri í
fyrsta skipti sem Islendingar
tækju þátt í leikhúsviku af
þessu tagi, og er þetta jafn-
framt í fyrsta skipti sem
Leikfélag Ákureyrar fer með
sýningu út fyrir landstein-
ana.
Oddur Björnsson leikhússtjóri.
og leikhúsinu að kostnaðar-
lausu, þar sem allur kostn-
aður var greiddur ur sam-
norrænum sjóðum. Alls fóru
utan átján manns og tóku
þau með sér alla búninga og
leikmynd einnig, að húsgögn-
un undanskildum þó.
Á ráðstefnum tengdum
leikhúsvikunni sagði Oddur
það hafa vakið mikla athygli,
hve góð aðsókn væri að
íslenskum leikhúsum, bæði á