Morgunblaðið - 05.02.1980, Síða 10

Morgunblaðið - 05.02.1980, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980 A Seltjarnarnesi er marna skautaunnendur að finna og þessir kátu krakkar voru meðal þeirra og stunduðu íþróttina af kappi á „heimatil- búnu“ svelli. sem gert hefur verið við leikvollinn við Vallarbraut. 29922 Kvisthagi 2ja herb. 60 ferm. kjallaraíbúð með sér inngangi. Laus fljótlega. Verð 21 millj. útb. 15 millj. Hlíðarnar 2ja herb. íbúð í góðu steinhúsi á 1. hæð. Verð tilboð. Austurbær 2ja herb. 75 ferm. íbúö í fjórbýlishúsi á 1. hæð með suður svölum. Verö 22 millj. útb. 16 millj. Brekkubyggð — Garðabæ 86 ferm. raðhús á einni hæð 2ja—3ja herb. rúmlega tilbúið undir tréverk. Verð 28 millj. útb. 21 millj. Framnesvegur 120 ferm. raðhús á þremur hæðum. Eign sem gefur möguleika. Verö 33 millj. útb. 22 millj. Furugrund 3ja herb. ca. 90 ferm. íbúð á 3. hæð. Ný og góð eign. Verð 28 millj. útb. 23 millj. Miðbraut — Seltjarnarnesi 3ja herb. ný íbúð í fjórbýlishúsi, þvottahús og búr innaf eldhúsinu, fulninga hurðir, eikareldhús, 30 ferm. bílskúr. Til afhendingar strax. Verö tilboð. Fífusel 4ra—5 herb. íbúð á tveimur hæðum. Suður svalir. Rúmlega tilbúin undir tréverk, til afhendingar strax. Suðurgata — Hafnarfirði 115 ferm. neðri hæð í 20 ára gömlu steinhúsi. íbúöin er öll nýstandsett. Gott útsýni. Verð 30 millj. útb. 23 millj. Kaplaskjólsvegur Góð 5 herb. íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Tvær samliggjandi stofur, 3 svefnherb., þar af tvö í risi. Fallegt útsýni. Verð 35 millj. útb. 26 millj. Blöndubakki 4ra herb. 120 ferm. endaíbúð á 2. hæð. Þvottahús og búr innaf eldhúsi. Herb. í kjallara fylgir. Verð 36 millj. útb. 26 millj. Suðurhólar 5 herb. 115 ferm. íbúð á 4. hæð. Verð tilboð. Breiðvangur — Hafnarfirði 142 ferm. íbúð á 1. hæð sem er 4 svefnherb., tvær stofur, þvottahús og búr innaf eldhúsi. Innréttingar í sérflokki. Verö 38 millj. útb. 30 millj. Hrísateigur 1£0 ferm. miðhæð í góðu steinhúsi. 3 svefnherb. og stofa, J.P. eldhúsinnréttingar, bílskúr fylgir. Verð tilboð. Útb. 30 millj. - Háteigsvegur Efri hæð ásamt risi með bílskúr, möguleiki á skiptum á einbýlishúsi. Verð tilboð. Gamalt einbýlishús sem nýtt 5 herb. hæð og ris ásamt 2ja herb. íbúð í kjallara, 40 ferm. bílskúr. Allt ný endurnýjað. Möguleiki á skiptum á lítilli sérhæð. Eign í sérflokki. Verð 50 millj. útb. 35 millj. Seljahverfi 210 ferm. raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Til afhendingar í apríl. Teikningar á skrifstofunni. Verð tilboð. Eikjuvogur Einbýlishús 160 ferm. 10 ára gamalt á einni hæð sem skiptist í 5 svefnherb., tvær stofur með arin, 30 ferm. bílskúr, eingöngu í skiptum fyrir góða sérhæð. Uppl. á skrifstofunni. Einbýlishús í Hafnarfirði 120 ferm. nýstandsett einbýlishús á tveimur hæðum. Allt sem nýtt. Verö 45 millj. útb. 33 millj. Höfum fjölda góðra einbýlishúsa úti á landi, Hveragerði, Þorláks- höfn, Eyrarbakka, Eskifirði, Mývatn. /S FASTEIGNASALAN ^Skálafell Mjóuhlíö 2 (viö Miklatorg) Sölustjórl: Valur Magnússon. Viöskiptafræöingur: Brynjólfur Bjarkan, Helgi Hálfdanarson: Reglingur viðingar Vinur minn einn bar þaö á mig í smávegis blaðaþrasi hér um áriö, að ég væri svo þrætugjarn, að ég deildi við sjálfan mig, ef ég hefði ekki aðra til að jagast við. Þetta var að vísu sagt í gamni; en eigi að síður hlýnar mér um hjartarætur af þakklæti, þegar góðkunningi minn, Magnús Kjartansson, forðar mér frá þeim einmanaleik „að ogghnúast við sjálfan" mig, eins og hann kemst að orði í grein sinni í Morgunblaðinu í dag. Þar gerir hann athugasemdir við skrif