Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.12.1979, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979 35 get ekki yfir þeim þagað, og vil því gjarnan gefa fleirum hlutdeild í slíkum verðmætum. Héðinn Maríusson er löngu þjóðkunnur formaður, aflamaður og veiðimaður. Hann er svo glöggskyggn náttúruskoðandi, að til dæmis er því við brugðið heima á Húsavík, að Héðinn þurfi ekki annað en líta ofan í lestarnar á bátunum, þegar þeir koma úr róðri, og geti þá sagt samstundis af hvað miðum þorskurinn sé, hvort heldur sé af Brekunum, frá Mánáreyjamiðum, Rauðanúps- miðum eða vestan úr Flóanum. Mörg merkileg dæmi mætti nefna þessu til staðfestingar og einnig um það, hversu fosjáll og fengsæll hann var og hefur verið í selveiði- skap vöðuselsins á vetrum og útmánuðum. Og margar unaðsleg- ar minningar á ég frá selaróðrum með Héðni þegar ég var strákur á Húsavík og hjá honum og föður hans naut ég margra veiðisagna en þó umfram allt lærði ég hjá þeim að meta veiðiskapinn, bera virðingu fyrir honum, lærði að njóta hans og meta hann á þann veg, sem bezt má, hvaða veiðiskap sem um var að ræða. Það gefur auga leið af því, sem hér hefur sagt verið, að Héðinn Maríusson er óvenjulegur mann- kostamaður. Hann á í fórum sínum geysilega djúpan og ríkan kærleika, mikla gleði og gleði- gjafa, dæmafáa skaphöfn og dag- farsprútt jafnaðargeð, umtals- betri um náungann en flestir aðrir, enda aldrei átt í útistöðum við nokkurn mann. Og það tel ég Héðni hvað mest til gildis og hróss, að faðir minn mat hann umfram aðra menn er honum voru samtíða, og þótti honum þó vænt um alla menn og konur, svo ég tali nú ekki um börnin. Á þessum merkisdegi Héðins Maríussonar sendi ég honum allar mínar beztu kveðjur og óskir með djúpu þakklæti til hans og hinnar ágætu Helgu, konu hans, og barna, fyrir þá miklu vináttu, sem þau hafa fyrr og síðar sýnt mér og mínu fólki. Lifðu heill, ágæti vinur, áttræði unglingur! Jakob V. Hafstein. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU Lagt á mannvitsbrekku Viktor A. Guðlaugsson: SVO ER LÍFINU LIFAÐ Ljóð Útgefandi höfundur 1979. LJÓÐIN í Svo er lífinu lifað eru mörg eins konar spakmæli. Höf- undurinn raðar orðum í ljóð til að þau komist betur til skila. Hann yrkir til dæmis um leitina miklu sem bros barns og leikir sýna „hve langt/ þig hefur borið/ afvega". Meira um börn á barnaári: Meðan þú brosir eða grætur áttu hylli okkar óskipta. Þegar orðin fæðast af vörum þínum gerumst við þér fráhverf. Því elskum við þau ekki, að þau eru bergmál mistaka okkar. (Barn). Um lífið og dauðann, ástina og þjóðmálin og einkum það „að lifa/ í núinu“ yrkir Viktor A. Guð- laugsson. Sum ljóðanna eru söng- textar við kunn lög: We shall overcome, Amazing grace. Yfir- leitt tekst höfundi best þegar hann takmarkar sig mest, freistar þess að segja alkunn sannindi í sem fæstum orðum. Ver gengur þegar þarf að koma á framfæri pólitískum ádrepum (Stjórnmála- maður) eða draga upp myndir af háska mannkyns (Stríð). Ýmsar náttúrustemningar eru laglegar orðaðar og vitna um það að höfundurinn hefur kynnt sér gamlan og nýjan skáldskap. Svo að dæmi sé tekið af Ijóðinu Á brattann er hér á ferð höfundur sem leggur ótrauður á mannvits- brekkuna. Hann á til hagleik í máli og bað veldur hví m a qA ouu; Viktor A. Guðlaugsson teiknaður af Bolla Gústafssyni. verður hann dæmdur úr leik fyrir Adam fer fint i veturinn. Því nú er hann birgur af glæsilegum hátíðar- og hvunndagsfatnaði. Peysu-, Combi- og Tweedföt i kippum, stakar tweed- og flannelsbuxur, stakir tweed jakkar, vesti og skyrtur. Ailt fatnaður „a la Adam“, enda flott eftir því. Littu inn og kynntu þér málið. LAUGAVEGI47 SÍM117575

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.