Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
63. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Manlio
Brosio
látinn
Torino, 14. marz. AP.
ÍTALINN Manlio Brosio, sem
var framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins á árun-
um 1964—71, lézt í dag á
heimili sínu í Torino. Hann
var 83 ára gamall og hafði átt
við langvarandi veikindi að
stríða.
Brosio var viðriðinn ítölsk
stjórnmál í mörg ár og var
einnig lengi í ítölsku utanríkis-
þjónustunni. Hann var m.a.
sendiherra lands síns í Wash-
ington, Moskvu, London og
París og gegndi ýmsum ráð-
herraembættum. Hann var
m.a.'varnarmálaráðherra Ítalíu
um tíma.
Brosio annaðist samninga við
stjórn De Gaulles Frakklands-
forseta, þegar Frakkar hættu
þátttöku í hernaðarsamstarf-
inu innan bandalagsins og
samdi um flutning aðalstöðva
NATO frá París til Brussel.
Hann tók einnig þátt í viðræð-
um austurs og vesturs á fyrstu
sigum slökunarstefnunnar.
Brosio kom til Islands árið
1968, þegar ráðherrafundur
NATO var haldinn í Reykjavík.
Rhodesía fær sjálfstæði 18. apríl
Soames lávarður, brezki landsstjórinn í Rhódesíu, hélt í gær móttöku til heiðurs Robert Mugabe verðandi
forsætisráðherra landsins. Á myndinni eru Soames, Mugabe og Joshua Nkomo, sem verður innanríkisráð-
herra í stjórn Mugabes. Tilkynnt var i gær, að Rhódesía fengi formlega sjálístæði 18. apríl nk. og héti upp frá
því Zimbabwe. Karl Bretaprins verður fulltrúi brezku krúnunnar, þegar landið fær sjálfsta'ði og mun hann
lýsa því yfir á miðnætti 17. apríl, að Zimbabwe sé orðið sjálfstætt lýðveldi.
Afganistan:
Hugmyndum um
hlutleysi hafnað
Moskvu, 14. marz. AP.
UTANRÍKSRÁÐHERRAR Af-
ganistans og Sovétríkjanna
vísuðu í dag á bug hugmyndum
Carringtons lávarðar utanrikis-
ráðherra Breta um að Afganist-
an verði lýst hiutlaust og sovézkt
herlið í landinu verði kallað
heim. Shah Mohaomad Dost utan-
ríkisráðherra Afganistans átti í
dag viðræður við sovézka ráða-
menn um samband ríkjanna og
samdi, að sögn Tass fréttastof-
unnar, um ýmis „framkvæmda-
atriði“ varðandi dvöl Rauða hers-
ins í Afganistan.
Gromyko utanríkisráðherra So-
vétríkjanna sagði í ræðu í hádeg-
Djúpsprengju varpað
að ókunnum kafbáti
við strendur Svíþjóðar
Stokkhólmi, 14. marz. AP.
SÆNSKI tundurspillirinn Hal-
land kastaði í dag djúpsprengju
að ókunnum kafbát undan
strönd Svíþjóðar, en kafbátur
inn hafði laumast inn á svæði.
þar sem fram fóru heræfingai
og fylgdist með þeim. Halland
elti kafbátinn um svæðið i
nokkrar klukkustundir, en þeg
ar hann sinnti ekki fyrirmælum
um að hafa sig á brott var
sprengjunni varpað í um 500
metra fjarlægð frá honum. Fór
kafbáturinn þá af svæðinu.
Þetta er í fyrsta sinn í 15 ár,
að sænskt herskip grípur til þess
Sænski tundurspillirinn Halland
að kasta sprengju að ókunnum
kafbát, en þeir koma oft upp að
ströndum Svíþjóðar.
Leitað var sérstakrar heimild-
ar sænskra hermálayfirvalda til
þess að varpa sprengjunni.
