Morgunblaðið - 05.02.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
11
margan uggir, að þá hætti þjóðin
einnig að vera það sem nú er átt
við með heitinu íslendingar,
nema það nafn hljóti merkingu
sína af því einu að hafa búsetu á
þessari eyju.
Sennilega hefur íslenzk tunga
aldrei verið fremur lifandi en
einmitt á þessari öld, og hefur
hún þó ekki þurft að breytast
meira en svo í tímanna rás til
þess að tóra, að þeir Islendingar,
sem nú stíga fæti á fold, skilja
viðlíka vel Snorra Sturluson og
Halldór Laxness. Það er einmitt
eitt af einkennum íslendings að
skilja þessa menn báða.
Ég hef haldið því fram, að það
sé oss íslendingum nauðsyn að
mál vort breytist sem allra
minnst, að íslenzk tunga eigi
ekki að laga sig að breyttum
tímum með því að breytast,
heldur með því einu að vaxa;
hún eigi að vaxa linnulaust,
sjálfur orðaforðinn eigi sífellt að
aukast eftir nýjum þörfum, jafnt
á huglægum sem verklegum
vettvangi, ýmist með tökuorðum
eða nýyrðum, helzt með hvoru-
tveggja, en nýir málbeitendur
eigi að rækta ný stílbrigði, finna
sama tungumáli ný tök á nýrri
hugsun.
Ef málið fær hins vegar að
brenglast og bramlast eins og
verkast vill án allrar verndar, ef
Islendingar hætta að hlutast til
um það sjálfir, að sem mest af
því, sem talið er rétt í dag, verði
einnig talið rétt á morgun, er
hætt við að þess verði skammt
að bíða, að íslendingar hætti að
skilja rit Snorra Sturlusonar. En
merkur fræðimaður hefur kom-
izt svo að orði: „Ef vér fórnum
Snorra, þá er Halldóri Laxness
einnig fórnað, og öllu sem er á
milli þeirra."
Skyldi það ekki vera æðsta
dyggð íslendinga og veraldar-
hlutverk öðru fremur að varð-
veita þetta merkilega bók-
menntamál, svo að eflast megi
að sama skapi fjölbreytnin í
mannlegri hugsun, mannlegri
sköpun. Því það sem sagt er á
einu máli, verður ekki sagt hið
sama á neinni annarri tungu. Og
málrækt Islendinga er ekki að-
eins skylda við merkilega þjóð-
menningu, skylda við þau lifandi
verðmæti, sem íslenzk tunga
hefur skapað fyrr og síðar,
heldur er hún um leið baráttu-
nauðsyn til varnar pólitísku og
efnalegu sjálfstæði. Þar er sú
landhelgi, sem hvað helzt er von
til að ágeng veröld virði. Hverri
kynslóð Islendinga ber skylda til
að glíma við þann málræktar-
vanda að gera íslenzka tungu
hlutgenga á öllum sviðum sam-
tíma-lífs, án þess hún fjarlægist
bókmenntir sínar á liðinni tíð.
Ég hélt því fram, að flótti til
einföldunar væri skuggalegt
hnignunarmerki málsins. Þessa
kenningu segist Magnús telja
alranga. Hins vegar segir hann í
sömu andránni, að engir tveir
Islendingar hafi sama orðaforða
á takteinum né beiti honum á
sama hátt; hann talar um „regl-
ingsmenn" (hvað sem það nú
merkir) og virðist telja mig til
þeirra; hann segir: „Ef reglings-
mönnum tækist að innræta öll-
um sama orðaforða og láta þá
beita honum á sama hátt yrði
íslenzk tunga að þrælakistu;
þess yrði ekki lengur neinn
kostur að orða nýstárlega hugs-
un á nýstárlegan hátt“. — Þessu
kem ég ekki heim og saman. I
grein minni var ég einmitt að
hvetja til þess, að varðveitt yrði
sem allra mest fjölbreytni í
máli; ég mælti gegn þeirri ein-
földun, sem gerði tungutakið
fátæklegra, eyddi hollri fjöl-
breytni í orðafari, þurrkaði út
blæbrigði merkinganna, svipti
málið nákvæmni sinni og
þröngvaði stílkosti þess. Sú var
einmitt ástæðan til þess, að ég
lagðist gegn þeirri einföldun að
útrýma fleirtölu persónufor-
nafna og nota ævinlega tvítöluna
í hennar stað, hvernig sem á
stæði. Af sögðu mætti ætla, að
„reglingur" væri barátta gegn
málfátækt; það veit ég þó, að
Magnús meinar ekki; en hvað
meinar hann þá? Auðvitað erum
við Magnús sammála um það, að
hugsun verði jafnan skýrast
túlkuð með sem einföldustu
orðalagi. En sá einfaldleiki er
annars eðlis en sú einföldun
máls, sem ég ræddi um. Og hann
verður þeim mun markvísari
sem meiri fjölbreytni í máli er
tiltæk.
