Morgunblaðið - 05.02.1980, Side 37

Morgunblaðið - 05.02.1980, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980 37 Meömælendur forsetaframbjóðenda: 1070 séu úr Sunn- lendingafjórðungi — 430 úr öðrum FORSETARÁÐUNEYTIÐ hefur í?efið út svolátandi auglýsingu í Lögbirtingablaði um framboð og kjör forseta íslands: Kjör forseta íslands skal fram fara sunnudaginn 29. júní 1980. Framboðum til forsetakjörs skal skila í hendur dómsmála- ráðuneytinu, ásamt samþykki for- setaefnis, nægilegri tölu meðmæl- enda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu á kjörskrá, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjör- dag. Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosningabærra manna, en mest 3000, er skiptist þannig eftir landsfjórðungum: um) séu minnst 1070 meðmælend- ur, en mest 2145. Úr Vestfirðingafjórðungi (Mýrasýslu — Strandasýslu, að báðum meðtöldum) séu minnst 115 meðmælendur, en mest 230. Úr Norðlendingafjórðungi (V.-Húnavatnssýslu — S-Þingeyj- arsýslu, að báðum meðtöldum) séu minnst 220 meðmælendur, en mest 440. Úr Austfirðingafjórðungi (N-Þingeyjarsýslu — A-Skafta- fellssýslu, að báðum meðtöldum) séu minnst 95 meðmælendur, en mest 185. Lyfjatæknaskóli íslands útskrifaði fyrir nokkru 7 lyfjatækna. en nám þeirra tekur 3 ár. Bcra þeir merki við störf sín. gyllt á bláum grunni. Á myndinni eru. aftari rcið f.v.: Guðlaug Ágústsdóttir. Sigrún Ósk Skúladóttir. Ólafur ólafsson skólastjóri. Sigríður Jóhannsdóttir og Guðrún Einarsdóttir. Fremri röð f.v.: Kristín Jónsdóttir. Guðbjörg Andrésdóttir og líagnheiður Ilinriksdóttir. Úr Sunnlendingafjórðungi (V.-Skaftafellssýslu — Borgar- fjarðarsýslu, að báðum meðtöld- Þorsteinn Bergsson for- maður Torfu- samtakanna AÐALFUNDUR Torfusamtak- anna var haldinn laugardaginn 25. janúar síðastliðinn. Fráfarandi formaður samtak- anna. Guðrún Jónsdóttir. flutti þar skýrslu um starfið síðastliðið ár og þá breyttu stöðu sem orðið hefur í aðalbaráttumáli þeirra, friðun Bernhöftstorfu. Reikningar samtakanna voru lagðir fram og samþykktir ásamt lagabreytingu sem fráfarandi stjórn lagði til í ljósi hinna breyttu aðstæðna. Ný stjórn var kjörin. Guðrún Jónsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir og Richard Hördal gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. í þeirra stað voru kosin Lilja Árnadóttir, Ás- gerður Ólafsdóttir og Hallgrímur Guðmundsson. Formaður var kos- inn Þorsteinn Bergsson. Allnokkrar umræður urðu um húsverndunarmál almennt og samþykktar nokkrar ályktanir. Var þar m.a. fagnað friðun Bern- höftstorfunnar og lýst ánægju yfir endurvinnslu skipulags , Grjóta- þorps og skorað á borgaryfirvöld að stuðla að því að tekið verði fullt tillit til gamalla húsa í þorpinu. Loks harmaði fundurinn það að Norðurpóllinn á Akureyri skyldi hafa verið rifinn og skoraði á bæjaryfirvöld þar að standa betri vörð um eldri byggðina. Einingarsamtök kommúnista: Fagna ákvörðun verkamannanna MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Einingar- samtökum kommúnista. marx- lenínista: Einingarsamtök kommúnista (marx-lenínista) sjá ástæðu til þess að fagna ákvörðun verkamanna á Keflavíkurflugvelli um að afgreiða ekki sovéskar flugvélar nú um sinn. Samtökin hvetja eindregið stétt- arfélög, samtök íþróttamanna og einstaklinga til þess að sýna stuðn- ing við þjóðfrelsi Afganistans og andófsöfl Sovétríkjanna í verki. •:• Verö: Ca. 3.130. þús. m 1200 Síöastliöiö ár og það sem af er þessu ári, er LADA mest seldi bíllinn. Það er vegna þess að hann er á mjög hagstæðu verði, og ekki síst, að hann er hannaður fyrir vegi sem okkar. -tf & mmm UPPSELDUR, oM: ' Nu eru allir LADA bílar með höfuðpúðum, viðvörun- arljósum ofl. ofl. V •j|Ver^ca^85^þúsl LAOA IVerö-.Ca. 3.570. þús. « yrz/r§ LADA station er hægt að fá með 1200 sm3 eða 1500 sm3 vél. LADA „er mest seídi billinn” BIFREIÐAR & LANDBUNADARVELAR Suðurlandsbraut 14, sími 38600 Góöir greiösluskilmálar Söludeild sími 312 36

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.