Morgunblaðið - 05.02.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
15
Aðvörun forsætisráðherra
Noregs
Fleiri hafa áttað sig á þessu.
Einn þeirra er Odvar Nordli for-
sætisráðherra Noregs, sem lét svo
ummælt í ræðu, er hann hélt í
Hróarskeldu fyrir nokkrum dög-
um: „Innrásin í Afganistan er
alvarleg aðvörun til allra þjóða
Evrópu.“ Hann ræddi um hina
„örlagaríku þróun í Afganistan,
þar sem raunveruleg hernaðar-
innrás var gerð í þeim tilgangi að
skapa pólitísk yfirráð yfir óháðu
landi. „Þetta er ekki Evrópa,"
segir kannski einhver. Nei, að
vísu, en það er um að ræða
sjálfstætt land með sjálfstæðu
fólki, sem hefur verið svo óheppið
að búa óvarið í nágrenni við stórt
heimsveldi. Fyrir allar þjóðir Evr-
ópu er þetta alvarleg aðvörun um
að það er ennþá langur vegur til
raunverulegrar slökunar og frið-
samlegrar sambúðar, líka í Evr-
ópu.“
Samstæða Vestur-Evrópu
og Norður-Ameríku
Síðar í ræðu sinni sagði Nordli:
„Við þessar aðstæður er það mik-
ilvægt, að Vestur-Evrópa og
Norður-Ameríka standi áfram vel
saman. Mestu máli skiptir, að
þessir aðilar gæti þess, að haga
sér ekki þannig, að unnt verði að
tefla öðrum þeirra gegn hinurn."
Það hlýtur líka að vera ljóst, að í
dag er raunverulegt öryggi fyrir
hin vestrænu lýðræðisríki hvergi
að finna, nema í nánu samstarfi
Vestur-Evrópu og Norður-
Ameríku." Þetta voru orð Odvars
Nordlis. Hann talaði líka af ný-
lega fenginni reynslu.
Hótun Rússa
gagnvart Norðmönnum
Þess er skemmst að minnast, að
skýrt var frá því í norsku lands-
byggðarblaði, að Norðmenn hefðu
vegna innrásarinnar í Afganistan
eflt varnir sínar í Norður-Noregi.
Rússneski björninn lyfti þá
hrammi sínum án frekari umsvifa
og hótaði Norðmönnum með frétt
frá Tass-fréttastofunni rússnesku
þess efnis, að með þessu ógnuðu
Norðmenn öryggi Sovétríkjanna
og byggju í haginn fyrir innrás í
þau. I framhaldi af þessu var
hvatt til þess í norskum fjölmiðl-
um, að menn væru á verði gegn því
að kommúnistar smeygðu sér í
vaxandi mæli til valda í stofnun-
um og samtökum þjóðfélagsins og
dreifðu áhrifum sínum innan frá
undir öðru yfirskini.
Stjórnaraðild —
gæðastimpill
Menn sjá af öllu þessu hvílíku
meginmáli það skiptir núna fyrir
Brésnef og Moskvumenn að flokk-
arnir, sem kommúnistar ráða í
Evrópu fái gæðastimpla frá lýð-
ræðissinnum og sé trúað fyrir
völdum. Omögulegt er að horfa
fram hjá því, að á íslandi er
Alþýðubandalagið slíkur flokkur.
Það hefur því ekki einungis verið
óskynsamlegt og óþarft, heldur
væri það glæpræði nú, að setja
Alþýðubandalagsmenn yfir ráðu-
neyti á íslandi.
Vitanlega á að halda áhrifum
kommúnista í því lágmarki, sem
lýðræðislegar og löglegar aðferðir
framast leyfa. Að mínu mati er
það siðferðileg skylda lýðræðis-
flokkanna gagnvart almenningi,
sem hefur kosið þá til að fara með
stjórn landsins.
Vararæðis-
skrifstofa í
Moss í Noregi
Opnuð hefur verið vararæð-
isskrifstofa í Moss í Noregi.
Vararæðismaður er William
Asbjörnsen. Skrifstofan er
að Strandgaten 10. Moss.
AUia.YSINI.ASIMINN ER:
22480
JHoroiwblnbiti
Sjgurlaug Bjarnadóttir:
Á ísland að hætta við þátttöku
í Olympíuleikunum í Moskvu? —
er spurt um þessar mundir.
Svörin eru ýmist jákvæð eða
neikvæð en öllum þeim, sem
svara er það sameiginlegt, að
þeim er mikið niðri fyrir. íslenzk
stjórnvöld hafa vísað frá sér
ákvörðun í málinu til íþrótta-
hreyfingarinnar í landinu og
ekki verður betur séð en að
meirihluti forystumanna á þeim
vettvangi sé því hlynntur, þrátt
fyrir allt, að halda til Moskvu.
í krafti
Þeirra megin rök eru þau, að
ekki megi blanda saman íþrótt-
um og pólitík. Um það eru allir
sammála, en engir vita það betur
en íþróttamennirnir sjálfir, að í
reyndinni er sú röksemd ósk-
hyggja ein og blekking. I sósíal-
istaríkjunum hafa íþróttir verið
notaðar miskunnarlaust í áróð-
ursskyni til að ganga í augun á
umheiminum og sanna ágæti
sósíalísks þjóðskipulags. Þræls-
agi atvinnumennskunnar hefir
þar náð tilætluðum árangri í
mörgum glæsilegum sigrum á
alþjóðavettvangi. Hér mun að
vísu víðar pottur brotinn, ekki
síst hjá stórþjóðum sem alls
staðar þurfa að láta ljós srtt
skína.