Skipherrann á tundurspillinum
sagði í dag, að hefði kafbáturinn
ekki farið eftir að djúpsprengj-
unni var varpað hefði hann orðið
að kasta sprengju á sjálfan
kafbátinn.
isverði, sem hann hélt til heiðurs
Dost, að aðilar málsins hefðu
verið algjörlega og að öllu leyti
sammála um þau mál, sem til
umræðu voru. Sagði Gromyko, að
tilraunir til þess að leysa vanda-
mál Afganistans á bak við íbúa
landsins væru dæmdar til þess að
fara út um þúfur. Sagði Gromyko
að þeir sem skipulagt hefðu utan-
aðkomandi hernaðarafskipti gegn
Afganistan hefðu komist að raun
um að þeir myndu mæta harðri
mótspyrnu.
Dost utanríkisráðherra Afgan-
istans sagði í ræðu sinni, að
„heimsvaldasinnar" hefðu lagt á
ráðin um hlutleysi Afganistans,
en afskipti þeirra af innanríkis-
málum landsins yrðu ekki þoluð.
Dost hélt frá Moskvu í kvöld
eftir að hafa verið í borginni í einn
sólarhring. Hann lýsti mikilli
ánægju með árangurinn af við-
ræðum sínum þar er hann hélt
heimleiðis.
Kosið
Teheran, New York, 14. marz. — AP.
KOSNINGAR til hins nýja þings
í íran hófust í dag, en seinni
umferð kosninganna verður 4.
apríl. Hið nýja þing mun m.a.
taka ákvörðun um hver verða
örlög gíslanna í bandaríska
sendiráðinu í Teheran. Rann-
sóknarnefndin, sem kannar feril
87 far-
ast í flug-
slysi í
Póllandi
Varsjá, 14. marz. AP.
FLUGVÉL írá pólska flugfél-
aginu LOT með 87 manns
innanborðs hrapaði í dag
skömmu fyrir lendingu á flug-
vellinum við Varsjá. Allir þeir.
sem með vélinni voru, fórust. I
þeim hópi voru 23 úr banda-
ríska áhugamannalandsliðinu í
hnefaleikum. Vélin, sem var af
gerðinni Ilyushin-62, var að
koma úr áætlunarflugi frá
Bandaríkjunum og Kanada.
Hnefaleikamennirnir um borð
voru á leið til keppni í Póilandi.
í hópi þeirra voru nokkrir, sem
taldir voru eiga víst sæti í
bandaríska ólympíuliðinu.
Flugvélin kom niður í gamalt
virki skammt frá Varsjárflugvelli.
Ibúðarbyggð er á þessu svæði og
þótti mildi að enginn á jörðu niðri
skyldi farast. Brak úr vélinni
dreifðist yfir stórt svæði og var
aðkoman hryllileg að sögn sjón-
arvotta.
Ekki er vitað hvað olli slysinu,
en það er hið versta sem orðið
hefur í Póllandi frá stríðslokum.
Þetta er í fjórða sinn sem flugvél
af gerðinni Ilyushin-62 ferst, en
vélar þessar eru smíðaðar í Sov-
étríkjunum og mikið notaðar af
flugfélögum í Austur-Evrópu.
Skipuð hefur verið rannsóknar-
nefnd undir forsæti aðstoðarfor-
sætisráðherra Póllands til að
kanna orsakir slyssins.
18 farast
í Tyrklandi
Ankara. 14. marz. — AP.
ÁTJÁN menn fórust, þegar banda-
rísk herflutningaflugvél fórst í dag í
Tyrklandi. Vélin, sem var af gerðinni
C-130, hrapaði skammt frá borginni
Adana í suðausturhluta Tyrklands og
er talið að hún hafi orðið fyrir
eidingu. Allir þeir sem fórust voru
Bandaríkjamenn.
Reza Phalavi
í sjúkrahús
PanamaborR, 14. marz. — AP.
REZA Pahlavi fyrrum íranskeisari
var í dag fluttur í sjúkrahús í
Panama og er líklegt talið að hann
verði skorinn upp vegna sjúkdóms í
milta hans. Von var á nokkrum
læknum frá Bandaríkjunum til að
annast keisarann fyrrverandi og er
dr. Michael Debakey, sem er frægur
fyrir hjartaflutninga, í þeim hópi.
í Iran
fyrrum íranskeisara á vegum
Sameinuðu þjóðanna, átti í dag
fund með Waldheim fram-
kvæmdastjóra S.þ. Að honum
loknum var tilkynnt að nefndin
mundi í bili hætt við að reyna að
leysa deilu Bandaríkjanna og
írans.