Morgunblaðið - 05.02.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
3
„Egill sterki“
verður ekki í
Fríhöfninni
„VIÐ höfum ekki uppi neinar
ráðagerðir um að hefja fram-
leiðslu á „Agli sterka" á nýjan
leik.“ sagði Jóhannes Tómasson
forstjóri Ölgerðar Egils Skalla-
grímssonar. er Mbl. innti hann
eftir því hvort breytt viðhorf í
sölu á áfengum bjór í Fríhöfninni
á Keflavíkurflugvelli hefðu ein-
hver áhrif á framleiðslu þeirra.
en á árunum áður framleiddi
verksmiðjan sterkan bjór m.a. til
neyzlu í sendiráðum landsins og
á Keflavíkurflugvelli.
Aðspurður um ástæður þessa
sagði Jóhannes að í fyrsta lagi
hefðu þeir ekkert tankapláss til
aukinnar framleiðslu, sem enn-
fremur tæki langan tíma, svo og
væri það að geymslur á Kefla-
víkurflugvelli væru það heitar að
ölið færi illa við ge.vmslu.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Morgunblaðið hefur aflað sér
hefur áfengisvarnaráð í hyggju að
fá sett lögbann á þá ákvörðun
fjármálaráðherra að leyfa sölu
áfengs bjórs til ferðamanna sem
til landsins koma með flugvélum.
Kambódíu-
hljómleikar
í Austur-
bæjarbíói
Næstkomandi laugardag.
hinn 9. febrúar klukkan 14
verða haldnir hljómleikar á
vegum Iljálparstofnunar
kirkjunnar í Austurbæjarbíói
í Reykjavík og mun ágóði
þeirra renna til Kamhódíu-
söfnunar stofnunarinnar.
Allir, sem fram koma, gefa
vinnu sína, húsið er lánað
endurgjaldslaust og starfsfólk
gefur vinnuna, hljóðfæraverzl-
unin Tónkvísl lánar söngkerfi
og fleiri aðilar styrkja hljóm-
leikana á ýmsa vegu. Kynnir
verður Guðmundur Einarsson
framkvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunarinnar, en fram koma
m.a. gestir frá Alþýðuleikhús-
inu, Snillingarnir, Fræbbbl-
arnir, Kjarabót og ný hljóm-
sveit, sem sérstaklega er
mynduð fyrir þessa hljómleika,
en hana skipa: Egill Ólafsson,
Tómas Tómasson, Ásgeir Ósk-
arsson, Karl Sighvatsson,
Björgvin Gíslason og Rúnar
Vilbergsson.
Enn mikið fram-
boð af fiski
ENN ER mikið framboð á ísfisk-
mörkuðum í Bretlandi og því lágt
verð, sem fæst fyrir fiskinn. í gær
seldi Fylkir frá Neskaupstað lið-
lega 42 tonn í Grimsb.v og fengust
13,4 milljónir fyrir aflann, meðal-
verð á kíló 317 krónur. Nokkur
íslenzk skip hafa hætt við siglingu
Vegna hins lága verðs.
Siglfirðingar
óánægðir með
kartöflurnar
SÍKluíirói. 2. febrúar.
SIGLFIRÐINGAR hafa ekki gert
sig ánægða með þær kartöflur,
sem fáanlegar hafa verið að und-
anförnu, en við höfum ekki fengið
nema annars flokks kartöflur og
finnst það undarlegt meðan á
öðrum stöðum er hægt að fá
fyrsta flokk. Síðan um áramót
hefur ekki verið annað á borðstól-
um og hafa ingfluttar kartöflur
ekki verið fáanlegar.
m.j.
Ný
bensínhækkun
framundan
Bens
ín
olíur
og
^-kaðnn - . nram vorðho "!"8 vcg«r mun„
Daihatsu Charade
leysir vandann
Daihatsu Charade er sparneytnastur
Þá er búiö aö
boöa fyrstu
bensínhækkun
nýja ársins
en ekki þá
síöustu.
Daihatsu Charade
er bíll 9. áratugsins,
því hann var
hannaöur til aö
mæta erfiöleikum
orkukreppu.
Verö meö ryðvörn,
tilbúinn til skráningar:
Daihatsu Charade
kr. 3.890.000.-
Daihatsu Charade
Runabout
kr. 3.960.000-
(Miöaö viö gengisskráningu 1.2.
1980.)
\
Hi
Fullkomin viögeröa- og varahlutaþjónusta á staðnum
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Armúla 23,
sími 85870.