Morgunblaðið - 05.02.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
37
Meömælendur forsetaframbjóðenda:
1070 séu úr Sunn-
lendingafjórðungi
— 430 úr öðrum
FORSETARÁÐUNEYTIÐ hefur
í?efið út svolátandi auglýsingu í
Lögbirtingablaði um framboð og
kjör forseta íslands:
Kjör forseta íslands skal fram
fara sunnudaginn 29. júní 1980.
Framboðum til forsetakjörs
skal skila í hendur dómsmála-
ráðuneytinu, ásamt samþykki for-
setaefnis, nægilegri tölu meðmæl-
enda og vottorðum yfirkjörstjórna
um að þeir séu á kjörskrá, eigi
síðar en fimm vikum fyrir kjör-
dag.
Forsetaefni skal hafa meðmæli
minnst 1500 kosningabærra
manna, en mest 3000, er skiptist
þannig eftir landsfjórðungum:
um) séu minnst 1070 meðmælend-
ur, en mest 2145.
Úr Vestfirðingafjórðungi
(Mýrasýslu — Strandasýslu, að
báðum meðtöldum) séu minnst
115 meðmælendur, en mest 230.
Úr Norðlendingafjórðungi
(V.-Húnavatnssýslu — S-Þingeyj-
arsýslu, að báðum meðtöldum) séu
minnst 220 meðmælendur, en
mest 440.
Úr Austfirðingafjórðungi
(N-Þingeyjarsýslu — A-Skafta-
fellssýslu, að báðum meðtöldum)
séu minnst 95 meðmælendur, en
mest 185.
Lyfjatæknaskóli íslands útskrifaði fyrir nokkru 7 lyfjatækna. en nám þeirra tekur 3 ár. Bcra þeir merki
við störf sín. gyllt á bláum grunni. Á myndinni eru. aftari rcið f.v.: Guðlaug Ágústsdóttir. Sigrún Ósk
Skúladóttir. Ólafur ólafsson skólastjóri. Sigríður Jóhannsdóttir og Guðrún Einarsdóttir. Fremri röð f.v.:
Kristín Jónsdóttir. Guðbjörg Andrésdóttir og líagnheiður Ilinriksdóttir.
Úr Sunnlendingafjórðungi
(V.-Skaftafellssýslu — Borgar-
fjarðarsýslu, að báðum meðtöld-
Þorsteinn
Bergsson for-
maður Torfu-
samtakanna
AÐALFUNDUR Torfusamtak-
anna var haldinn laugardaginn
25. janúar síðastliðinn.
Fráfarandi formaður samtak-
anna. Guðrún Jónsdóttir. flutti
þar skýrslu um starfið síðastliðið
ár og þá breyttu stöðu sem orðið
hefur í aðalbaráttumáli þeirra,
friðun Bernhöftstorfu.
Reikningar samtakanna voru
lagðir fram og samþykktir ásamt
lagabreytingu sem fráfarandi
stjórn lagði til í ljósi hinna
breyttu aðstæðna.
Ný stjórn var kjörin. Guðrún
Jónsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir
og Richard Hördal gáfu ekki kost
á sér til endurkjörs. í þeirra stað
voru kosin Lilja Árnadóttir, Ás-
gerður Ólafsdóttir og Hallgrímur
Guðmundsson. Formaður var kos-
inn Þorsteinn Bergsson.
Allnokkrar umræður urðu um
húsverndunarmál almennt og
samþykktar nokkrar ályktanir.
Var þar m.a. fagnað friðun Bern-
höftstorfunnar og lýst ánægju yfir
endurvinnslu skipulags , Grjóta-
þorps og skorað á borgaryfirvöld
að stuðla að því að tekið verði fullt
tillit til gamalla húsa í þorpinu.
Loks harmaði fundurinn það að
Norðurpóllinn á Akureyri skyldi
hafa verið rifinn og skoraði á
bæjaryfirvöld þar að standa betri
vörð um eldri byggðina.
Einingarsamtök
kommúnista:
Fagna ákvörðun
verkamannanna
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Einingar-
samtökum kommúnista. marx-
lenínista:
Einingarsamtök kommúnista
(marx-lenínista) sjá ástæðu til þess
að fagna ákvörðun verkamanna á
Keflavíkurflugvelli um að afgreiða
ekki sovéskar flugvélar nú um sinn.
Samtökin hvetja eindregið stétt-
arfélög, samtök íþróttamanna og
einstaklinga til þess að sýna stuðn-
ing við þjóðfrelsi Afganistans og
andófsöfl Sovétríkjanna í verki.
•:•
Verö: Ca. 3.130. þús.
m
1200
Síöastliöiö ár og það sem
af er þessu ári, er LADA
mest seldi bíllinn.
Það er vegna þess að hann
er á mjög hagstæðu verði, og
ekki síst, að hann er
hannaður fyrir vegi sem okkar.
-tf
&
mmm
UPPSELDUR,
oM: '
Nu eru allir LADA bílar með
höfuðpúðum, viðvörun-
arljósum ofl. ofl.
V
•j|Ver^ca^85^þúsl
LAOA
IVerö-.Ca. 3.570. þús. «
yrz/r§
LADA station er hægt að fá með 1200 sm3 eða 1500 sm3 vél.
LADA „er mest seídi billinn” BIFREIÐAR & LANDBUNADARVELAR Suðurlandsbraut 14, sími 38600
Góöir greiösluskilmálar Söludeild sími 312 36