Morgunblaðið - 05.02.1980, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
A Seltjarnarnesi er marna skautaunnendur að finna og þessir kátu
krakkar voru meðal þeirra og stunduðu íþróttina af kappi á „heimatil-
búnu“ svelli. sem gert hefur verið við leikvollinn við Vallarbraut.
29922
Kvisthagi
2ja herb. 60 ferm. kjallaraíbúð með sér inngangi. Laus fljótlega.
Verð 21 millj. útb. 15 millj.
Hlíðarnar
2ja herb. íbúð í góðu steinhúsi á 1. hæð. Verð tilboð.
Austurbær
2ja herb. 75 ferm. íbúö í fjórbýlishúsi á 1. hæð með suður svölum.
Verö 22 millj. útb. 16 millj.
Brekkubyggð — Garðabæ
86 ferm. raðhús á einni hæð 2ja—3ja herb. rúmlega tilbúið undir
tréverk. Verð 28 millj. útb. 21 millj.
Framnesvegur
120 ferm. raðhús á þremur hæðum. Eign sem gefur möguleika.
Verö 33 millj. útb. 22 millj.
Furugrund
3ja herb. ca. 90 ferm. íbúð á 3. hæð. Ný og góð eign. Verð 28 millj.
útb. 23 millj.
Miðbraut — Seltjarnarnesi
3ja herb. ný íbúð í fjórbýlishúsi, þvottahús og búr innaf eldhúsinu,
fulninga hurðir, eikareldhús, 30 ferm. bílskúr. Til afhendingar strax.
Verö tilboð.
Fífusel
4ra—5 herb. íbúð á tveimur hæðum. Suður svalir. Rúmlega tilbúin
undir tréverk, til afhendingar strax.
Suðurgata — Hafnarfirði
115 ferm. neðri hæð í 20 ára gömlu steinhúsi. íbúöin er öll
nýstandsett. Gott útsýni. Verð 30 millj. útb. 23 millj.
Kaplaskjólsvegur
Góð 5 herb. íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Tvær samliggjandi
stofur, 3 svefnherb., þar af tvö í risi. Fallegt útsýni. Verð 35 millj.
útb. 26 millj.
Blöndubakki
4ra herb. 120 ferm. endaíbúð á 2. hæð. Þvottahús og búr innaf
eldhúsi. Herb. í kjallara fylgir. Verð 36 millj. útb. 26 millj.
Suðurhólar
5 herb. 115 ferm. íbúð á 4. hæð. Verð tilboð.
Breiðvangur — Hafnarfirði
142 ferm. íbúð á 1. hæð sem er 4 svefnherb., tvær stofur,
þvottahús og búr innaf eldhúsi. Innréttingar í sérflokki. Verö 38
millj. útb. 30 millj.
Hrísateigur
1£0 ferm. miðhæð í góðu steinhúsi. 3 svefnherb. og stofa, J.P.
eldhúsinnréttingar, bílskúr fylgir. Verð tilboð. Útb. 30 millj. -
Háteigsvegur
Efri hæð ásamt risi með bílskúr, möguleiki á skiptum á einbýlishúsi.
Verð tilboð.
Gamalt einbýlishús sem nýtt
5 herb. hæð og ris ásamt 2ja herb. íbúð í kjallara, 40 ferm. bílskúr.
Allt ný endurnýjað. Möguleiki á skiptum á lítilli sérhæð. Eign í
sérflokki. Verð 50 millj. útb. 35 millj.
Seljahverfi
210 ferm. raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Til
afhendingar í apríl. Teikningar á skrifstofunni. Verð tilboð.
Eikjuvogur
Einbýlishús 160 ferm. 10 ára gamalt á einni hæð sem skiptist í 5
svefnherb., tvær stofur með arin, 30 ferm. bílskúr, eingöngu í
skiptum fyrir góða sérhæð. Uppl. á skrifstofunni.
Einbýlishús í Hafnarfirði
120 ferm. nýstandsett einbýlishús á tveimur hæðum. Allt sem nýtt.
Verö 45 millj. útb. 33 millj.
Höfum fjölda góðra einbýlishúsa úti á landi, Hveragerði, Þorláks-
höfn, Eyrarbakka, Eskifirði, Mývatn.
/S FASTEIGNASALAN
^Skálafell
Mjóuhlíö 2 (viö Miklatorg)
Sölustjórl:
Valur Magnússon.
Viöskiptafræöingur:
Brynjólfur Bjarkan,
Helgi
Hálfdanarson:
Reglingur
viðingar
Vinur minn einn bar þaö á mig
í smávegis blaðaþrasi hér um
áriö, að ég væri svo þrætugjarn,
að ég deildi við sjálfan mig, ef ég
hefði ekki aðra til að jagast við.
