Morgunblaðið - 08.03.1980, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980
Hvalveiðar mann-
úðlegri en dráp á
annarri villibráð
- segir Þórður Ásgeirsson for-
maður alþjóða hvalveiðiráðsins
Býjtar f ram stórf é
ef Islendingar
hætta hvalveiðum
„Ég fullyrði að hvalveiðar
eru mun mannúðlegri en veið-
ar á annarri villibráð, til að
mynda rjúpu og ref. Ég benti
Chris Davey á þetta og að
hvalveiðar væru veiðar á villi-
bráð,sagði Þórður Ásgeirs-
son, skrifstofustjóri í sjávar-
útvegsráðuneytinu og for-
maður alþjóða hvalveiðiráðs-
ins.
„Frá því hvalur fær skutul í
sig og þar til dauða ber að líða
„ÉG VIL ekki tengja þetta
saman — að við hættum
hvalveiðum og boð dr. Chris
Davey um að hann safni frá
hálfri milljón dölum ef við
hættum hvalveiðum,“ sagði
Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra í sam-
tali við blaðamann Mbl. „En
mér finnst þetta framtak dr.
Davey virðingarvert, þó ég
telji að ekki komi til greina
að við látum kaupa okkur
svona.
Við höfum stundað hval-
veiðar um langan tíma og
aðeins nokkrar mínútur. Út í
náttúrunni sleppur bráðin oft,
helsærð og margir dagar
kunna að líða áður en dauðinn
líknar henni. Slíkt er nánast
óþekkt í hvalaveiðum," sagði
Þórður ennfremur.
Dr. Chris Davey fullyrðir að
innan tveggja ára verði alls-
herjar hvalveiðibann sam-
þykkt í alþjóða hvalveiðiráð-
inu. Hvað vilt þú segja um
það? „Um það er ómögulegt að
ávallt farið skynsamlega að
nýtingu stofnanna. Það er
mitt mat að leyfa eigi nýtingu
á hvalastofnum heimsins en
staðreyndir blasa nú við. Það
virðist aðeins tímaspursmál
hvenær hvalveiðar verða
stöðvaðar að fullu, því þeim
þjóðum fjölgar ört í alþjóða-
hvalveiðiráðinu, sem leggjast
gegn hvalveiðum.
Dr. Davey ræddi um að nota
mætti féð til atvinnuuppbygg-
ingar, til að mynda mætti nota
það í rannsóknir á fiskeldi og
laxeldi. Þá kynnti hann fyrir
Þórður Ásgeirsson
spá. En undanfarin ár hafa
ríki gengið í hvalveiðiráðið,
sem engra hagsmuna eiga að
gæta í sambandi við hvalveið-
ar og hafa aldrei stundað þær
veiðar. Núna til að mynda er
Sviss að undirbúa aðild að
ráðinu. Um hvalveiðisögu
Sviss þarf auðvitað ekki að
hafa mörg orð.“
Steingrimur Hermannsson, sjáv-
arútvegsráðherra.
mér herferð gegn Norðmönn-
um, sem aðilar í Bandaríkjun-
um hafa nú í undirbúningi og
taldi hann að við mundum
eiga svipað yfir höfði okkar,“
sagði Steingrímur Hermanns-
son.
„ÉG er reiðubúinn að út-
vega hundruð þúsund doll-
ara innan fárra vikna ef
íslendingar fallast á að
hætta hvalveiðum sínum,
„sagði de. Chris Davey,
bandarískur hvalaáhuga-
maður frá Florida, á fundi
með fréttamönnum í gær.
„Þetta yrði ekki fjárfest-
ing heldur gjöf. Það skil-
yrði eitt er sett, að féð
verði notað í einhverja
iðngrein, til að mynda
fiskeldi. Með þessu tilboði
vil ég leggja áherzlu á, að
fjölmargir eru reiðubúnir
að láta verulegt fé af hendi
rakna, svo binda megi endi
á hvalaveiðar í heimin-
um,“ sagði Davey ennfrem-
ur. Hann sagði að engin
samtök stæðu á bak við
sig, hann væri hér sem
einstaklingur og sagði
hann að upphæðin færi í
raun eftir þörfinni — hún
gæti farið upp í milljón
dollara (400 milljónir
króna) eða jafnvel meira.
„Ástæða þess að ég kem
til íslands og býð þetta er
fyrst og fremst ómannúð-
legar og frumstæðar dráps-
aðferðir á hvölum. Yfirleitt
þjást skepnurnar mjög áð-
ur en dauða ber að. Þá
vegur einnig þungt að Is-
land er aðili að alþjóða
hvalveiðiráðinu og atkvæði
Ljósm. Kristján.
Dr. Chris Davey, býður fram
stórfé ef íslendingar fallast á að
hætta hvalveiðum.
