Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
37
Búvörudeild
seldi 35 hross
til Kanada
HESTAÚTFLUTNINGUR
Búvörudeildar SÍS hefur
farið vaxandi síðustu árin
og voru nýlega fluttir í
fyrsta sinn í 20 ár 35
hestar til Kanada og
fékkst fyrir þá svipað verð
og í Þýskalandi, sem hefur
fram til þessa verið eitt
stærsta sölulandið að því
er Magnús Ingvarsson hjá
Búvörudeild tjáði Mbl.
Magnús Ingvarsson sagði að
nokkuð hefði dregið úr hrossasölu
til Þýskalands að undanförnu og
væri ástæðan verra tíðarfar og
versnandi efnahagur manna, enda
væri hestamennska sú íþrótt sem
menn spöruðu fyrst við sig þegar
harnaði í ári. Sagði Magnús að
Búvörudeildin hefði að undan-
förnu undirbúið hrossasölu til
Kanada og nýlega hefði íslenski
hesturinn verið sýndur í Frakk-
landi og slegið þar í gegn og væru
þessi tvö lönd væntanlega svipaðir
markaðir og Þýskaland hvað
stærð áhrærði og hægt að leita
meira á þá ef drægi úr sölu til
Þýskalands.
Svipað verð fékkst fyrir hestana
er seldir voru til Kanada og
fengist hefur í Þýskalandi, þ.e.
fyrir innflutning til Þýskalands
þarf að greiða 25% toll, en engan í
Kanada, en nettóverð væri svipað
þegar flutningsgjöld hefðu verið
dregin frá. Næsta hrossasala Bú-
vörudeildarinnar fer fram um
mánaðamótin janúar—febrúar.
Þessar telpur efndu fyrir nokkru til hlutaveltu til ágóða fyrir
Dýraspítala Watsons á Kirkjuteigi 25. — Þær söfnuðu kr. 8300.
Telpurnar heita Vigdís Stefánsdóttir og Katrin S. Bjarnadóttir.
Þessir ungu menn söfnuðu fyrir nokkru 4000 kr. til „Sundlaugar-
sjóðs“ Sjálfsbjargar, landssamb. fatlaðra, er þeir héldu hlut-
aveltu, en drengirnir eiga heima uppi í Mosfellssveit. Þeir heita
Róbert Weissmann og Hafsteinn Kristjánsson.
Suður i Hafnarfirði efndu þessar stúlkur, Steinunn Bára
Þorgilsdóttir og Svava Arnardóttir, til hlutaveltu til ágóða fyrir
„Flóttamannahjálp Rauða krossins“. Þær söfnuðu 7000 krónum.
Þessar skólastúlkur, sem heima eiga i Borgarnesi, efndu fyrir
skömmu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og
fatlaðra. Söfnuðu þær rúmlega 17000 krónum til félagsins.
Telpurnar heita Ásdis Dan Þórisdóttir og Kristín Ólafsdóttir.
Tvær ómótstædilegar med
WILLIE NELSON
Hin þýöa rödd Willie Nelson, hefur aldrei notiö sín betur en á þessum tveim
frábæru plötum, enda eru þær öllum tónlistarunnendum ómissandi.
WlLLIF. NELSON
Stárdlist
Stardust
Á plötunni „Stardust" syngur Willie
Nelson á sinn óviöjafnanlega hátt, nokk-
ur fallegustu lög allra tíma. M.a. perlur
eins og All of Me — Blue Skies — Sunny
Side of the Street — Georgia On My
Mind — Unchained Melody — o.fl.
Verð kr. 8.750.-
""’AS
&
Pretty Paper
Glæný jólaplata. Willie Nelson glæöir nokkur sígild jólalög nýju lífi meö
flutningi sínum á þessari einstöku jólaplötu, sem tvímælalaust er
ein besta jólaplata er litiö hefur dagsins Ijós.
Meöal þeirra laga sem er aö finna á Pretty Paper
er m.a. White Christmas — Jingle Bells — Rudolf
the Red Nosed Reindeer — Santa Claus is
Coming to Town — Frosty the Snowman —
Oh Little Town of Betlehem.
Verð kr. 8.750,-
( KARNABÆR
Laugavegi 66 — Glæsibæ — Austurstræti.22
Heildsöludreifing
stoioorh#
•ímar 85742 — 85055