Morgunblaðið - 18.12.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1979
47
Fyrrverandi íranskeisari ásamt forseta Panama, Aristides Royo,
sem veitti honum hæli um heigina, í húsi á ferðamannaeyjunni
Contadora.
Norður-Irland:
Sjö menn drepnir
Holfast. N-írlandi 17. dos. AI*. Koutor.
PROVISIONAL-armur írska lýð-
veldishersins, IRA, er tíu ára um
þessar mundir og minntist þess
um helgina með því að drepa
fimm hrezka hermenn, einn
írskan fangavorð og mann sem
áður hafði þjónað í heimavarn-
arliði Ulsters.
Fjórir brezku hermannanna
fórust er jarðsprengja var sprengd
undir bifreið þeirra við Dungann-
on, og sá fimmti fórst í sprengingu
í þorpinu Forkhill. Fangavörður-
inn var skotinn til bana utan við
Crumlim Road fangelsið í Belfast,
en þar var annar fangavörður
myrtur fyrir tveimur mánuðum.
Hermaðurinn t'yrrverandi var
skotinn til bana þegar hann var
mð 13 ára syni sínum við af-
greiðslu í verzlun í Omagh.
Frá því að Provisional-armur
IRA var stofnaður 16. desember
1969 hafa félagar samtakanna
myrt alls 1.989 menn. Hefur tals-
maður IRA lýst því yfir að ekkert
vopnahlé verði gert um jólin og
barátta samtakanna fyrir samein-
uðu írlandi verður enn hert.
Morð á Kýpur
Nicosia, Kýpur, 17. des. AP.
TVEIR starfsmenn Frelsissam-
taka Palestínumanna, PLO, voru
skotnir til bana á götu úti i
Nicosiu á laugardag, og hefur
lögreglan þar í borg hafið
víðtæka leit að morðingjunum.
Morðin hafa vakið gremju á
Kýpur, og fóru um 600 manns í
hópgöngu í Nicosíu í dag til að
mótmæla ódæðisverkunum.
Lögreglan segir að morðingj-
arnir hafi verið tveir, Jeffrey
Sowden og Ahmad Naguib Bourgi.
Hafi þeir komið akandi í bifreið
frá bílaleigu og skotið PLO-
mennina tvo á stuttu færi.
Þokast í átt til lausnar?
Iran:
New Vork. Contadora. 17. dcsemher. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur látið i ljós vonir um að brottför Reza
Pahlevi fyrrum íranskeisara frá Bandaríkjunum verði til þess að
gíslarnir fimmtiu í bandaríska sendiráðinu í Teheran verði látnir
lausir. Carter forseti segist vonbetri um lausn málsins eítir að
utanrikisráðherra írans, Ghotbzadeh, lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali
við ABC-fréttastofuna. að svo kynni vel að fara aö gislarnir þyrftu
ekki að koma fyrir rétt, og að sjálfur mundi hann beita sér fyrir því að
deilan leystist farsællega. Bandarisk stjórnvöld segja þó að enn sé of
snemmt að spá um þróun málsins.
Keisarinn er , nú kominn til
Contadora, eyju einnar í Panama-
flóa, ásamt fjöiskyldu sinni. Eyjan
er rétt hjá Panamaborg og var um
langt skeið sakamannanýlenda, en
er nú vinsæll dvalarstaður ferða-
manna. Eigandi eyjunnar er
Gabriel Luis Galinda, auðkýfing-
ur, sem hefur verið sendiherra
Panama í Washington, rekur með-
al annars hótel á eynni, en auk
þess eru þar nokkur íbúðarhús,
þar á meðal glæsilegur bústaður
Galindas, en þar dvelst keisarinn
nú ásamt fjölskyldu sinni. Keisar-
inn hefur fengið leyfi til að
dveljast í Panama næstu þrjá
mánuði, en talsmaður Panama-
stjórnar segir, að ekkert sé því til
fyrirstöðu að framlengja dvalar-
leyfið, ef keisarinn óski þess.
Keisarinn ræddi við blaðamenn í-
dag og lét vel af sér. Hann var
veiklulegur, en virtist fullkomlega
í andlegu jafnvægi.
Áreiðanlegar heimildir í Pan-
ama-borg herma, að stjórn Pan-
ama hafi veitt keisaranum hæli
meðal annars og ekki sízt af þeirri
ástæðu að hún hafi viljað bæta
sambúðina við Bandaríkin, sem
verið hefur fremur stirð að undan-
förnu.