mitt iítilfjörlegt í sama blaði 1. þm. Margt segir Magnús þar ágæta vel og skemmtilega, eins og hans var von og vísa. Hins vegar er grein hans ekki með öllu laus við misskilning, sem mér þykir hlýða að leiðrétta. Magnúsi þykir ég nota orðin „réttur" og „rangur“ helzttil gálauslega, því að þau beri að varast í umræðum um málfar. En það kveður hann verið hafa tilefni greinar minnar, að mér finnist miður að „þéringar og véringar" séu að hverfa úr mál- inu. Þarna hefur Magnúsi einhvern veginn sézt yfir það, að þetta sem ég kallaði fullum stöfum rangt mál, voru einmitt þér- ingar. Ég taldi það vera megin- röksemd fyrir afnámi þérana (sem Sigf. Blöndal kýs að kalla svo), að þær væru „málfarslegt óeðli“. Með þérunum er jafnan við það átt „að segja þér við eina persónu í stað þu“, eins og sagt er um sögnina „þéra“ í orðabók Menningarsjóðs. Enn fremur kallaði ég það rangt „að segja „vér“ um sjálfan sig einan (eins og kóngurinn)". Magnús hefur sem sé misskilið mig svo ger- samlega, að allt hefur snúizt við, og hlýtur það að vera mín sök, því ekki þvælist að jafnaði fyrir Magnúsi Kjartanssyni að skilja mælt mál. Magnús er ekki einn um það að vilja forðast í lengstu lög að dæma eitt réttara en annað í máli. Varla mun honum þó þykja mjög óvarlegt að kalla það rétt mál, að einn maður segi „ég“ um sjálfan sig en „vér“ um sig og fleiri. Hitt kynni fremur að þykja álitamál, að hægt sé að dæma það fullum fetum rangt að tala um einn mann í fleirtölu, svo sem ég hélt þó fram um þéranir. Samt hika ég ekki við að kalla það rangt mál að segja „Þarna koma svartir hundur", eða „Hér er grár kettir“, og þar erum við Magnús auðvitað á sama máli. En ætli það sé þá ekki ámóta rangt mál að segja „Komið þér sælir, Jón.“? Það hygg ég sé ein sú málvilla, sem aldrei getur orðið að réttu máli, hversu oft og lengi sem hún er endurtekin; enda kallar Magnús hana yfirstéttarfyrirbæri, sem oft hafi gert alþýðufólk klumsa. Magnús segir það vera ein- kenni lifandi máls að vera síbreytilegt, það sem talið sé rétt í dag, sé einatt orðið rangt á morgun. Þarna virðist mér Magnús tala í anda þeirra manna, sem vilja fyrir hvern mun, að alla málþróun reki á reiðanum án neinna verndunar- afskipta, því málið geti þá aðeins lifað, þegar það fái óátalið að breytast eins og hverjum og einum endist duttlungar og trassaskapur til. Það ætti að liggja í augum uppi, hvernig tungunni reiðir af, ef hún á að mæta berskjölduð því gerninga- veðri, sem yfir hána dynur nú á tímum. Ef til vill má svo kalla, að mál íslendinga muni áfram lifa, þó að það hætti að vera það sem nú kallast íslenzka. En Nýi hjúkrunarskólinn hrautskráði 15 goðhjúkrunaríræðinga skömmu fyrir jól. Frcmsta röð frá vinstri: María Pétursdóttir skólastjóri, Bergþóra Helgadóttir, Ida Atladóttir. Marie Lysnes. kennari í geðhjúkrun. Miðröð frá vinstri: Ingibjörg Ilákonardóttir, Guðlaug Guðmundsdóttir. Margrét Blöndal. Margrét Eiríksdóttir. Jóna Magnúsdóttir, Sólborg Olga Bjarnadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Arndís Ellertsdóttir, Erla Friðriksdóttir og Guðrún Ragnarsdóttir. Ljósmynd: Mats. Meiri orka og skapandi greind Almennur kynningarfyrirlestur um tæknina Innhverfa íhugun veröur haldinn þriðjudagskvöld kl. 20.30 Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóöleikhúsinu). M.a. verður fjallað um vísindalegar rannsóknir, sem sýna þróun í vitundarlífi hjá einstaklingum. Innhverf íhugun er einföld, andleg tækni, og veitir hug og líkama djúpa hvíld. Allir velkomnir. islenska íhugunarfélagiö.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.