Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 Þórir S. GudhfrKsson Rúna <» isladóltir PIB COPIMMCIN BR <bA Reyndu aftur og aftur Hann er alls ekki á þeim buxunum, strákurinn á mynd- inni, að gefast upp við verkefni sitt. Hann fékk sér lítinn bandspotta og batt litlar kúlur úr álpappír við sitt hvorn enda. Siðan tók hann um miðjan spottann og sneri þeim í hring. Það tókst vel og hann dansaði af kæti. En þá var hann beðinn um að reyna að snúa þeim í sitt hvora áttina — og þá fór málið að vandast. Hann beit á jaxlinn og reyndi aftur og aftur þangað til það heppnaðist. Reynið nú sjálf. Þetta getur verið mikil list — og reynir á þolinmæðina. Ekki gefast upp. -&&&&&L .. \ % X v .J^L I OO f „ (íf| o i. r SkemmtileKar minningar Fríöur J., 9 ára, Hafnarfirði. FJALLGANGA Kex-tré „Óþekktaranginn þinn“, hrópði Krumma-mamma. „Hvað ertu eiginlega að gera, drengur?“ Krummi litli sat í birki- trénu og borðaði kex. Mylsnan sáldraðist um allt og féll á jörðina. „Krummar eiga ekki að borða kex,“ sagði Krumma-mamma og skammaði strákinn sinn. „Krummar eiga að borða ánamaðka, drengur minn. En ef þig langar svona mikið til að borða kex, þá verðurðu að læra að borða almennilega og án þess að sulla svona út um allt. Ætli það endi ekki með því að hér fari að vaxa kex-tré allt í kring um okkur." Og viti menn. Áður en nokkrar vikur voru liðnar spruttu upp kex-tré allt í kring um fallega birkitréð. Börnin í nágrenninu hóp- uðust um kex-trén og borð- uðu og borðuðu, því að kex var eitt það besta, sem þau fengu. En krummum geðjast ekki að hávaðasömum börnum. Þeir urðu að flytj- ast á brott og finna sér kyrrlátan stað. „Allt í lagi,“ sagði Krumma-mamma." „Við skulum sætta okkur við að flytja. Kex er ágætt fyrir börn, en krumma-börn eiga að borða ánamaðka! Og hana nú.“ Kjartan Arnórsson rn eiDP/gfru M -E&Efi EKKI KObOlNN frLLfi LBIÐ Nl£>Vl? 6NNþfi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.