Morgunblaðið - 05.02.1980, Síða 7

Morgunblaðið - 05.02.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980 7 r Þjóðarfram- leiösla og þjóðartekjur Veröfall á fiskafurðum okkar á Bandaríkjamark- aði leiðir hugann að efna- hagsáföllum áranna 1967 og 1968. Verðfalliö hófst raunar á árinu 1966 en hélt áfram á tveimur næstu árum, samhliða því sem gífurlegur afla- brestur varð á síldveiðum basði árin. Þjóðarfram- leiðsla, sem hafði vaxiö um 9% á ári, það sem af var áratugnum, jókst að- eins um 3,5% 1966, minnkaði um 2% á árinu 1967 og enn um 6% á árinu 1968. Þjóðartekjur, sem vaxið höfðu um 10,2% að jafnaði á ári, jukust um 8,5% 1966 en minnkuðu um 6,8% á árinu 1967 og enn um 7,2% á árinu 1968. Gjald- eyrisverðmæti sjáv- arafuröaframleiðslunnar hrapaði um 45% á þess- um tveimur árum, 1967 og 1968. Atvinnuleysi Meö örfáum undan- tekningum hefur atvinnu- leysi verið óþekkt fyrir- brigði á íslandi allt frá heimsstyrjaldarárunum síðari. — Efnahagsáföll áranna 1967 og 1968 leiddu hins vegar til tölu- verðs atvinnuleysis og í febrúar 1968 voru um 1500 manns atvinnulausir eða um 2% af mannaflan- um. Atvinnuástandið batnaði síðan nokkuð vorið og sumarið 1968 en þegar tók að liöa á árið versnaði það á ný og í árslok 1968 nam atvinnu- leysið 3% af mannaflan- um. í lok janúarmánaðar 1969 var skráö atvinnu- leysi um 5.500 manns eða um 7% af mannaflanum, en þar gætti áhrifa sjó- mannaverkfalls, sem leiddi til stöðvunar báta- flotans. Meðalfjöldi skráöra at- vinnuleysingja á árinu 1969 var um 1975 eða 2,5% mannaflans, auk þess sem nokkur hópur verkamanna og iönaö- armanna fór til starfa erlendis, sérstaklega til Svíþjóöar. Efnahagsbati Á árunum 1969—1971 var stöðugur efnahagsbati, bæði vegna stjórnvalds- aðgerða og hækkandi söluverðs útflutnings okkar og jafnframt hvarf atvinnuleysið. Engu aö síöur eru þessi ár, 1967—69, lærdómsrik og sýna Ijóslega, hve skjót veörabrigði geta verið í efnahagslífi okkar. Verðfallið á Banda- ríkjamarkaði nú er hættuboði, sem hlýtur að hvetja okkur til varúðar og gætni. Bandaríkja- markaðurinn er eina við- skiptasvæöi okkar, sem skilar hagstæöum við- skiptajöfnuði í þjóðar- búið. Öll önnur viðskipta- svæði selja okkur meira en sem svarar afuröasölu okkar til þeirra. Sá frjálsi gjaldeyrir, sem við höfum til ráðstöfunar, er frá þessum markaöi kominn. Við hljótum því að leggja allt kapp á að tryggja söluaðstöðu okkar þar og nýta samninga okkar viö EBE til að byggja upp betri söluaöstöðu í Evr- ópu. Atvinnumála- nefndir Oft er vitnað til þessara ára, 1966—1969, þegar rætt er um svokölluð viö- reisnarár. Sannleikurinn er sá að furöu gegnir, hve fljótt tókst að komast yfir þau efnahagsáföll, sem skertu gjaldeyristekjur þjóðarinnar um 45% á teimur árum. — Stofnuð var atvinnumálanefnd ríkisins og atvinnumála- nefndir í öllum kjördæm- um og gripið til marg- víslegra ráðstafana til að efla atvinnulífið. Vonandi veröur verðfalliö á Bandaríkjamarkaði nú ekki upphaf sams konar atvinnuástands og á síðustu árum sjöunda áratugarins. ALLTAF — EFTIR AÐ ÞU HEFUR NOTAÐ ÞAÐ EINU SINNI Það hreinsar, verndar og fægir i sömu yfirferð flesta þá hluti sem tilheyra hús- og heimilishaldi. Svo sem: Stál, tin, messing, aluminium, silfur, gull. Einnig bakaraofna, eldavélar, potta, katla, straujárn, vaska, baðker, gluggarúður og spegla. Setjið Starglanz i votan klút og nuddið bletti og óhreinindi af. Þurrkið síðan og þá sjáið þið muninn. Heildsölubirgðir 0.J0HNS0N & KAABER HE VANTAR ÞIG VEMNU VANTAR ÞIG FÓLK £ Fákur Helgarnámskeið í hestamennsku Laugardaginn 9. febrúar hefst námskeiðið. Kennsla fer fram f.h. laugardag og sunnudag 5. helgar í röö. Kennt verður í 2 flokkum, fyrir lítið vana og vana. Verkleg og bókleg kennsla í stjórnun hestsins gangskiptingu, og almennri reiðhestaþjálfun. Kennari Eyjólfur isólfsson. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu félagsins og innritun í námskeiðin næstu daga, sími 30178 kl. 13—18. Hestamannafélagiö Fákur ^W'?eGgn2S4Í4 eigendaskipta HANNYRÐAVERSLUNIN LAUGAVEGI 63. EKKERT MERKI- LEGT 0G ÞÓ! Þessa myndavél, AGFA AUTOSTAR X-126 meö filmu í, mun handhafi fimmtugustu hverrar litfilmu sem kemur í framköllun til okkar, fá að gjöf. Tilboð þetta stendur til febrúarloka. Framköllum allar tegundir litfilma, á tveimur dögum. Póstsendum. Opið á týli h/f laugardögum. Auf/!oIftrætÍ 7’ 3 s. 10966.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.