Morgunblaðið - 02.02.1980, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.02.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1980 25 var Snæbjörn Elvin Magnús Eug- en Palsson Fornjótur voru miklir áhugamenn um virkjun áa í Arn- arfirði, en þeir voru fæddir á Flateyri. Afi minn var mikill athafna- og fjármálamaður og var sífellt á ferð til Norðurlanda og Bretlands í ýmsum erindagjörðum og einhverju sinni á hann að hafa útvegað Islendingum lán og gerði það að mestu leyti á eigin spýtur, en þeir voru víst fáir í útlöndum sem vildu lána Islendingum fé. Hafði afi minn af þessu margs konar kostnað og.hafði verið um það rætt að hanri fengi nökkra þóknun fyrir vikið. Eitthvað gekk sú greiðsla seint því að árið 1926, 5 árum eftir að lánið var útvegað, með áskorunarskjalið sem er sögulegt plagg. — En það er árið 1932 sem afi minn var með þessi virkjunarmál í undirbúningi og voru veðsett rétt- indi í ánum í Arnarfirði, m.a. Dynjandi, til að koma málinu áfram og átti að endurgreiða lánin þegar virkjunarfyrirtækið væri stofnað og komið í gang. Síðan leið nokkuð langur tími og faðir minn tók einnig við þessum málum og ég man eftir því að heima var alltaf talað með mikilli virðingu um Dynjanda og fossinn og að einhvern tíma yrði fjölskyldan rík þegar þessi mál yrðu komin í höfn. I fyrra kom ég hingað til þess að athuga hvað ég og fjölskylda mín eigum eftir hér, hvort við ættum Við fossinn Dynjanda samþykktu 24 alþingismenn að skora á ríkisstjórnina að greiða „herra Páli J. Torfasyni það sem honum kann að reynast vangoldið af þóknun þeirri er umsamin var af ríkisstjórninni fyrir milligöngu hans við enska lánið sem ríkis- sjóður tók árið 1921“, og ég er hér ekki tilkall til vatnaréttinda í Arnarfirði og hvort eitthvað væri óuppgert af því sem afi minn átti að hafa fengið. í því sambandi kvaðst Bente upphaflega hafa fundið þau skjöl sem hún byggir rétt sinn á í dánarbúi móður sinnar, en hún lézt fyrir rúmum tveimur árum í Danmörku. Faðir hennar fluttist til Danmerkur barn að aldri og kvæntist þar móður hennar. Dvöl Bente hér á landi í fyrra leiddi til þess að hún komst í samband við ættingja sína hér og að auki til þess, að maður nokkur, sem lesið hafði í Mbl. um mögulega kröfu hennar til eignarréttinda á fram- angreindum ám og vatnaréttind- um, leit í þinglýsingarbækur Isafjarðarsýslu til þess að forvitn- ast um sögu eignaraðildar að þessum réttindum. Eign hvers? Þar er skráð, að árið 1954 hefði fyrirtæki með nafninu Orkuvötn keypt réttindin af eigendum og síðan selt þau ríkinu á árinu 1961. Þar er að finna afsal, vélritað á dönsku um söluna 1954 og undir það vélritað nafn móður Bente, sem seljanda. Ér þarna var komið sögu, var faðir hennar látinn, en foreldrar hennar höfðu áður slitið samvistum. Þá er nafn móður hennar skrifað á þann hátt, sem hún aldrei skrifaði sjálf, en þann- ig hafði nafnið fyrst birst á Islandi í trúlofunartilkynningu sem faðir hennar sendi á sínum tíma til íslands. Og að auki skrifa kaupendur ekki nöfn sín á afsalið og ekki er getið þeirrar fjárhæðar, sem eignin er seld á. Vitundar- vottur er danskur lögfræðingur, sem Bente hefur haft samband við, en hann kvaðst hafa undirrit- að mörg skjöl í starfi sínu, ekki myndi hann eftir þessu tilviki sérstaklega. — Bente Fornjótur kvaðst vera komin aftur til landsins, til þess að kanna þessi mál frekar og vera í leit að góðum lögfræðingi, sem vildi gefa sér ráðleggingar varð- andi þetta mál. Henni fyndist þetta mál gruggugt, — og af hreinni þrjósku vildi hún komast fyrir um hver í raun ætti þessi réttindi í dag og hvort eignar- skiptin 1954 hafi verið lögleg. Hún telur sig geta fært sönnur á, að móðir sín hefði hvergi komið þar nærri. Afli Ólafsvík- urbáta rýr í vertíðarbyrjun Ólafsvík. 