Morgunblaðið - 08.03.1980, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 08.03.1980, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980 Evrópukeppnin í handknattleik Leiðin var mis- jafnlega greið Liðin tvö, sem standa aðeins íeti frá úrslitaleiknum í Evrópu- keppni meistaraliða. Valur og Atletico Madrid, hafa þurft að hafa fyrir árangri sínum til þessa. Að vísu sátu bæði liðin hjá i 1. umferð. f annarri umferð mætti Atletico franska liðinu "Stella Sports. Vann spænska liðið alger- an yfirhurðasigur á heimavelli, 28-16, og sýndi síðan fram á að liðið er einnig sterkt á útivelli, með því að sigra í Frakklandi 21-17. Samanlagt 49-33. í átta liða úrslitum sigraði spænska liðið dönsku meistarana Fredricia KFUM. Jafntefli varð í Danmörku, 17-17, en Spánverjarn- ir sigruðu í heimaleik sínum 19-17. Sýndu Spánverjarnir enn í viður- eigninni við danska liðið, að þeir eru sterkir á útivelli sem heima- velli. Valsmenn sátu hjá í fyrstu umferð eins og Atletico. En í síðari umferðinni mætti liðið Brentwood frá Englandi og var aldrei spurning hvort liðið myndi halda áfram í keppninni. Sigraði Valur 32-19 í útileiknum og 38-16 í heimaleiknum. Síðan sló Valur Drott frá Svíþjóð út í minnisstæð- um leikjum. Tapaði Valur fyrri leiknum í Svíþjóð 17-18, en vann síðan frækinn sigur, 18-16, í Höll- inni, eftir að hafa verið um tíma 6 mörkum undir, 4-10. Atletico sigraði Val 24-21 í fyrri leiknum, þannig að möguleikarnir eru vissulega fyrir hendi. En erfitt verður það. Þáttur áhorfenda verður mikill og svíkjast þeir ekki undan sínu, enda hefur sjaldan verið leikinn jafn mikilvægur handboltaleikur hér á landi. Þokulúðrasveit í GÆRKVÖLDI fór fram frekar nýstárleg æfing á félagssvæði Vals við Illiðarenda. Þrjátíu og fjórir ungir Valsdrengir æfðu sig í því að þeyta þokulúðra. Þeir ætia ekki að láta sitt eftir liggja við að skapa stemmningu á leik Vals og Atletico á sunnudagskvöld. Versiunin Eilingsen iánaði þeim þokulúðra- lager verslunarinnar og verða þeir óspart þeyttir á leiknum. Munu piltarnir dreifa sér um salinn í höllinni til þess að ná sem bestri stemmningu. Vonandi fá þeir góðar undirtektir. — þr. Forsalan . gengur vel FORSALAN á leik Vals og Atletico hefur gengið mjög vel, samt er ekki enn uppselt og þó nokkuð til af miðum í stæði og nokkur sæti niðri. Þeir, sem hafa hug á að tryggja sér miða i dag, geta fengið þá keypta í iþróttahúsi Vals við Hliðarcnda milli kl. 14 og 18 í dag og siðustu miðarnir verða svo seldir í anddyri Laugardalshailarinnar á sunnudag, áður en leikurinn hefst. Það er að segja verði einhverjir miðar þá eftir. Glefsur úr fyrri leiknum ALLAR líkur eru á að giefsur úr fyrri leik Vals og Atletico verði sýndar í upphafi íþróttaþáttarins i dag, að sögn Bjarna Felixsonar. Spænska sjónvarpið tók upp kafla úr leiknum fyrir Bjarna og átti hann von á spólunum til landsins í gærdag. Liðin sem leika VALUR: aldur: hæð: þyngd: Brynjar Kvaran 22 1.86 82 ólafur Benediktsson 26 1.79 80 Björn Björnsson 24 1.88 90 Bjarni Guðmundsson 23 1.77 70 Steindór Gunnarsson 24 1.81 75 Stefán Gunnarsson 29 1.88 93 Þorbjörn Jensson 25 1.96 96 Jón H. Karlsson 31 1.81 88 Stefán Halldórsson 20 1,80 70 Þorbjörn Guðmundsson 25 1.96 95 Gunnar Lúðvíksson 22 1.80 70 Þjálfari er Hilmar Björnsson ATLETICO MADRID: J. Goni 21 1.86 81 J. Diaz Cabenaz 24 1.76 77 F. De Andreas 30 1.73 71 C. Alonso 21 1.96 95 J. De