Þetta var að vísu sagt í gamni;
en eigi að síður hlýnar mér um
hjartarætur af þakklæti, þegar
góðkunningi minn, Magnús
Kjartansson, forðar mér frá
þeim einmanaleik „að ogghnúast
við sjálfan" mig, eins og hann
kemst að orði í grein sinni í
Morgunblaðinu í dag. Þar gerir
hann athugasemdir við skrif
mitt iítilfjörlegt í sama blaði 1.
þm. Margt segir Magnús þar
ágæta vel og skemmtilega, eins
og hans var von og vísa. Hins
vegar er grein hans ekki með
öllu laus við misskilning, sem
mér þykir hlýða að leiðrétta.
Magnúsi þykir ég nota orðin
„réttur" og „rangur“ helzttil
gálauslega, því að þau beri að
varast í umræðum um málfar.
En það kveður hann verið hafa
tilefni greinar minnar, að mér
finnist miður að „þéringar og
véringar" séu að hverfa úr mál-
inu.
Þarna hefur Magnúsi einhvern
veginn sézt yfir það, að þetta
sem ég kallaði fullum stöfum
rangt mál, voru einmitt þér-
ingar. Ég taldi það vera megin-
röksemd fyrir afnámi þérana
(sem Sigf. Blöndal kýs að kalla
svo), að þær væru „málfarslegt
óeðli“. Með þérunum er jafnan
við það átt „að segja þér við eina
persónu í stað þu“, eins og sagt
er um sögnina „þéra“ í orðabók
Menningarsjóðs. Enn fremur
kallaði ég það rangt „að segja
„vér“ um sjálfan sig einan (eins
og kóngurinn)". Magnús hefur
sem sé misskilið mig svo ger-
samlega, að allt hefur snúizt við,
og hlýtur það að vera mín sök,
því ekki þvælist að jafnaði fyrir
Magnúsi Kjartanssyni að skilja
mælt mál.
Magnús er ekki einn um það
að vilja forðast í lengstu lög að
dæma eitt réttara en annað í
máli. Varla mun honum þó þykja
mjög óvarlegt að kalla það rétt
mál, að einn maður segi „ég“ um
sjálfan sig en „vér“ um sig og
fleiri. Hitt kynni fremur að
þykja álitamál, að hægt sé að
dæma það fullum fetum rangt að
tala um einn mann í fleirtölu,
svo sem ég hélt þó fram um
þéranir. Samt hika ég ekki við að
kalla það rangt mál að segja
„Þarna koma svartir hundur",
eða „Hér er grár kettir“, og þar
erum við Magnús auðvitað á
sama máli. En ætli það sé þá
ekki ámóta rangt mál að segja
„Komið þér sælir, Jón.“? Það
hygg ég sé ein sú málvilla, sem
aldrei getur orðið að réttu máli,
hversu oft og lengi sem hún er
endurtekin; enda kallar Magnús
hana yfirstéttarfyrirbæri, sem
oft hafi gert alþýðufólk klumsa.
Magnús segir það vera ein-
kenni lifandi máls að vera
síbreytilegt, það sem talið sé rétt
í dag, sé einatt orðið rangt á
morgun. Þarna virðist mér
Magnús tala í anda þeirra
manna, sem vilja fyrir hvern
mun, að alla málþróun reki á
reiðanum án neinna verndunar-
afskipta, því málið geti þá aðeins
lifað, þegar það fái óátalið að
breytast eins og hverjum og
einum endist duttlungar og
trassaskapur til. Það ætti að
liggja í augum uppi, hvernig
tungunni reiðir af, ef hún á að
mæta berskjölduð því gerninga-
veðri, sem yfir hána dynur nú á
tímum. Ef til vill má svo kalla,
að mál íslendinga muni áfram
lifa, þó að það hætti að vera það
sem nú kallast íslenzka. En
Nýi hjúkrunarskólinn hrautskráði 15 goðhjúkrunaríræðinga skömmu fyrir jól.
Frcmsta röð frá vinstri: María Pétursdóttir skólastjóri, Bergþóra Helgadóttir, Ida
Atladóttir. Marie Lysnes. kennari í geðhjúkrun. Miðröð frá vinstri: Ingibjörg Ilákonardóttir,
Guðlaug Guðmundsdóttir. Margrét Blöndal. Margrét Eiríksdóttir. Jóna Magnúsdóttir, Sólborg
Olga Bjarnadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Arndís Ellertsdóttir, Erla Friðriksdóttir og Guðrún
Ragnarsdóttir. Ljósmynd: Mats.
Meiri orka og skapandi greind
Almennur kynningarfyrirlestur
um tæknina Innhverfa íhugun veröur haldinn þriðjudagskvöld kl. 20.30
Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóöleikhúsinu). M.a. verður fjallað um vísindalegar
rannsóknir, sem sýna þróun í vitundarlífi hjá einstaklingum. Innhverf íhugun er
einföld, andleg tækni, og veitir hug og líkama djúpa hvíld.
Allir velkomnir.
islenska íhugunarfélagiö.