íslands gæti ráðið miklu
um hvort takist að setja
allsherjarbann við hval-
veiðum í heiminum. Ég tel
raunar aðeins tímaspurs-
mál hvenær slíkt bann
verður sett. Þróunin er
ótvíræð og ég spái því að
„Vil ekki tengja
þetta saman“
- sagði Steingrímur Hermannsson
Byggingarþjónustan
flutt í Iðnaðarhúsið
- yfir 80 fyrirtæki með sýningu á byggingavörum
reglugerð, sem tók gildi ekki alls
fyrir löngu:
„Við teljum fulla þörf á því að
stefna saman fólki sem ýmist
vegna reynslu í starfi eða af
einskærum áhuga vili ræða
ákvæði þessarar nýju reglugerðar.
Það hefur komið fram gagnrýni á
ýmis atriði og það er ætlun okkar
að fá þá, sem telja reglugerðina
ekki í samræmi við það sem betur
má fara, til að tjá sig um málið og
BYGGINGARÞJÓNUSTAN, sem
um árahil hefur veitt almenningi
og fagmönnum alhliða upplýs-
ingar varðandi húsbyggingar,
hefur nú flutt starfsemi sína í
Iðnaðarhúsið að Hallveigarstíg 1.
Þar hefur fyrirtækið til umráða
alls 540 fermetra húsnæði í kjall-
ara og á fyrstu hæð, en nú þegar
h?fa yfir 80 fyrirtæki komið þar
fyrir vörum sínum í sýningarsal.
Stjórnarformaður Byggingar-
þjónustunnar er Ólafur Sigurðs-
son arkitekt, en framkvæmda-
stjóri er Ólafur Jensson.
Nýjung í starfsemi Byggingar-
þjónustunnar er „pallborð,“ sem
er í miðjum sýningarsal, en þar
verður lögð sérstök áherzla á að
kynna hvers konar nýjungar í
byggingariðnaði, jafnóðum og
þær koma fram. Einnig er ætlun-
in að kynna þar ýmislegt er lýtur
að umhverfi og byggingarlist,
svo sem skipulagsuppdrætti og
myndlist, en þessa dagana stend-
ur þar yfir kynning á myndum
Kjartans Guðjónssonar listmál-
ara.
í spjalli við Morgunblaðið sagði
Ólafur Jensson framkvæmdastjóri
að í marz-mánuði ætlaði Bygg-
ingarþjónustan að efna til ráð-
stefnu um hina nýju byggingar-
Nokkrir stjórnarmanna Byggingarþjónustunnar ásamt framkvæmdastjóranum, Ólafi Jenssyni, og Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra, sem opnaði fyrirtækið á þessum nýja stað. Talið frá vinstri, ólafur
Sigurðsson arkitekt, stjórnarformaður, Gunnar Thoroddsen, Guðmundur Gunnarsson, ólafur Jensson og
Haraldur Ásgeirsson. (Ljósm. Ól.K. Magn.)
safna saman upplýsingum í því
sambandi. Að ráðstefnunni lok-
inni verða væntanlega myndaðir
starfshópar, sem síðan munu skila
ákveðnum tillögum um breytingar
á reglugerðinni. Við væntum þess
að bæði fagmenn og aðrir sýni
þessari ráðstefnu áhuga.
Þá er á döfinni námskeið, sem
haldið verður í samvinnu við
iðnaðarráðuneytið, en þar verður
fjallað um stillingu á hitakerfum.
Fyrst og fremst má búast við því
að iðnaðarmenn sæki þetta nám-
skeið, en húsráðendur ættu ekki
síður að hafa gagn af þeirri
fræðslu, sem þarna verður veitt.“
„Verða einhverjar sérstakar
breytingar á starfsemi Byggingar-
þjónustunnar við flutninginn í
þetta nýja húsnæði?"
„Það gefur auga leið, að með því
að fá til umráða svo fullkomna
aðstöðu, aukast stórlega mögu-
leikarnir á því að veita víðtæka og
góða þjónustu. Við ætlum nú að
breyta sýningarfyrirkomulaginu
þannig að sýnishorn verða flokkuð
eftir alþjóðlegu flokkunarkerfi,
sem auðveldar samanburð innan
tiltekinna vöruflokka. Þannig
verða t.d. öll gólfefni í einni deild,
í annarri verða þakefni, o.s.frv.
Spjaldskrá yfir byggingarvörur og
tæki verður stóraukin og endur-
bætt, safnað verður saman vott-
orðum viðurkenndra rannsókna-
stofnana um gildi og gæði bygg-
ingarefna. í því sambandi má
nefna að nú vinnum við einmitt að
því með Brunamálastofnun ríkis-
ins að skrásetja upplýsingar um
svokölluð brunaþolin efni, svo og
eldvarna- og slökkvitæki. En eig-
inleikar bygginarefna eru ekki það
eina sem máli skiptir fyrir hús-
byggjendur. Verðlagið hefur sitt
■>