Úrskurður Alþjóðadómstólsins í
Haag um að íranir skyldu þegar í
stað sleppa öllum bandarísku
gíslunum þykir hafa styrkt mjög
stöðu Bandaríkjanna í málinu, og
jafnframt aukið iíkurnar á því að
Sameinuðu þjóðirnar láti til sín
taka í málinu, m.a. með efnahags-
legum aðgerðum gegn íran. Úr-
skurður dómstólsins var eínróma,
en íranir sendu ekki fulitrúa ti!
Haag.
Ný skoðanakönnun í Bandaríkj-
unum gefur til kynna að um 69%
bandarísku þjóðarinnar séu
ánægðir með frammistöðu Carters
í máli þessu og telji að hann hafi
ekki getað valið skynsamlegri leið
til að tryggja líf og öryggi
gíslanna í sendiráðinu. 61% telja
að Carter hafi gert rétt er hann
samþykkti að keisarinn kæmi tii
Bandaríkjanna til að leita sér
lækninga, en 64% telja, að ekki sé
unnt að veita keisaranum hæli í
landinu til frambúðar.
Þetta gerðist 18. desember
1975 — Fulltrúar ísraels og tólf
annarra ríkja ganga af fundi
UNESCO.
1963 — Óeirðir afrískra stúd-
enta í Moskvu.
1962 — Fundur Kennedys og
Macmillans í Nassau.
1961 — Innrás Indverja í Goa.
1944 — Herlið Japana hrakið
frá Burma.
1927 — Chiang Kai-shek steypir
Hankow-stjórninni af stóli.
1923 — Samningur Breta,
Frakka og Spánverja um Tang-
ier gerður.
1917 — Bandaríkjaþing vísar
bannfrumvarpi til ríkjanna.
1912 — Fundur Piltdown-
mannsins kunngerður.
1903 — Bandaríkin fá Panama-
skurð til eilífðar gegn árlegu
leigugjaldi samkvæmt Panama-
sáttmálanum.
1890 — Frederick Lugard tekur
Uganda herskildi.
1865 — Þrælahald endanlega
afnumið í Bandaríkjunum.
1799 — Útför Georgs Washing-
tons í Mount Vernon.
1792 — Réttarhöld í Bretlandi
gegn Thomas Paine að honum
fjarstöddum vegna útgáfu „The
Rights of Man“.
1777 — Veturseta Byltingarhers
Washingtons í Valley Forge
hefst.
1745 — Orrustan við Clifton
Moor.
1644 — Stjórnartíð Kristínar
drottningar hefst í Svíþjóð.
Afmæli. Carl Maria von Weber,
þýzkt tónskáld (1786—1826) =
Christopher Fry, enskur
leikritahöfundur (1907—)
Willy Brandt, vestur-þýzkur
stjórnmálaleiðtogi (1913—) =
Betty Grable, bandarísk leik-
kona (1916-1973).
Andlát. Antonio Stradivarius,
fiðlusmiður, 1737=Johann Her-
der, rithöfundur, 1803=Jean
Baptiste Lamarque, náttúru-
fræðingur, 1829.
Innlent. Alþjóðadómstóllinn
dæmir Norðmönnum rétt til að
ákveða 4 mílna landhelgi 1951 =
Eldgos við Leirhnúk 1728 = Sex
farast í snjóflóði í Súgandafirði
1836 = d. Guðríður Símonardótt-
ir (ekkja síra Hallgríms) 1682 =
Leyfi til sölu á sætum í Dóm-
kirkjunni afturkallað 1871 =
Landsyfirréttur mildar dóminn
gegn Skúla Thoroddsen 1893 =
„Sköpunin“ eftir Haydn flutt í
bifreiðaskála Steindórs 1939 =
Brunatjón í Stjörnubíói 1973 = f.
Sigurður Bjarnason frá Vigur
1915.
Orð dagsins. Séu menn upp-
fræddir án trúarinnar eru þeir
einungis gerðir að sniðugum
djöflum — Hertoginn af Well-
ington, brezkur hermaður
(1769-1852).
meira
BERID SAMAN VERD OG GÆDI
HJÁ OKKUR OG ANNARSSTADAR
Austurstræti 22