Morgunblaðið - 02.02.1980, Page 8

Morgunblaðið - 02.02.1980, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1980 8 iHeöóur á ntorgun GUÐSPJALL DAGSINS: Matt. 20.: Verkamenn í Vínargarði. LITUR DAGSINS: Grænn. Litur vaxtar og þroska. DÓMKIRKJAN Kl. 11 messa. Sr. Erlendur Sig- mundsson. Kl. 2 messa. Sr. Ólafur Skúlason dómprófastur predikar og visiterar krirkju og söfnuð. Dómkirkjuprestarnir þjóna fyrir altari. Nemendur úr Tónlistaskólanum í Reykjavík leika á orgelið í hálfa klukku- stund á undan messunni. Dóm- kórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. ÁRBÆJARPRESTAKALL Barnasamkoma í safnaðarheim- ili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. •Guðsþjónusta í safnaðarheimil- inu kl. 2. Sr. Guðmundur Þor- steinsson. ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2 að Norðurbrún 1. Aðalfundur safnaðarfélags Ásprestakalls eftir messuna. Sr. Grímur Grímsson. BREIÐIIOLTSPRESTAKALL: Barnastarf í Ölduselsskóla og Breiðholtsskóla kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla kl. 14. Sr. Jón Bjarman. BÚSTAÐAKIRKJA Barnasamkoma kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 2. Sr. Erlendur Sigmundsson messar, organieik- ari Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúlason, dómprófastur. DIGRANESPRESTAKALL Barnasamkoma í safnaðarheim- ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns- son. FELLA- OG HÓLAPRESTA- KALL Laugardagur: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnudagur: Barnasamkoma í Fellaskóla kl.ll f.h. Guðsþjón- usta í safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. 2. e.h. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA Barnasamkoma kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 2, altarisganga. Org- anleikari Jón G. Þórarinsson. Almenn samkoma n.k. fimmtu- dag kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11, altarisganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Fjöl- skyldumessa kl. 2. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjud.: Fyrir- bænamessa kl. 10.30 árd. Munið kirkjuskóla barnanna á laugard. kl. 2. LANDSPÍTALINN Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Sr. Arngrímur Jónsson. Organ- leikari dr. Orthulf Prunner. KÁRSNESPRESTAKALL Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í Kópa- vogskirkju kl. 2. Sr. Árni Páls- son. LANGHOTLSPRESTAKALL Guðsþjónusta kl. 11 (athugið breyttan tíma). Helgisiðanefnd þjóðkirkjunnar hefur unnið að tillögum um samræmingu messusiða og verður eftir þeim farið við flutning guðsþjónust- unnar. Prestur sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Organleikari Jón Stefánsson. Vekjum athygli á að barnasamkoman fellur niður þennan dag. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Æskulýðs- og fjölskylduguðs- þjónusta kl. 2. Sönghópurinn Sela flytur þrjú lög. Sýndur verður helgileikur. Fermingar- börn taka þátt í guðsþjónust- unni. Mánud. 4. febr.: Aðalfund- ur Kvenfélagsins kl. 20.00. Þriðjudagur 5. febr.: Bænaguðs- þjónusta kl. 18 og æskulýðsfund- ur kl. 20.30. Sóknarprestur. NESKIRKJA Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson, kirkjukaffi. Sr. Guðmundur Ósk- ar Ólafsson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK Messa kl. 2 e.h. Organleikari Sigurður ísólfsson. Prestur sr. Kristján Róbertsson. Prestar Reykjavíkurprófasts- dæmis halda hádegisfund í Norræna húsinu mánudaginn 4. febrúar. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 síðd. nema á laugardögum, þá kl. 2 síðd. Næstkomandi laugardag, 2. febr., er Kyndilmessa og verður þá að vanda Kertaskrúðganga. FELLAIIELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. FÍLDELFÍUKIRKJAN: Safn- aðarsamkoma kl. 2 síðd. Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd. Fjöl- breytt hljómlist og söngur. Gest- ir utan af landi tala. Einar J. Gíslason. GRUND elli- og hjúkrunarheim- ili: Messa kl. 10 árd. Séra Jón Kr. Isfeld messar. HJÚPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 10 árd. helgunar- samkoma kl. 11 árd. Bæn kl. 20 og almenn samkoma kl. 20.30. KIRKJA JESÚ Krists hinna síðari daga heilögu — Mormón- ar: Samkomur að Höfðabakka 9 kl. 14 og kl. 15. NÝJA Postulakirkjan, Háaleit- isbr. 58: Samkomur kl. 11 árd. og kl. 17. MOSFELLSPRESTAKALL. Messað í Lágafellskirkju kl. 2 síðd. Sóknaprestur. GARÐASÓKN: Barnasamkoma í skólasalnum kl. 11 árd. Séra Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra í Garðabæ: Hámessa kl. 2 síðd. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 síðd. Altarisganga. Sóknarprestur. KAPELLAN St. Jósefsspítala Hafn.: Messa kl. 10 árd. KARMELKLAUSTUR: Messa kl. 8.30 árd. Virka daga er messa kl. 8 árd. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Barnastarf kl. 10.30 árd. Öll börn og aðstandendur þeirra velkom- in. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bernharður Guðmundsson pré- dikar, Jón Myrdal við orgelið. Kirkjukaffi. Safnaðarstjórn. NJARÐVÍKURPRESTAKALL: Sunnudagaskóli Ytri-Njarðvík- urkirkju kl. 11 árd. Messa kl. 2 síðd. Altarisganga. Sóknarprest- ur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. — Munið skólabílinn. Guðsþjón- usta kl. 14. — Kristniboðsvikan hefst kl. 20.30. Samkomur verða öll kvöld vikunnar á þeim tíma. Sóknarprestur. GRINDAVÍKURPRESTA- KALL: Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Sóknarprestur. HVALSNESKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Almenn messa kl. 2 síðd. Sókn- arprestur. REYNIVALLAPRESTAKALL: Barnaguðsþjónusta í Reynivalla- kirkju kl. 10.30 árd. — Messað að Brautarholti kl. 14. Séra Gunnar Kristjánsson. AKRANESKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 10.30 árd. — Messa kl. 2 síðd. Séra Björn Jónsson. Sturla Sighvatsson arkitekt: Sturla Sighvatsson hefur gengið að finna samkomu- lagsgrundvöll. Hver stjórnmála- flokkur er í reynd fulltrúi sinna kjósenda eða þess vilja og hugar- ástands sem kjósendur sjá best borgið í ákveðnum flokki. Það eru hin ólíku viðhorf kjósenda stjórn- málaflokkanna sem takast á í stjórnarmyndunarviðræðunum. Það eru hinir ólíku kraftar sem ríkja í þjóðarsálinni, í þjóðarvit- undinni sem koma hér við sögu. Ef þjóðin er ósamstillt endurspeglast það í erfiðum stjórnarmyndunar- viðræðum, erfiðum og sundurleyt- um stjórnaraðgerðum. Það end- urspeglast í kraftleysi og dugleysi stjórnvalda og þar með þjóðarinn- ar í heild. Þrátt fyrir nútíma menningarlíf á íslandi og gott menntakerfi er einhver þekking sem hefur skort sem skapað getur þá einingu hjá þjóðinni sem dugir til að stilla Um þjóðareiningu Þegar vandamál og vandræði steðja að þjóðinni beinast augu allra að ríkisstjórn landsins eða til stjórnvalda almennt um lausn á þeim. Ríkisstjórn hefur mikil völd og áhrif því að hún ræður í reynd yfir öilum þeim kröftum og auðæfum sem þjóðin býr yfir. Ríkisstjórnir eru þó misjafnlega valdamiklar og skiptir þar miklu hversu auðugt landið er, hversu stórt, en þó skiptir mestu hversu samstillt og einhuga þjóðin er. Lítil þjóð sem er samstillt og býr við samlyndi getur áorkað miklu meira þegar fram í sækir heldur en þjóð sem er stærri og talin auðug eða voldug, en sem skortir nægjanlega samstillingu. Sömu sögu er að segja um fyrirtæki og rekstur þeirra.Æf eining og sam- hugur ríkir í stjórnun fyrirtækis að þá eru öll ^kilyrði fyrir hendi svo að fyrirtækið gangi vel. Ef fjölskyldufaðir býr við fjölskyldu- líf þar sem eining og samhugur ríkir, verður hann margfalt ár- angursríkari í starfi og samskipt- um fyrir fjölskyldu sína og heimili út á við. En hvað er það sem skapar samhug, einingu eða sam- stillingu? Ef betur er að gáð byrja allar athafnir, orð og gerðir sem hugsun. Smiðurinn t.d. verður að hugsa fyrst áður en hann smíðar, málarinn sér það sem hann vill mála fyrst sem hugmynd, sömu- leiðis tónskáldið, arkitektinn og verkfræðingurinn. Þessu er ná- kvæmlega eins varið með hinar einföldustu athafnir eins og að ganga eða spyrja til vegar. Allt er fyrst til sem hugmynd sem vit- undin