Morgunblaðið - 23.02.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1980
3
Nemendur úr Gangíræðaskóla Hveragerðis
og Bjarni Eiríkur Sigurðsson kennari.
fyrir utan Morgunblaðshúsið i gær. Með þeim á myndinni eru Valgarð Runólfsson skólastjóri
Ljósm. Mbl. Emilía.
„Liggur við að í Hveragerði
sé öll fjölskyldan í skóla“
RÚMLEGA 50 manna hópur nem-
enda úr 7. og 8. bekk Gagnfræða-
skóla Hveragerðis voru í reisu í
höfuðborginni i gær og litu þá
m.a. inn á ritstjórn Mbl., en
tilgangurinn með förinni var að
kynna sér starfsemi nokkurra
fyrirtækja og stofnana á Reykja-
vikursvæðinu.
Mbl. tók f jóra nemendurna tali,
þau Helendu Björgu Pálsdóttur
úr 8.H, Vaidimar Hafsteinsson úr
7. bekk, Sigurð Heiðar Valdi-
marsson úr 8. bekk ö og Hörpu
Rós Björgvinsdóttur úr 7. bekk,
og ræddi við þau um Reykjavikur-
ferðina og félagslifið i skólanum.
Þau sögðust hafa m.a. litið við
hjá Rikisútvarpinu og Mjólkur-
samsölunni, auk þess sem þau
kynntu sér hvernig Morgunblaðið
verður til. Þá skellti hópurinn sér
50 manna hópur nemenda í
Gagnfræðaskóla Hveragerðis
í kynnisferð í höfuðborginni
i hamborgara á kaffiteriu Hótels
Loftleiða i hádeginu.
Skoðaðar voru allar deildir út-
varpsins, og fannst þeim sérkenni-
legast hvernig útvarpsleikrit eru
tekin upp.
Nemendurnir sögðu að þessi
starfsfræðsluferð væri sú önnur í
röðinni, og í ráði væri að halda
þeim áfram. Ferðirnar væru liður í
annars umfangsmiklu félagslífi í
skólanum.
Félagslífið væri undir umsjón
stjórnar skólafélagsins, en ein-
stakar nefndir hefðu umsjón með
ákveðnum verkefnum. Skemmtan-
ir væru algengar og tekjurnar sem
inn kæmu færu í sjóð til styrktar
væntanlegri Noregsferð 9. bekkjar
í vor.
Foreldrar tækju snaran þátt í
félagslífinu og væri heildarstefnan
að brúa hið svonefnda kynslóðabil.
Bekkirnir hefðu hver um sig efnt
til foreldrakvölds, og nú væri
komið að foreldrunum að endur-
gjalda það, og væri framundan
fyrsta skemmtikvöldið, þar sem
foreldrar nemenda sæju alfarið um
skemmtiatriðin. Á þessum kvöld-
um, og reyndar öllum öðrum
skemmtunum, kæmu foreldrar og
nemendur saman, nytu veitinga
hvert með öðru og stigu dans, eins
og ein heild.
„Það var gerð tilraun með þessi
foreldrakvöld í fyrra. Þau þóttu
takast það vel, að nú hafa þau
verið gerð að föstum lið í félags-
starfinu," sögðu fjórmenningarnir.
Þau sögðu að diskótek væru
a.m.k. hálfsmánaðarlega, spila-
kvöld, og auk þess væri efnt til
aukatíma eftir venjulega skóla-
tíma, t.d. í fimleikum, tónlist,
badminton og handbolta. Skóla-
hljómsveit væri starfandi. Nem-
endur tækju þátt í starfi hesta-
mannafélagsins í Hveragerði, og
farnar væru skíðaferðir um helgar
í Hveradali eða Bláfjöll.
Að lokum sögðu þau að margir
foreldranna væru einnig setztir á
skólabekk, því að hleypt hefði verið
af stokkunum öldungadeild í
Hveragerði eftir áramót, og væru
þar um 100 manns í námi. „Það
liggur því við að í Hveragerði sé öll
fjölskyldan í skóla," sögðu þau.
Flugmannadeilan:
Gunnar G.
Schram að-
stoðarsátta-
semjari
RÍKISSÁTTASEMJARI, Guð-
laugur Þorvaldsson, hefur til-
nefnt Gunnar G. Schram, prófess-
or, sem aðstoðarsáttasemjara,
sem falið er að vinna sjálfstætt að
lausn á kjaradeilu flugmanna og
vinnuveitenda þeirra. Hefur
Gunnar þegar fengið í hendur
gögn málsins.
Guðlaugur sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann hefði tilnefnt
Gunnar til þessa starfa í samráði við
aðila deilunnar. Gunnar muni nú
kynna sér málið og kvaðst Guðlaug-
ur ætla að upp úr helginni ákveddi
Gunnar, hvaða stefnu hann tæki til
lausnar deilunni.
Tiinefning Gunnars G. Schram er
samkvæmt lögum um embætti sátta-
semjara ríkisins.
„Listiðn ís-
lenskra kvenna“
lýkur á morgun
í DAG er næst síðasti opnunardag-
ur sýningarinnar „Listiðn íslenskra
kvenna". Það er Bandalag kvenna í
Reykjavík sem stendur að sýning-
unni en þar eru verk eftir 36
listakonur. Auk þess eru þar sýnd
handbrögð við vefnað, spuna og
knipplingar og öðru hvoru eru þar
tískusýningar undir stjórn Unnar
Arngrímsdóttur, m.a. í dag kl. 16 og
á morgun kl. 15. Sýningin er opin í
dag og á morgun kl. 14—22. For-
maður Bandalags kvenna í
Reykjavík er Unnur Ágústsdóttir
en formaður sýningarnefndarinnar
er Guðrún S. Jónsdóttir.
INNLEN-T
MITSUBISHI
MOTORS
COiT er framhjóladrifinn.
COLT er sparneytinn (eyðsla 7I./100 km.).
COIT er rúmgóður.
COLT er fáanlegur 3 og 5 dyra. '
Sá bestifráJAPAN
Komið, skoðið og reynsluakið COLT1980 frá MITSUBISHI.
Varahluta og viðgerðarþjónusta Heklu hf. er landskunn.