Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 HLAÐVARPINN Handbolti ^■■■^^■■^^■■■■j Múrarinn leiddi sitt í úrslit félag „ÞAÐ íylgir því mikið álag að vera í handboltanum. Við stund- um æfingar og keppni 10 til 11 mánuði ársins. Þá vinn ég við mina iðn frá 8 og upp í 10 tíma á dag og síðan bætast við æfingar og leikir.“ sagði Stefán Gunn- arsson, fyrirliði Vals. Hann ásamt félogum sinum í Val vann það frækilega afrek á sunnudag að komast í úrslit Evrópukeppni meistaraliða i handknattleik. Áhugamennirnir frá íslandi hafa slegið atvinnumönnunum úti i hinum stóra heimi við — að baki liggur þrotlaus vinna. Þú hefur mörgum herrum að þjóna — er það ekki krefjandi og erfitt? „Jú, það segir sig sjálft. Maður reynir að sinna íþróttinni, vinnunni og fjölskyldunni. Útkom- an verður auðvitað sú að eitt tekur frá öðru og engu sinnt eins og maður vildi." Verður þú þá ekki oft þreyttur á handboltanum? „Það koma stund- ir, þar sem maður er ósköp leiður og þá kemur það fram í leikleysu í liðinu. En ánægjustundirnar bæta það upp og gott betur. Nú, ég er enn rosalega þreyttur mörgum dögum eftir Evrópuleikinn og svo er einnig um marga félaga mína.“ Spánverjunum var lofað háum fjárhæðum fyrir að komast í úrslit Evrópukeppninnar. Þið fáið engar upphæðir, ekki satt? „Jú, engir peningar renna í okkar vasa, enda engir til. Valur er enn í skuld vegna þátttöku sinnar í Evrópu- keppninni í ár. Til að mynda var tap af leikjunum við Brentwood tæpar 6 milljónir króna. Það eina sem að okkur er rétt, eru íþrótta- fötin, sem við klæðumst og jafnvel það er tiltölulega nýtilkomið, áður þurftum við að kaupa þau sjálfir. Okkar umbun er ánægjan og félagsskapurinn," sagði múrarinn og fyrirliði Vals, Stefán Gunn- arsson, að lokum. Stefán Gunnarsson við vinnu sína. Ríkið tekur sitt og gott betur ■■■■■■I^^^^^^^^H Greiða vegaskatt af því að sigla um höfin blá Sportbátaeigendur hafa fundið illilega fyrir olíukreppunni. Benzínverð hefur hækkað upp úr öllu valdi og þeim er gert að greiða vegaskatt. auk fleiri gjalda, af því að sigla um höfin bíá! Já, það er margt skrítið i kýrhausnum. En á siðustu miss- erum hafa miklar framfarir orð- ið i díselvélasmiði. Nýverið kom á markaðinn hér á landi Mercruiser-díeselvél, en auk þessarar vélar eru Volvo með ágætar díeselvélar. Mercruiservél- arnar eru 145 hestöfl og þegar fyrsta vélin var sett í bát um síðustu helgi mældist hraði hans mestur 31 míla. Hún eyðir um 20 lítrum á fullri keyrslu en við 2800 snúninga eyðir vélin á milli 14 og 15 lítrum á klst. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að díeselvélarnar eru mun dýrari en benzínvélarnar. Vörugjald og tollur fást felld niður ef um nýjan bát er að ræða. Þurfir þú hins vegar að setja nýja vél í gamla bátinn þinn þá færð þú engan toll felldan niður og ekkert vörugjald! m' jibk&l ;■ 11 O': ■■ ■Hfr:' ■■■. á jy « > • tt ^ j *■ |já| |t 1 . i : ii::: ‘1. 1 Mercruiservél var sett um síðustu helgi í bát frá Mótun. Mynd Mbl. Ó.K.M. íleiðinni Fyrsti íslenzki tannlækna- stóllinn smiðaður á Húsavík í ÞVÍ frábæra blaði Vikurblaðinu var nýlega skýrt frá fyrsta tannlæknastólnum, sem smiðaður er hér á landi og auðvitað á Húsavik. Hönnuður stólsins er Guðjón Halldórsson tæknifræðing- ur hjá Tækniþjónustunni sf þar á staðnum. í Víkurblaðinu segir síðan. Stóll þessi er nú í notkun á tannlæknastofunni á Húsavík, og að sögn Óla Austfjörð, sem sá um uppsetningu á stólnum, hefur hann marga kosti fram yfir innflutta stóla. Hann sé að vísu þyngri og eyði meira rafmagni, en um leið