framkallar. Það er því nauðsynlegt að lögð sé rækt við grundvöll allra athafna, vitund- ina, að hún sé efld og styrkt. Menntakerfi landsmanna miðast allt við það að hlúa að vitundarlífi þegnanna og búa þá þar með undir það hlutverk að vera ábyrgir þjóðfélagsþegnar. Allt menning- arlíf; fögur tónlist, málaralist, höggmyndalist, leiklist, bók- menntir og vísindi miðast við það að auðga vitundarlíf mannsins og stuðla að andlegu jafnvægi hans. Allar þjóðir viðurkenna þetta og engu er til sparað svo að menntun og menningarlíf megi skila því hlutverki sem því er ætlað. En nú vaknar sú spurning hvort sá árangur hafi náðst sem vænst var. Er vitundarlíf borgaranna al- mennt nógu mikið að vöxtum, er eining þjóðarhugans sú sem óskað er eftir að hún sé, er jafnvægi og samstilling ríkjandi? Án efa eru flestir sammála að þessir eigin- leikar séu ekki fyrir hendi í nægjanlega ríkum mæli, hvorki hér á landi né í heiminum al- mennt. Ríkisstjórnar- myndun Núna þessa dagana hafa verið gerðar margar tilraunir í margar vikur til myndunar starfhæfrar ríkisstjórnar á íslandi. Erfiðlega hana saman til nýrra áfanga og betra lífs. Að benda á lausn Undanfarin 5 ár hefur tæknin Innhverf íhugun verið kennd á Islandi og sem mig langar til að gera að umtalsefni í sambandi við sköpun samstillingar og sam- virkni í hugum landsmanna. Inn- hverf íhugun er einföld andleg tækni sem allir geta auðveldlega tileinkað sér. Hún meðhöndlar beint vitund iðkandans og við það breytist starfsemi líkams og efna- skiptin sýna djúpa hvíld ásamt miklu skipulagi á starfsemi tauga- kerfisins sem sjá má m.a. af heilaritum. Við íhugun verður starfsemi hugans fíngerðari og fíngerðari þar til ástand hans verður það sem nefnt er ástand minnstu örvunar vitundar. Hann hefur þá samlagast eða staðbund- ið svið minnstu örvunar efnis sem oft er líka nefnt tómasvið efnis á máli eðlisfræðinnar. Þetta svið er grunnsvið orku alheimsins og er samkvæmt skammtakenningu eðlisfræðinnar óendanlega orku- mikið, gætt óendanlegri röð og reglu, er aðsetur allra náttúrulög- mála, er óbreytanlegt en veldur þó allri breytingu. Iðkandi Innhver- frar íhugunar og Innhverf íhug- un-Sidhi kerfisins flytur næringu, ef svo má segja, inn á vitundarlíf þeirra sem ekki íhuga frá tómas- viði efnis og eflir vitunarlíf sam- borgaranna og gæðir það meiri greind og samstillingu. Aðeins lítið brot iðkenda af þjóðarheill- inni nægir til þess að veruleg aukning í gæðum þjóðarvitundar eigi sér stað. Margar vísindalegar rannsóknir gerðar í fjölmörgum löndum staðfesta þetta og nægir að benda á athyglisverða rann- sókn gerða á Rhode Island þar sem nákvæm rannsókn opinberra aðila fór fram á áhrifum 300 iðkenda Innhverfrar íhugunar á samfélagið. Niðurstöðurnar voru mjög jákvæðar og sýndu að þessi litli hluti iðkenda af heildarfjölda íbúanna hafði mjög jákvæð áhrif sem lýstu sér í fækkun glæpa, færri umferðarslysum og betri veðráttu. Til að efla samvitund íslensku þjóðarinnar að svo miklu marki að auðveldlega sé hægt að ná sam- stöðu og samvirkni í öllum megin- málum hennar sem varða þjóðar- heill og framtíð þjóðarinnar, er nauðsynlegt að kenna Innhverfa íhugun á sem allra flestum sviðum samfélagsins. Innhverf íhugun er auðlærð, skilar fljótt árangri og hefur verið sannprófuð af nútíma- vísindum sem áræðanleg aðferð til að efla þroska vitunarlífs ein- staklingsins. Ef einstaklingurinn er sterkur, hamingjusamur og samræmdur andlega sem líkam- lega geislar hann þessum eigin leikum frá sér sjálfkrafa og um- hugsunarlaust til umhverfisins. Aðeins nokkrir slíkir einstakl- ingar í þjóðfélaginu er nóg til að skapa samræmi í þjóðarvitund, rétt eins og að nokkrar ljósluktir hér og þar nægja til þess að lýsa heila borg. Innhverf íhugun á vissulega erindi til íslendinga og er lyþillinn að innra samræmi, samhug og skipulagi þjóðarvit- undar sem er hinn sanni aflgjafi þjóðartilverunnar og framtíðar hennar. Sturla Sighvatsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.