La Puerte 23 1.83 91 J.J. Uria 23 1.90 92 J. Lopez-Manrig 26 1.83 84 M.A. Aperator 30 1.83 86 M. Novales 25 1.88 85 J. R. Martinez 18 1.80 75 F.J. Parilla 21 1.82 77 L.M. Morante 26 1.76 83 A. Milian 21 1.78 77 Þjálfari er Juan de Dios Roman. Nú eiga íslenskir áhorfendur leik Tekst áhorfendum að fleyta Val yfir flúðirnar? NÚ eiga ísienskir áhorfendur leik. Á morgun, sunnudag kl. 19.00 á islenskt félagslið í fyrsta skipti í sögunni góða möguleika á að komast í úrslitaleik í Evrópu- meistarakeppni í flokkaiþrótt. Liklega gera fæstir sér grein fyrir hversu mikil auglýsing það væri fyrir land og þjóð, og um leið sigur fyrir íslenskan hand- knattleik og íþróttir í landinu almennt ef það tækist. Það verð- ur mikil pressa á leikmönnum Vals á morgun og þeir þurfa allan þann stuðning sem þeir geta fengið hjá áhorfendum. Islenskir áhorfendur hafa sýnt það og sannað oftar en einu sinni að þeir geta verið stórkostlegir. Og oft hafa það verið þeir sem hafa átt mestan þátt í sigri með áköfum hvatningarhrópum. Svo verður einnig að vera annað kvöld. Með sameiginlegu átaki er hægt að ná takmarkinu. Þegar Valur lék fyrri leik sinn við Atletico Madrid voru stuðn- ingsmenn Atletico stórkostlegir, þeir beinlínis stjórnuðu leiknum. Dómararnir voru miklir heima- dómarar og dæmdu Val oft í óhag. Greinilega óttuðust þeir áhorfend- ur. Leikmenn Vals stóðu sig því vel á sannkölluðum heimavelli spænska liðsins, sem gaf því þrjú mörk. Nú er að sjá heimavöll Vals, Laugardalshöllina, á sunnudags- kvöld. Er það þriggja marka völlur eða máske fjögurra? Áhorfendur verða að vera með frá byrjun og mega ekki láta deigan síga þrátt fyrir að illa gangi. Tekst áhorfendum að fleyta Val yfir flúðirnar? — þr. Valur mun berjast til þrautar í leiknum — segir Hilmar Björnsson Á MORGUN, sunnudag, fer síðari leikur Vals og Atletico Madrid fram í Evrópumeistara- keppninni í handknattleik. Leik- ur þessi er án efa einn merkasti íþróttaviðburður sem fram á eft- ir að fara hér á árinu. Takist Val að sigra með þriggja marka mun í leiknum og takist Spánverjum ekki að skora nema 20 mörk eða minna komast Valsmenn í úr- slitaleik keppninnar og yrði það mikið afrek og rós í hnappagat Valsliðsins. Aldrei fyrr hefur íslenskt lið komist svo langt i Evrópukeppninni i handknatt- leik og möguleikar liðsins á að komast i úrslitin eru miklir. Lið Vals hefur æft mjög vel alla vikuna og búið sig eins vel undir leikinn og nokkur kostur er. Æft hefur verið á hverjum degi, farið yfir leikkerfi og leikur Atletico grandskoðaður. Hilmar Björns- son, þjálfari Vals, sagði að leikur- inn á morgun yrði mjög erfiður og lítið mætti bera útaf til að illa færi. Mikil pressa væri á leik- mönnum sem gerðu sér grein fyrir hversu mikið væri í húfi. — Varnarleikur okkar svo og mark- varsla verða að vera mjög góð og í sóknarleiknum verðum við að koma þeim á óvart, sagði Hilmar. — En við verðum að spila af kaldri skynsemi í leiknum og vinna inn mörkin hægt og bítandi, það mega engin læti eiga sér stað. Lið Spánverjanna hefur þrjú mörk í forskot og ekki er gott að segja hvernig leik þeir ætla sér að leika. Máske reyna þeir að hanga á boltanum. Við munum berjast til þrautar í leiknum, sagði Hilmar. —þr. • Frá fyrri leik llöanna sem íram íór i Madrid. Puento heíur brotist í gegn framhjá Steindóri og Þorbirni og skorar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.