Farið á svig við
kjarna málsins
„Islendingar eiga ekki að taka
við áróðurs tilskipunum frá
Washington," — er önnur mót-
bára, sem fram hefir komið gegn
því að hætta við þátttöku í
Ólympíuleikum í Moskvu. Nei,
aldeilis ekki. En hér er farið á
svig við kjarna málsins. Hér er
ekki um að ræða, að við dönsum
eftir pólitískri pípu úr einni eða
annarri átt. Það er rödd hinnar
mannlegu samvizku, sem á ann-
að borð gefur sér tíma til að
hugsa málið, mynda sér skoðun
— taka afstöðu.
Hernaðarinnrás Sovétmanna
og ofbeldisverk í Afganistan er
ógnun við heimsfriðinn. Um það
er ekki deilt, — það stríkkar
nokkuð á slökunarstefnunni. En
ennþá þyngra á metunum, að því
er varðar þátttöku eða ekki í
Olympíuleikunum, er samt sú
hliðin, er veit að hinum almennu
mannréttindum, og hvernig þau
hafa verið og eru fótum troðin í
þessu risaveldi kommúnismans,
sem nú býður þjóðum heims til
Olympíuleika undir friðarfána
fagurra hugsjóna á sama tíma
og hert er þar á ofsóknum gegn
andófsmönnum, sem voga sér að
hugsa og tala eins og frjálsir
menn.
Ákall til Vesturlanda
I heilagri vandlætingu berjum
við okkur á brjóst, er okkur
berast neyðaróp sovéskra and-
ófsmanna, aðvaranir þeirra og
ákall til Vesturlanda um hjálp.
Þeir biðja ekki um hernaðar-
aðstoð með báli og brandi. Þeir
leggja áherzlu á, að árangursrík-
asta liðveizlan, sem Vesturlönd
geti veitt sé einmitt sú að draga
úr eða hafna með öllu samvinnu
og samskiptum við Sovétríkin á
sviði menningar, lista og vísinda,
— beita þau þrýstingi úr þeirri
átt til að knýja fram aukið frelsi
og mannréttindi til handa þeim
hundruðum milljóna Sovét-
borgara, sem í dag fara þessara
sjálfsögðu lífsgæða á mis.
Ákvörðun íþróttamanna um all-
an heim að hafna þátttöku í
Ólympíuleikum í Moskvu væri
margfalt sterkari aðgerð í þá átt
en ákvörðun pólitískra topp-
manna stórveldanna, sem um-
luktir eru tortryggni og spennu.
í krafti
mannlegrar samúðar
Sú ákvörðun færi ekki fram
hjá neinum. Hún myndi styrkja
almenningsálitið innan Sovét-
ríkjanna, vekja það til vitundar
um, að umheimurinn hefir vit-
neskju um ástandið austur þar
og vill, í krafti mannlegrar
samúðar og samstöðu, koma til
liðs við stríðandi frelsisöfl gegn
ófrelsi og kúgun. íslendingum
sem sjálfstæðri þjóð er ósam-
boðin sú hugsun, að fámenni
okkar og smæð firri okkur
ábyrgð í þessu máli. Okkur ber
skylda til að leggja hér okkar
litla lóð á vogarskálina engu
síður en þegar við veitum við-
töku nauðstöddum flóttamönn-
um úr fjarlægri heimsálfu eða
sendum rausnarlegar peninga-
gjafir til að forða sveltandi
meðbræðrum okkar frá hungur-
dauða.
Við höfum tækifæri nú til að
sýna í verki, að við höfum heyrt
og tekið alvarlega ákall þeirra
Solshenitsyns, Búkowskís, Sakh-
arovs, Kortsnojs og allra hinna
sovésku andófsmannanna, sem
hafa sagt heiminum örlagasögu
sína og þjóðar sinnar. — Hér á
engin hálfvelgja við. Djörf og
drengileg samstaða iþrótta-
manna um allan heim um að
hætta við Moskvuför væri eðli-
legt andsvar við mahnfyrirlitn-
ingu valdhafanna í Kreml og um
leið verðugt framlag í barátt-
unni fyrir frelsi og mannréttind-
um, hvar í heiminum sem hún er
háð.
Sjálfsafneitun og fórn
Við vitum og skiljum mæta
vel, að það myndi kosta okkar
íslenzku íþróttamenn sem aðra
mikla sjálfsafneitun og fórn að
hætta nú við þátttöku í Ólymp-
íuleikunum svo mikið sem þeir
hafa á sig lagt til undirbúnings.
En til eru fleiri sigrar ekki
minna verðir en þeir, sem
steyptir eru í gull og silfur úr sér
genginnar og vanvirtrar Ólymp-
íuhugsjónar.
Sigurlaug Bjarnadóttir.
samúðar og samstöðu
Hljómplötu-
útsala
Okkar landsfræga hljómplötuútsala ífullumgangi
Viö bjóöum popp, íslenskar plötur, létta
tónlist, klassík og kassettur.
Afslátturinn
er allt aö
90°/(
o
FALKIN N
Suðurlandsbraut 8 Laugavegi 24
Simi 84670 Simi 18670
Látiö þetta tækifæri ekki fram hjá ykkur
fara.