1. íebrúar. VERTÍÐ hófst strax upp úr áramótum hér í Ólafsvík. Afli hefur verið rýr. enda hamlaði erfið tíð þar til nú í lok mánaðarins, að róðrar væru samfelldir og línubátarnir kæmust á djúpmið. Þar gefur sig til væn og falleg ýsa. Níu bátar róa með línu og hafa fengið 583- lestir í 125 róðrum. Aflahæstur þeirra er Gunnar Bjarnason með 116 lestir í 20 róðrum. Afli netabáta hefur verið afar bágur. Átta bátar eru á netum og hafa aflað 183 lesta í 83 sjóferðum. Mestan afla þeirja hefur Ólafur Bjarnason, 53 lestir í 16 róðrum. Togarinn Lárus Sveinsson hefur landað þrisvar í janúar, alls 300 lestum. Heildar- aflinn er því 1.066 lestir og er það 150 lestum lakara en í fyrra, en þá gaf mun betur til veiða á línu og aflinn var þá einnig betri. — Fréttaritari. INNLENT Höfundarnafn féll niður ÞAU MISTÖK urðu í sambandi við birtingu greinar Lúðvíks Jós- epssonar formanns Alþýðubanda- lagsins í MbL í gær: „Eru umsagn- ir Þjóðhagsstofnunar um efna- hagstillögur flokkanna ekki marktækar?", að nafn höfundar, sem skyldi standa með fyrirsögn féll niður. Mbl. biðst afsökunar á þessum mistökum. á 80 dögum Bjarni Guðmarsson í hlutverki Ifelga Leifsdóttir i hlutverki Filius Fogg. Ljósm. Mbl. Kristj. ungfrú Audu. Fix leynilögreglumaður i höndum Ingólfs Sverris Guðjónssonai Passepartout ræðir við Fix leynilögreglumann. (Stefán Geir Stefáns- son og Ingólfur Sverrir Guðjónsson). blaðinu: „Skólaleikur Menntaskól- ans, sem er tradition í bæjarlífi Reykjavíkur, á sér ekki farveg lengur. Þess vegna verður Herra- nótt að færa sig nær uppruna sínum og leita út frá honum á nýjar slóðir — það er skólanum sjálfum. Hversu þörf sem söguleg með- vitund kann að vera má sagan ekki verða okkur hengingaról. Við erum ekki fyrst og fremst fána- berar fornrar hefðar. Okkar markmið er að hressa upp á skammdegið, gera lífið léttara, fást við annað en bókalestur, kynnast nýrri hlið tilverunnar, slóðir sem ugglaust fá okkar eiga leið inn á aftur, skemmta okkur og kannski ykkur líka.“ fslands * ferma skipin sem hér segir: AMERÍKA w PORTSMOUTH: Bakkafoss 8. feb. Selfoss 12. feb. Goðáfoss 18. feb. Brúarfoss 26. feb. Bakkafoss 28. feb. Bakkafoss ' 21. marz BRETLAND/ MEGINLANDIÐ ANTWERPEN: Skógafoss 5. feb. Bifröst 8. feb. Reykjafoss 14. feb. Skógafoss 22. feb. ROTTERDAM: Skógafoss 4. feb. Reykjafoss 13. feb. Skógafoss 21. feb. FELIXSTOWE: Dettifoss 4. feb. Mánafoss 15. feb. Dettifoss 18. feb. Mánafoss 25. feb. HAMBORG: Dettifoss 7. feb. Mánafoss 14. feb. Dettifoss 21. feb. Mánafoss 28. feb. WESTON POINT: Kljáfoss 13. feb. Kljáfoss 27. feb. NORÐURLOND/ EYSTRASALT MOSS: Álafoss 8. feb. Tungufoss 15. feb. Úöafoss 22. feb. Álafoss 29. feb. Tungufoss 7. marz Úöafoss 14. marz BERGEN: Álafoss 4. feb. Úðafoss 18. feb. Tungufoss 3. marz HELSINGBORG: Laxfoss 5. feb. Háifoss 12. feb. Laxfoss 19. feb. Háifoss 26. feb. Laxfoss 4. mars GAUTABORG: Álafoss 6. feb. Tungufoss 13. feb. Úðafoss 20. feb. Álafoss 27. feb. Tungufoss 5. marz Úöafoss 12. marz KAUPMANNAH.: Laxfoss 6. feb. Háifoss 13. feb. Laxfoss 20. feb. Háifoss 27. feb. Laxfoss 5. marz HELSINKI: írafoss 5. feb. Múlafoss 21. feb. VALKOM: Irafoss 7. feb. Múlafoss 22. feb. GDYNIA: Lagarfoss 2. feb. írafoss 9. feb. Múlafoss 26. feb. RIGA: Múlafoss 24. feb. KRISTJÁNSANDUR: Tungufoss 12. feb. Álafoss 26. feb. Úöafoss 11. marz sími 27100 Frá REYKJAVÍK: á mánudögumtii AKUREYRAR ÍSAFJARÐAR á miðvikudögum til VESTMANNAEYJA EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.