Magnús tekur upp tvær smá-
klausur, sem ég bar saman, og
segir að mér finnist önnur þeirra
falleg! Það stóð nú hvergi í
minni grein. Ég var einungis að
bera saman notkun orðanna
„vér“ og „vor“ annars vegar og
„við“ hins vegar. Svona hefði víst
hvorugur okkar tekið til orða að
öðrum kosti, heldur eitthvað líkt
því sem hann stingur upp á,
nema hvað ég hefði sagt „eftir þá
sem nú lifa“ í stað „eftir okkur
sem nú lifurn", eins og hann vill
hafa.
Mér er alger ráðgáta, hvað
Magnús á við með því, að afnám
þérana sé til marks um aukið
jafnræði. Þessi siður hafði ger-
samlega gengið sér til húðar sem
stéttartákn. Og síðan spyr
Magnús: „eru allar breytingar í
jafnréttisátt til ills?“ Það er ég
viss um, að svona spyr Magnús
mig ekki í alvöru. Hann veit vel,
að þjóðfélagslegt jafnrétti er
hjartanlegt áhugamál okkar
beggja. En skyldi jafnréttis-
baráttan eiga sér nokkurt betra
vopn en fullkomið og ríkulegt
málfar?
3. febrúar 1980
Ferðaáætlun F.í. 1980 komin út:
220 ferðir farnar
á vegum félagsins
FERÐAÁÆTLUN Ferða-
félagsins fyrir 1980 er kom-
in út. í henni eru auglýstar
um 220 ferðir, sem skiptast
í sumarleyfisferðir, helgar-
ferðir, dagsferðir og kvöld-
ferðir. Auk þess eru fyrir-
hugaðar laugardagsferðir,
sem jafnframt eru fræðslu-
ferðir. Einnig auglýsa
deildir F.í. sínar ferðir í
áætluninni.
Margar ferðanna eru með svíþ-
uðu sniði ár frá ári. Margar af
ferðunum eru gönguferðir,
sumar að mestu leyti, aðrar
blandaðar öku- og gönguferðir. Á
þetta við bæði um sumarleyfis-
ferðirnar og helgarferðir. Á
síðast liðnu sumri var reist
sæluhús við Álftavatn, á Fjalla-
baksleið syðri og verða fastar
helgarferðir þangað í júlí og
ágúst. Með tilkomu þess húss
aukast göngumöguleikar á svæð-
inu á milli Landmannalauga og
Þórsmerkur afar mikið. Á sl.
sumri var í fyrsta skipti sérstak-
ur GÖNGUDAGUR á dag-
skránni. Á þriðja hundrað
manns tóku þátt í gönguferð
þann dag. Nú verður aftur efnt
til GÖNGUDAGS á þessu ári og
verður hann 15. júní og með
sama sniði og í fyrra.
Sumarleyfisferðirnar eru 26 og
standa yfir frá 4 dögum sú styzta
og upp í 12 daga og er boðið upp á
ýmsar nýjungar í þeim.
Á s.l. ári voru alls farnar 233
ferðir með 7508 farþega eða 32 að
meðaltali í ferð, er það 705
farþegum fleira en árið 1978.
y FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
W Símar 19533 - 11798
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Costa del Sol
Pdskaferð 2. apríl, 12 dagar.
Verð frá kr. 258.900 -
TRYGGIÐ YKKUR BEZTU GISTISTAÐINA
FANTIÐ^*
TÍMANLEGÁ
Kanaríeyjar
Brottför 17. febrúar uppselt.
Næsta brottför 9. marz.
Florida- Miami
Brottför 14. febr. uppselt.
Næsta brottför 6. marz.
STAÐFESTIÐ PANTANIR
SUMARVERÐIN KOMIN.
»
—
Alliv farseðíar
d lœg&ta uerði
Fe röciþjón u&t cui
viöurk e n n cl ci