traustari og engin hætta á að hann fari úr „fúnksjón" þó menn, vel yfir meðallag, setjist í hann. Guðjón tjáði VÍKURBLAÐINU að hann væri nú að hefja smíði næsta stóls, og hægt væri að vinna hann að mestu hér á staðnum, þ.e.a.s. allt nema plasthúðunina. Stólinn kallar Guðjón ÝMA 100, og þarf varla að taka það fram, að þó markaður fyrir tannlæknastóla sé ekki stór, 6—8 stólar á ári, þá er um töluverðan gjaldeyrissparnað að ræða ef hægt er að framleiða stólana hér heima. VÍKURBLAÐIÐ óskar Guðjóni til hamingju með afkvæmið og vonandi eiga margir tannskemmdir Þingeyingar eftir að engjast sundur og saman í þessum kjörgrip, ef á annað borð menn trassa að hugsa um tennur sínar. -js. Húsvíkingar mikið fyrir mæruna: „Sannleikurinn svartari en svartsýnustu menn héldu44 OG ENN um tennur og tannlækningar á Húsavík. Sigurjón Benediktsson tannlæknir á staðnum skrifar merka grein í Víkurblaðið og kallar hana „Mærumeiðingar“. Þar ræðir hann um sælgætiskaup Húsvíkinga og hættur samfara of miklu sykuráti. „Minnkum sykurátið“ eru einkunnarorð Sigurjóns, og verður hér gripið niður í grein hans: „í litlu samfélagi eins og Húsavík er fróðlegt og óhugnanlegt að kynna sér stöðu þessara mála. Fróðlegt, því það svarar mörgum spurningum tannlæknis- og læknisfræði og óhugnanlegt vegna þess að sannleikurinn er svartari en svartsýnustu menn héldu. Eins og allir vita eru tannlækningar dýrar. Mjög dýrar segja efalaust flestir. Samkvæmt upplýsingum Katrínar Eymundsdóttur forseta bæjarstjórnar, er áætlað að á þessu ári verði varið 20 milljónum til tannlækninga barna á skólaskyldualdri hér á Húsavík. En til hvers eru þessar 20 milljónir notaðar? Þær eru notaðar til að borga brúsann af sykurfíkn þegnanna. Það kemur einmitt í ljós við athugun á sölu sælgætis og sykraðra gosdrykkja í fjórum verslunum (sjoppum) hér á Húsavík, að Húsvíkingar höfðu efni á að eyða 16, já sextán milljónum króna í mæru í janúarmánuði. Þetta skiptist þannig: Eins mánaðar sala í fjórum sölustöðvum á Húsavík: SYKRAÐIR GOSDRYKKIR kr. 8.150.000.-, SÆLGÆTI kr. 7.800.000.- Samtals u.þ.b. 16 milljónir á einum mánuði úr fjórum sölubúðum. Sýna má fram á að Húsvíkingar og nærsveitamenn hafa þambað fimmtán þúsund, já 15.000 lítra af sykruðum gosdrykkjum í janúarmánuði, úr þessum fjórum verslunum. Samkvæmt töflum er það nálægt 750 kg af unnu kolvetni. Sælgætið gæti gefið allt að því 100% meira af hreinu kolvetni, eða u.þ.b. 1500 kg. Einungis þessi sykur í fjórum sölustöðvum gefur þannig 2.150.000 kílókalóríur en hver einstaklingur þarf nánast 2.400 kílókaloríur til að lifa og starfa hvern dag. Augljóst er, að þetta sem talið hefur verið fram hér er aðeins lítið brot af kolvetnisnotkuninni. I skóbúðum, gjafavöruverslunum, og jafnvel bókabúðum auk öllum matvöru- verslunum er mæra á boðstólum auk allra kolvetnisfæðutegunda sem telst almennur matur. Þannig kaupum við vandamál á 180 milljónir á ári, í þessum fjórum sölubúðum, og höldum að við leysum það með 20 milljónum til tannlækninga og 20 milljónum til annarrar heilsugæslu, því sykurát hefur einnig áhrif á önnur líffæri en tyggingarfærin. Gísli G. Auðunsson héraðslæknir telur að hér sé lítið um svokallaða æskusykursýki, en sykursýki í eldra fólki sé hér vaxandi og haldist líklega í hendur við aukið sykurát. Einnig telur hann að offita, þ.e. þyngd umfram kjörþyngd, sé hér algeng. Yfirlæknir sjúkrahússins telur víst að sykurofát sé neikvætt menningarfyrir- bæri sem valdi fjölda fólks óþægindum og sjúkdómum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.