Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 Sviðsmynd úr leikritinu „Ofvitinn“ sem verður m.a. á fjölum Iðnó um helgina. Miðnœtursýningar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sýnir í kvöld einþáttungana „Náttfari <>g nak- in kona“ og á sunnudagskvöldið leikrit Gorkis, „Sumargestir". Auk þess verður barnaleikritið „óvitar“ sýnt í Þjóðleikhúsinu báða dagana kl. 15. Leikfélag Reykjavíkur sýnir í kvöld „Er þetta ekki mitt líf“ en á sunnudagskvöldið leikritið „Ofvit- inn“ sem gert er eftir sögu Þor- bergs Þórðarsonar en er í leikgerð Kjartans Ragnarssonar. Þá verður miðnætursýning hjá L.R. í Austurbæjarbíói kl. 11.30 í kvöld, laugardagskvöld. Er þar sýndur gamanleikurinn „Klerkar í klípu“. í Kópavogsbíói verður einnig miðnætursýning í kvöld. Þar sýnir Leikfélag Kópavogs gamanleikritið „Þorlákur þreytti". FYRIR BÖRNIN Þessar tvær persónur koma við sögu í leikþáttum Leikbrúðulands um meistara Jakob. Meistari Jakob og Ovitar LEIKBRÚÐULAND, Fríkirkjuvegi 11, sýnir á morgun kl. 15 leikþætti um hina kunnu þjóðsagnapersónu meistara Jakob. Þá verða sýningar á barnaleikritinu Ovitar í Þjóðleikhúsinu bæði i dag og á morgun kl. 15. TÓNLEIKAR Þursaflokkurinn ÞURSAFLOKKURINN sem nýkominn er úr hljómleikaferð um iandsbyggðina heldur tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði í dag, laugardaginn 15. mars kl. 14. DANSHÚS Reykjavíkur verða opin um helgina eins og venja er til. Má þar nefna óðal, Hollywood, Klúbbinn, Hóteí Sögu, þar verður Útsýnarkvöld á morgun, og Hótel Borg en þar verður opið hús í kvöld en á morgun verða þar gömlu dans- arnir. í Þórscafé verður einnig opið samkvæmt venju í kvöld en á morgun verður þar fimmta sýning á Þórskabarett. Höfund- ar og aðalleikarar eru þeir bræður Halli og Laddi ásamt eftirhermunni Jörundi Guð- Þeir Halli, Laddi og Jörundur eru „höfuðpaurar" Þórskabaretts. Ljósm. Emilía. DANSHÚS 99Eitt það besta sem ég hef tekið þátt í“ mundssyni en auk þeirra koma þar fram meðlimir úr íslenska dansflokkinum. Kabarettinn er byggður upp á stuttum atriðum og eru þau öll í mjög léttum dúr að sögn Ilalla, Haralds Sigurðs- sonar. Kabarettinn er eingöngu ætl- aður matargestum í Þórscafé. Kl. 20 koma kokkar fram í salinn og steikja fyrir gestina en sjálf- ur kabarettinn hefst kl. 22. Sagði Halli að mjög góð stemmning hefði verið meðal gestanna á — Segir Haraldur Sigurðsson, Halli, um Þórskabarett öllum sýningum til þessa og fullt hús hverju sinni. „Þetta er eitt það besta sem ég hef tekið þátt í í skemmtanaiðn- aðinum, það er svo sérstaklega góð stemmning meðal gestanna. Við erum hér líka að gera það sem við viljum gera og höfum lengi gengið með í maganum." Halli sagði að líklega yrðu nokkrar sýningar á Þórskabar- ett í viðbót en um mánaðamótin færu þeir félagar hann, Laddi og Jörundur í ferð um landið með Fegurðarsamkeppni íslands. Hann kvað þó ekki loku fyrir það skotið að sýningar á kabarettn- um yrðu teknar upp aftur næsta haust og þá ef til vill með öðru efni. Sigríður Þorvaldsdóttir í hlutverki sínu í Veiðiferðinni. KVIKMYNDIR Veiðiferðin sýnd í Reykjavík og á Akureyri MYNDLIST Grafíksýning í Norræna húsinu BALTASAR og Pétur Behr- ens sýna um þessar mundir olíumálverk á Kjarvals- stöðum. Sýningu þeirra lýkur á sunnudag. í dag verður opnuð í kjall- ara Norræna hússins grafík- sýning á vegum Konstnárhus- ets Grafikgrupp. Þar sýna 15 listamenn grafíkverk, þeir eru Rune Petterson, Kerstin Abram-Nilsen, Bertil Almlöf, Gerry Eckhardt, Lennart Forsberg, Hans Hamngren, Karl Erik Hággblad, Lars Lindeberg, Birgitta Lundberg, Alf Olsson, Ursula Schútz, Nils G. Stenqvist, Lars Stenstad, Gunnar Söderström og Nalle Werner. í veitingahúsinu Þórscafé verður á morgun sýning á verkum Hreggviðs Hermanns- sonar og í Gailerí Suðurgata 7 er sýning á verkum banda- riska listamannsins Dave Defrandis. Sýningu hans lýkur á morgun. Höfundur þessa grafíkverks er Hans Hamngren og er hann meðal þeirra 15 lista- manna sem sýna verk sín i Norræna húsinu um þessar mundir. ÍSLENSKA fjölskyldukvikmynd- in Veiðiferðin verður sýnd í Austurbæjarbíói í Reykjavík og Borgarbíói á Akureyri nú um helgina. Kvikmyndin var frumsýnd s.l. laugardag á þessum tveimur stöðum. Framleiðendur eru þeir Gísli Gestsson og Andrés Indriða- son sem jafnframt samdi handrit- ÚTIVIST og Ferðafélag íslands bjóða upp á göngur og skíða- göngur um helgina. Hjá Útivist verður farið í skíðagöngu um Mosfellsheiði kl. 10.30 á sunnu- dagsmorgun og eftir hádegið verður styttri ganga um Reykja- ið. Myndin segir frá sunnudegi á Þingvöllum og koma þar ýmsar og misjafnar persónur við sögu. Helstu leikendur eru Sigurður Karlsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurður Skúlason, Pétur Einars- son, Guðrún Stephensen, Klemenz Jónsson, Haraldur Sigurðsson, Þórhallur Sigurðsson, Guðmundur Klemenzson. Kristín Björgvins- dóttir og Yrsa Björt Löve. fell og sameinast báðar göngurn- ar undir lokin. Ferðafélagið býður upp á gönguferð á Skálafell á Hellisheiði og verður lagt af stað kl. 13 á sunnudaginn. Á sama tíma verður einnig lagt upp í skíðagöngu á Hellisheiði. ÚTIVERA Skíða- og gönguferð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.