Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980 Jón Viðar Jónsson: Vestur-þýskt leikhús Ég verð að játa að flestar leiksýningarnar á Leikhúsmótinu í Vestur-Berlín í fyrravor ollu mér miklum vonbrigðum. Samkvæmt reglum mótsins á dómnefnd tíu leiklistargagnrýnenda að velja tíu athyglisverðar leiksýningar, sem hafa verið frumsýndar undanfarið leikár í Vestur-Þýskalandi, og bjóða þeim til Vestur-Berlínar. Var dómnefndin á einu máli um að eftirtekja leikársins ’78—’79 væri afskaplega rýr og meirihluti hennar samþykkti upphaflega að bjóða aðeins fimm sýningum til Berlínar. Upphófust þá miklar deilur innan nefndarinnar um hvort þannig væri rétt á málum haldið, eftir hverju dómnefndin ætti að fara við val á sýningum, hvert væri hlutverk mótsins o.s.frv. og bárust deilurnar m.a. yfir á síður leikhúsritsins Theater Heute. Að lokum náðu gagnrýn- endur samkomulagi um að bjóða fimm sýningum til viðbótar þátt- töku í mótinu, en þegar á reyndi var ekki hægt að senda þrjár þeirra til Berlínar af tæknilegum ástæðum eða einhverjum öðrum. Aðeins sjö sýningar voru því á dagskrá mótsins og voru flestir þjóðverjar, sem ég talaði við, á einu máli um að engin þeirra stæðist samanburð við það besta sem áður hefði verið sýnt á þessum mótum. Það getur því verið nokkuð vafasamt að draga of víðtækar ályktanir og fella harða dóma yfir listrænni stöðu vestur-þýsks leikhúss á grundvelli þess sem þarna var á boðstólum. Nokkrir leikarar sem ég ræddi við vöruðu mig við því að gagnrýnendurnir í dómnefndinni létu ekki stjórnast af fagurfræðilegum sjónarmiðum einum saman, þeir væru mest fyrir intellektúellt leikhús, sem vildi grípa inn í þjóðfélagsumræð- una og brjóta vandamálin til mergjar, og veldu því sýningarnar með tilliti til þeirrar rannsóknar sem þar væri gerð. Þessi skoðun gat vel fengið staðist; flestar sýningar mótsins virtust eiga að búa yfir einhverri félagslegri skírskotun, þó að reyndar væri ekki ævinlega fyrir meðalgreint fólk að ráða í hana af því sem fór fram á sviðinu. Yfirleitt voru þessar sýningar svo langdregnar og húmorlausar að hrein kvöl var að sitja undir þeim til loka, í eitt skiptið mönnuðum við okkur nokkur saman upp í að yfirgefa staðinn áður en sýning var hálfn- uð og hurfum að bjórdrykkju það sem eftir var kvölds. En gaman- semi hefur kannski aldrei verið sterkasta hlið þjóðverja, a.m.k. varð hennar ekki vart að neinu verulegu ráði í því sýnishorni af þýsku leikhúsi, sem þarna gat að líta. Það sem vakti einkum athygli manns í dagskrá mótsins var, að af sjö sýningum voru fimm á klassískum verkum og aðeins tvær á nýjum þýskum leikritum. Marí Stúart eftir Schiller frá leikhús- inu í Brimum og Emila Galotti eftir Lessing frá því sögufræga Burgtheater í Vín voru þarna sem fulltrúar gullaldarbókmenntanna þýsku, sem þjóðverjar halda mikið upp á og telja skyldu sína að varðveita. Ekki er hægt að segja að þessar sýningar vektu mikla hrifningu boðsgesta Goethe- stofnunarinnar, sérstaklega þótti okkur lítið koma til sýningar Burgtheater, sem þjóðverjarnir viðurkenndu raunar sjálfir að hefði lítið til síns ágætis annað en vera frá Burgtheater. Hvorugt leikritanna virtist hafa verið sett upp í öðrum tilgangi en þeim að framreiða hinn fagra texta stór- skáldanna. Höfuðáherslan lá á orðum skáldsins og þess virtist gætt að leggja í þau enga sjálf- stæða túlkun. Af ýmsu sem ég sá á mótinu þóttist ég merkja að þýsk- :r áhorfendur færu margir í leik- ús til þess eins að njóta bók- mennta og að sá smekkur hefði í för með sér hugmyndasnauða íhaldssemi á leiksviðinu, þegar klassísk verk ættu í hlut. En þarna gat einnig að líta dæmi um hinar öfgarnar, því að vestur-þýskt leikhús á svo sannar- lega sína terrorista. Það var ekki laust við að setti að manni nokk- urn hroll, þegar kom í ljós að á mótinu voru hvorki meira né minna en þrjár uppfærslur á Antígónu Sófóklesar í þýðingu gullaldarskáldsins Hölderlins. Aldrei botnaði ég í því uppátæki dómnefndarinnar að leggja þessar sýningar á gesti mótsins, a.m.k. höfðaði aðeins ein þeirra að ein- hverju leyti til mín. í skrifum sínum um veturinn höfðu gagn- rýnendur velt því mjög fyrir sér hvers vegna þetta leikrit og þessii þýðing á því fyndi nú allt í einu svo góðan hljómgrunn hjá þýskum leikstjórum og helst ímyndað sér þá skýringu að tilgangurinn væri að gera upp sakirnar við hnignun vinstri hreyfingarinnar, terror- ismann og lögregluríkið með hjálp sígilds höfundar. Antígóna hefur löngum verið túlkuð sem lofgjörð til