Morgunblaðið - 05.02.1980, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
7
r
Þjóðarfram-
leiösla og
þjóðartekjur
Veröfall á fiskafurðum
okkar á Bandaríkjamark-
aði leiðir hugann að efna-
hagsáföllum áranna 1967
og 1968. Verðfalliö hófst
raunar á árinu 1966 en
hélt áfram á tveimur
næstu árum, samhliða
því sem gífurlegur afla-
brestur varð á síldveiðum
basði árin. Þjóðarfram-
leiðsla, sem hafði vaxiö
um 9% á ári, það sem af
var áratugnum, jókst að-
eins um 3,5% 1966,
minnkaði um 2% á árinu
1967 og enn um 6% á
árinu 1968. Þjóðartekjur,
sem vaxið höfðu um
10,2% að jafnaði á ári,
jukust um 8,5% 1966 en
minnkuðu um 6,8% á
árinu 1967 og enn um
7,2% á árinu 1968. Gjald-
eyrisverðmæti sjáv-
arafuröaframleiðslunnar
hrapaði um 45% á þess-
um tveimur árum, 1967
og 1968.
Atvinnuleysi
Meö örfáum undan-
tekningum hefur atvinnu-
leysi verið óþekkt fyrir-
brigði á íslandi allt frá
heimsstyrjaldarárunum
síðari. — Efnahagsáföll
áranna 1967 og 1968
leiddu hins vegar til tölu-
verðs atvinnuleysis og í
febrúar 1968 voru um
1500 manns atvinnulausir
eða um 2% af mannaflan-
um. Atvinnuástandið
batnaði síðan nokkuð
vorið og sumarið 1968 en
þegar tók að liöa á árið
versnaði það á ný og í
árslok 1968 nam atvinnu-
leysið 3% af mannaflan-
um. í lok janúarmánaðar
1969 var skráö atvinnu-
leysi um 5.500 manns eða
um 7% af mannaflanum,
en þar gætti áhrifa sjó-
mannaverkfalls, sem
leiddi til stöðvunar báta-
flotans.
Meðalfjöldi skráöra at-
vinnuleysingja á árinu
1969 var um 1975 eða
2,5% mannaflans, auk
þess sem nokkur hópur
verkamanna og iönaö-
armanna fór til starfa
erlendis, sérstaklega til
Svíþjóöar.
Efnahagsbati
Á árunum 1969—1971 var
stöðugur efnahagsbati,
bæði vegna stjórnvalds-
aðgerða og hækkandi
söluverðs útflutnings
okkar og jafnframt hvarf
atvinnuleysið. Engu aö
síöur eru þessi ár,
1967—69, lærdómsrik og
sýna Ijóslega, hve skjót
veörabrigði geta verið í
efnahagslífi okkar.
Verðfallið á Banda-
ríkjamarkaði nú er
hættuboði, sem hlýtur að
hvetja okkur til varúðar
og gætni. Bandaríkja-
markaðurinn er eina við-
skiptasvæöi okkar, sem
skilar hagstæöum við-
skiptajöfnuði í þjóðar-
búið. Öll önnur viðskipta-
svæði selja okkur meira
en sem svarar afuröasölu
okkar til þeirra. Sá frjálsi
gjaldeyrir, sem við höfum
til ráðstöfunar, er frá
þessum markaöi kominn.
Við hljótum því að leggja
allt kapp á að tryggja
söluaðstöðu okkar þar og
nýta samninga okkar viö
EBE til að byggja upp
betri söluaöstöðu í Evr-
ópu.
Atvinnumála-
nefndir
Oft er vitnað til þessara
ára, 1966—1969, þegar
rætt er um svokölluð viö-
reisnarár. Sannleikurinn
er sá að furöu gegnir, hve
fljótt tókst að komast yfir
þau efnahagsáföll, sem
skertu gjaldeyristekjur
þjóðarinnar um 45% á
teimur árum. — Stofnuð
var atvinnumálanefnd
ríkisins og atvinnumála-
nefndir í öllum kjördæm-
um og gripið til marg-
víslegra ráðstafana til að
efla atvinnulífið. Vonandi
veröur verðfalliö á
Bandaríkjamarkaði nú
ekki upphaf sams konar
atvinnuástands og á
síðustu árum sjöunda
áratugarins.
ALLTAF —
EFTIR AÐ ÞU HEFUR
NOTAÐ ÞAÐ EINU SINNI
Það hreinsar, verndar og fægir i sömu yfirferð flesta þá
hluti sem tilheyra hús- og heimilishaldi.
Svo sem: Stál, tin, messing, aluminium, silfur, gull.
Einnig bakaraofna, eldavélar, potta, katla, straujárn,
vaska, baðker, gluggarúður og spegla.
Setjið Starglanz i votan klút og nuddið bletti og óhreinindi
af. Þurrkið síðan og þá sjáið þið muninn.
Heildsölubirgðir
0.J0HNS0N & KAABER HE
VANTAR ÞIG VEMNU
VANTAR ÞIG FÓLK £
Fákur
Helgarnámskeið
í hestamennsku
Laugardaginn 9. febrúar hefst námskeiðið.
Kennsla fer fram f.h. laugardag og sunnudag 5.
helgar í röö.
Kennt verður í 2 flokkum, fyrir lítið vana og vana.
Verkleg og bókleg kennsla í stjórnun hestsins
gangskiptingu, og almennri reiðhestaþjálfun. Kennari
Eyjólfur isólfsson.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu félagsins
og innritun í námskeiðin næstu daga, sími 30178 kl.
13—18.
Hestamannafélagiö Fákur
^W'?eGgn2S4Í4
eigendaskipta
HANNYRÐAVERSLUNIN
LAUGAVEGI 63.
EKKERT MERKI-
LEGT 0G ÞÓ!
Þessa myndavél, AGFA AUTOSTAR X-126 meö filmu
í, mun handhafi fimmtugustu hverrar litfilmu sem
kemur í framköllun til okkar, fá að gjöf. Tilboð þetta
stendur til febrúarloka.
Framköllum allar tegundir litfilma, á tveimur dögum.
Póstsendum.
Opið á týli h/f
laugardögum. Auf/!oIftrætÍ 7’
3 s. 10966.