Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
31
VINNUVEITENDASAMBAND ÍSLANDS hefur
haft þann sið að láta mála myndir af fyrrverandi
formönnum sínum. Hér afhjúpar Gyða Bergs,
eiginkona Jóns H. Bergs, mynd af manni sínum, en
hann var þriðji formaður sambandsins á eftir
Kjartani Thors og Benedikt Gröndal. Jón var
formaður sambandsins frá 1971 til 1978 þegar Páll
Sigurjónsson tók við. Baltasar málaði myndina.
Lögreglan í æsilegum
eltingaleik við unga þjóf a
LÖGREGLAN í Keflavík lenti
aðfaranótt sunnudagsins í æsi-
legum eltingaleik við unga þjófa,
sem höfðu verið staðnir að verki í
Grindavík. Lauk eltingaleiknum
í Kópavogi. þar sem lögreglunni
tókst að króa af bíl unglinganna.
Þeir reyndu að hlaupa lögreglu-
þjónana af sér en þeir voru
piltunum snarari i snúningum og
gátu gripið piltana.
Það var aðfararnótt sunnudags-
ins að piltarnir, þrír að tölu, tveir
15 ára gamlir og einn 16 ára, voru
staðnir að verki í Grindavík, þar
sem þeir höfðu stolið hljómflutn-
ingstækjum að verðmæti ein
milljón króna og einhverju af
fatnaði. Eigandi verzlunarinnar
kom að piltunum en þeim tókst að
sleppa úr klóm hans. Þutu þeir
upp í bifreið, sem þeir voru á og
óku brott á miklum hraða. Fyrst
lögðu þeir leið sína til Keflavíkur
en snéru svo við með Keflavíkur-
lögregluna á hælunum, en henni
hafði verið gert viðvart. Þrátt
fyrir hálku á Keflavíkurveginum
óku piltarnir á rúmlega 100 km
hraða og máttu því teljast heppnir
að verða sér ekki að voða með
þessum ofsaakstri.
Lögreglunni í Hafnarfirði voru
gerð boð og sat hún fyrir piltunum
á þremur stöðum og reyndi að
stöðva þá með ljósmerkjum og
JNNLENT
öðrum tiltækum ráðum en þeir ekið bifreiðinni. Sá hefur oft verið
sinntu því ekkert. Loks barst staðinn að bílþjófnaði og hefur því
leikurinn í Kópavog, þar sem tókst nokkra reynslu í akstri þó ekki
að króa piltana af í lokaðri götu. hafi hann náð aldri til þess að
Kom í ljós að elzti pilturinn hafði hljóta ökupróf.
Blárefirnir komn-
ir í Eyjaf jörð
Grenivik í desember 1979.
ÞESSI mynd er af bláref eins og þeim sem komu í refabúin í
Eyjafirði fyrir nokkrum dögum, frá Skotlandi.
Refunum var veitt móttaka á Akureyrarflugvelli af starfs-
mönnum búanna og vopnuðum lögreglumönnum, og eru þeir nú í
sóttkví i búunum f jórum.
— Vigdís
Neskaupstaður:
Opinber
rannsókn
á meintu
misferli
EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur
að undanförnu haft til athugunar
mál fyrrverandi sparisjóðsstjóra
við Sparisjóð Norðfjarðar, en hon-
um var vikið úr starfi s.l. sumar
vegna gruns um fjármálamisferli í
sparisjóðnum. Bankaeftirlit
Seðlabankans hefur farið yfir
bókhald sparisjóðsins og sent
ríkissaksóknara skýrslu um málið.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk í gær hjá Jónatan
Sveinssyni saksóknara, mun
ríkissaksóknaraembættið óska
eftir því einhvern næstu daga að
opinber rannsókn fari fram á
meintu misferli sparisjóðsstjór-
ans.
Sjómaðurinn
ófundinn
EKKERT hefur ennjiá
spurst til Friðriks As-
mundssonar stýrimanns á
Sigurbergi GK, sem hvarf í
Hull í Bretlandi 28. nóv-
ember s.l. Víðtæk leit hefur
verið gerð að Friðriki en
hún hefur engan árangur
borið.
AUGI.ÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHorgtMibtabífr
framhjá neinum
sem hlustar á þessa
glötu að um snilli
Árna á hljóðfæri
sitt eru engar of-
sagnir.
— Enda
leika ekki nema
snillingar með
Quincy Jones.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
ÁSAMT HONUM LEIKA Á PLÓTUNNI
Mjke Melwoin á píanó
Peter Robinson á strengjavél,
Mitch Holder á gítar,
Jaoe Porcaro á Percussion,
David Grigger á trommur
og svo konsertmeistarinn Jerry Vinci.
LAUQAVEGI33 - SfM111508