hins frelsisunnandi einstakl- ings sem þorir að gera uppreisn gegn alráðum valdhafa, en hér var ætlunin auösæilega að gera mun djúpstæðari rannsókn á hinum pólitíska veruleika Sambandslýð- veldisins. Vei þeim áhorfanda sem fór í leikhúsið með öðru hugarfari en því að fylgjast með slíkri rannsókn. Hafi höfundurinn riðið húsum í: tveimur fyrstnefndu sýningunum, ríkti leikstjórinn einráður yfir öllu saman í þessum þremur sýningum á Antigónu. Vestur- þýskt leikhús einkennist af miklu leikstjóraveldi, þar virðist leik- stjórinn geta leyft sér nánast hvað sem er. Fólk, sem hefur haft nánari kynni af innra starfi þess en ég, segir mér að oftast nær sé aðeins litið á leikarann sem tæki í höndum leikstjórans og ekki ætl- ast til að hann hafi sjálfur neitt til málanna að leggja. Leikurinn í flestum sýningum, sem ég sá þarna, staðfesti þessar lýsingar greinilega, því að hann var yfir- leitt sviplaus og ópersónulegur. Ef undan eru skildar sýningar Peter Steins, sem ég vík að á eftir, er ekki ein einasta leiktúlkun á þeim mér minnisstæð. Þetta var sér- staklega áberandi í Antígónusýn- ingunum og er skýringin sjálfsagt að nokkru leyti sú, að þar fengu leikarar engin tækifæri til að búa, Edith Clever í hlutverki Lottu í sýningu SchaubUhne am Halleschen Ufer á Gross und Klein eftir Botho Strauss. Peter Stein og Pekingóperan til persónur af holdi og blóði heldur framkvæmdu aðeins mis- munandi loftkenndar hugdettur leikstjórans. Þeir unnu verk sitt af kunnáttu, en það var auðfundið að þeir höfðu takmarkaða ánægju af því. Og þess vegna var borin von að þeir skemmtu áhorfendum. Hins vegar vantaði hina þrjá leikstjóra Antígónu ekki hugar- flugið og á því héldu þeir óspart sýningu. Aðferð þeirra var einkum fólgin í því að smyrja tæknibrell- um og leikkúnstum ofan á leikrit- ið, þangað til áhorfandinn vissi hvorki upp né niður. Tvær sýn- inganna, ein frá Schiller-Theater í Vestur-Berlín og önnur frá Brim- um, voru mér með öllu óskiljan- legar og svo lítill var áhugi minn á þeim að ég fór á hvorugan þeirra umræðufunda, sem haldnir voru eftir hverja sýningu og þar sem leikhúsgestum gafst tækifæri til að láta skoðanir sína í ljós. Helsti kostur þessara funda var þó sá að þar gátu leikarar og leikstjóri útskýrt fyrir áhorfendum það sem þeir höfðu ekki skilið kvöldið áður. T.d. var mjög fróðlegt að frétta af skýringum fólksins á táknmáli sýningar Brima-leikhúss, sem var æði frumlegt. Sem dæmi má nefna að mikill kaðall, sem lá frá baksviði yfir höfuð áhorfenda aft- ast í sal, átti að tákna tengslin á milli áhorfenda og leiksviðs og svipaða merkingu hafði risastór spegill, sem hluti áhorfenda gat speglað sig í. Þá var mikil gler- rúða á sviðinu, sem leikarar stóðu gjarnar sitt hvoru megin við og þrýstu sér upp að, og átti hún að sýna sambandsleysið á milli per- sónanna. Allt þetta var í ágætu samræmi við þá groddalegu til- gerð, sem einkenndi alla sýning- una. Sýning Schauspiel Frankfurt í leikstjórn Cristof Nels var hins vegar að mörgu leyti athyglisverð, enda þótt hún væri lang tryllings- legust af þessum þremur sýning- um. Þar var mikið lagt upp úr því að hrella og hneyksla áhorfendur og ég hef sjaldan séð það takast betur. T.d. lá súla með ljósköstur- um yfir hálfa sviðsbrúnina og hófst hún nokkrum sinnum upp í boga yfir á hinn hluta sviðsins. Var ljóskösturunum þá beint í andlit áhorfenda með svo miklum styrk að menn voru hálfblindir eftir. En þó gekk fyrst fram af mönnum þegar leikarar, sem ým- ist klæddust steinaldarfeldum eða nútímaklæðnaði, tóku að tauta textann svo lágum rómi að ekki urðu greind orðaskil. Hluti áhorf- enda upphóf þá hávær framíköll, skipaði leikurum að tala hærra og lét óspart í ljós reiði sína, þegar skipununum var ekki sinnt. Mér norðanmanninum þótti merkilegt að sjá slík viðbrögð, þar sem skandinavískir og raunar íslenskir áhorfendur eru vanir að sitja undir hverju sem er án þess að æmta eða skræmta. Margt var smellið í þessari sýningu, þó að heildarmerking hennar væri mér hulin. Líklega stóð þetta allt saman í leikskránni, vænu riti með pólitískum og heimspeki- legum ritgerðum, sem ég nennti aldr§i að lesa. Síðasta sýning mótsins var á leikriti eftir Thomas nokkurn Brasch, Lovely Rita, í leikstjórn Ernst Wendt. Sýning þessi var öll hin geggjaðasta, áhorfendum var komið fyrir á upphækkun á svið- inu sjálfu en leikurinn fór fram úti í salnum á milli áhorfenda- bekkjanna, þetta hefur trúlega átt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.