Morgunblaðið - 18.12.1979, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
Hann spyr hvar ég geymi
skartgripina mína?
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Öryggisspilamennska er yfir-
leitt ekki ofariega í huga manns
þegar hlindur kemur upp og spil
virðist einfalt. Hugsanlegur yfir-
slagur skiptir marga meira máli
en einföld trygging ef svo má að
orði komast. En spilarinn í suð-
ur, i spilinu að neðan, var ekki í
vafa um hvernig vinna mætti
spilið ætti vestur öll trompin.
Suður gaf og allir voru á hættu.
Norður S. Á92 H. ÁD87 T. 1052
Vestur L. KD3 Austur
S. DG108 S. -
H. K103 H. G962
T. 974 T. G86
L. G108 Suður S. K76543 H. 54 T. ÁKD3 L. Á L.976542
COSPER
Þér eruð grænmetisæta, ekki satt?
í jólaumf erðinni
Hin mikla umferð, sem jafnan
verður í desembermánuði hefur
orðið kveikjan að eftirfarandi
línum, en þær fjalla um hvað gera
þarf og hvers þarf að gæta í
jólaumferðinni:
„Á þessum árstíma er ein mesta
umferð í þéttbýli hvarvetna á
landinu og gildir það sjálfsagt um
hvaða borg og bæ sem er, en
auðvitað mjög misjöfn og mis-
hættuleg. Mig langar til að senda
Suður var sagnhafi í sex spöð-
um, fékk út laufgosa, sem hann
tók og spilaði strax lágu trompi.
Auðvitað ætlaði hann að láta
níuna frá blindum léti vestur
áttuna. En vestur stakk tíunni í
milli og legan kom í ljós þegar
tekið var með ás. Þá var næsta
mál að fækka trompunum á hend-
inni. Til þess var bara ein leið og
suður trompaði laufdrottninguna.
Og eftir að hafa tekið tígulslagina
þrjá svínaði suður hjarta, tromp-
aði laufkónginn, spilaði hjarta á
ásinn og þegar hánn hafði tromp-
að hjarta heima var staðan þessi:
Vestur
S. DG8
H. -
T. -
L. -
Norður
S. 92
H. 8
T. -
L. -
Suður
S. K7
H. -
T. 3
L. -
Austur
S. -
H. G
T. -
L. 97
Enn hafði vörnin ekki fengið
slag og vestur var orðinn hræddur
um trompslagina sína. Og ekki að
ástæðulausu því næst spilaði suð-
ur tígulþristinum og vestur gat
fátt gert. í reynd trompaði hann
með gosanum en varð þá að spila
frá trompdrottningunni í næsta
slag — slétt unnið.
BÓKMENNTAVIÐBURÐUR
Hannes Fétursson Um ^kapefur
KVÆEAFYLQSNI haiÆIson
í þessari bók er brugðið upp
eftirminnilegum svipmynd-
um af Jónasi Hallgrímssyni,
lífi hans og list. Og Hannes er í senn nógu kröfuharð-
ur fræðimaður og listfengur rithöfundur til að fjalla
um þetta efni á þann hátt sem því er samboðinn. Bók
hans er reist á víðtækri heimildakönnun og snilldarvel
rituð.
> Bræðraborgarstig 16 Sími 12923-19156
„...lestur bókarinnr er skemmtun og hátíð sem
heídur áfram allt kvöldið og alla nóttina og langt
fram á morgun, og allt uns síðasta blaði er flett.“
(JS/Tíminn). „Útkoma Kvæðafylgsna er mikill bók-
menntalegur viðburður.“ (Jón Þ. Þór/Timinn).
„Eins og vænta mátti er öll bók Hannesar hin læsileg-
asta enda skrifar þar skáld af umhyggju og ástúð um
annað skáld.“ (Heimir Pálsson/Helgarpósturinn).
„Vinnubrögð Hannesar eru einstaklega vönduð og
oft til hreinnar fyrirmyndar.“ (Helga Kress/Dag-
blaðið).
— í einu orði sagt: KJÖRGRIPUR
I
ii i