Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980
47
Úrslitaleikurinn í ensku deildarbikarkeppninni í dag:
Síðasti möguieiki
beggja liða á sæti
í UEFA-keppninni
NOTTINGHAM Forest og Wolv-
erhampton leika til úrslita um
deildarhikarinn enska á Wembl-
ey leikvanginum i Lundúnum á
morgun. Uppselt er á leikinn.
100.000 manns troða sér inn. Það
er að miklu að keppa íyrir lið
þessi.
Það er ekki aðeins bikarinn
sjálfur sem er eftirsóknarverður,
heldur tryggir sigur í leiknum
viðkomandi liði sæti i UEFA-
bikarkeppninni á næstkomandi
keppnistimabili. Úlfarnir eru
það aftarlega á merinni i deild-
arkeppninni, að þeir eiga ekki
annan möguleika á UEFA sæti en
þennan. Leggur liðið því að
sjlfsögðu ofurkapp á þennan leik
og hefur raunar mátt sjá það á
úrslitum hjá Úlfunum í deild og
FA-bikar að undanförnu, en þar
hefur liðið verið gersamlega óút-
reiknanlega, m.a. tapað heima
fyrir Watford 0—3 og síðan
unnið Aston Villa úti nokkrum
dögum seinna 3—1.
En Úlfarnir eru ekkert smeykir.
Liðið hefur á að skipa tveimur af
sleipustu miðherjum ensku
knattspyrnunnar, þeim Andy
Gray og John Richards. Samvinna
þeirra í framlínu Úlfanna hefur
verið með miklum ágætum í vetur
og er ástæða til að gefa þeim
góðar gætur. Ekki síst vegna þess,
að Larry Lloyd, hinn sterki mið-
vörður Forest getur ekki leikið
vegna leikbanns. Það skyldi aldrei
fara þannig að Andy Gray geri
gæfumuninn, því að hann átti þess
Braa sterkur á
Holmenkollen
Oddvar Braa, sem átti við las-
leika að stríða og gat því ekki
beitt sér sem skyldi á Olympíu-
leikunum í Lake Placid, var
sterkastur í 15 km göngu á hinni
árlegu Holmenkollen-skíðahátíð.
Þétta var í fyrsta skiptið í 8 ár
sem Norðmaður sigrar í þessari
göngukeppni. Braa sigraði m.a.
Svíann Thomas Wassberg sem
varð í öðru sæti. Höfðu þeir
félagarnir umtalsverða yfirburði
yfir aðra keppendur. Timi Braa
var 45:40,6 mínútur, en tími
Wassberg var hins vegar 46:09,5
mínútur. Braa hafði forystu í
göngunni frá upphafi til enda.
Norðmaðurinn Anders Bakken
varð þriðji að þessu sinni, gekk
vegalengdina á 46:19,7 mínútum
og Harri Kirvesniemi frá Finn-
landi varð í fjorða sæti, fékk
tímann 46:20,4 mínútur.
Tore Gullen frá Noregi varð
fimmti og landi hans Lars Erik
Eriksen varð sjötti. Finninn Juna
Mieto, sem varð annar í sams
konar göngu í Lake Placid á
dögunum, varð að gera sé'r
sjöunda sætið að góðu að þessu
sinni.
ÍA—KR
í dag
KR og ÍA leika í 8-liða
úrslitum í bikarkeppni
HSÍ á Akranesi í dag og
hefst leikurinn klukkan
13.30. Búast má við því að
3. deildar lið ÍA veiti KR
harða keppni, liðið hefur
leikið mjög vel að undan-
förnu.
kost að gerast leikmaður hjá
Forest áður en hann gekk til liðs
við Úlfanna.
Fjórir leikmenn úr liði Wolv-
erhamptön léku með liðinu síðast
er liðið komst í úrslit deildarbik-
arsins, þeir Palmar og Parkin úr
vörninni og Hibbitt og Richards
úr framherjasveitinni. Bæti Hibb-
itt og Richards skoruðu við það
tækifæri, en Úlfarnir lögðu þá að
velli Manchester City 2—1. Allir
utan þeirra, að einum undanskild-
um leika nú á Wembley í fyrsta
skiptið. Þessi eini undanskildi er
auðvitað gamla kempan Emlyn
Hughes, sem framkvæmdastjóri
Wolves, John Barnwell keypti frá
Liverpool fyrir smápening í upp-
hafi keppnistímabilsins. Hughes
hefur marg endurborgað kostnað-
arverð sitt með góðum leikjum
fyrir Úlfana. Og reynsla hans mun
verða liðsmönnum hans dýrmæt í
dag, því að kapinn hefur leikið
fleiri slíka leiki á ferli sínum
helsur en gengur og gerist.
En hvað með Forest? „Við
verðum að vinna þennan leik, því
að frammistaða okkar í deildar-
keppninni hefur verið slík, að við
tryggjum okkur ekki sæti í
UEFA-keppninni nema með því að
sigra. Við verðum að hafa alla
möguleika opna, við töpuðum fyrri
leik okkar gegn Dynamó Berlín í
Evrópukeppni meistaraliða og því
alls ekki víst að við komumst
áfram í þeirri keppni“ lét Brian
Clough, hinn fjölvísi og snjalli
framkvæmdastjóri Forest, hafa
eftir sér fyrir skömmu. Satt er
það, lið hans hefur verið óútreikn-
anlegt á þessu keppnistímabili,
ekki síður en lið mótherjanna. Má
Hinn góði árangur Vals í
Evrópukeppninni í handknatt-
leik vakti mikla athygli. Félag-
inu barst mikill fjöldi heillaóska-
skeyta víðsvegar að. Lionsklúbb-
urinn Þór færði handknatt-
leiksdeild Vals nýverið svo tvö
hundruð og fimmtíu þúsund
krónur að gjöf. Helgi Ólafsson
formaður Þórs afhenti gjöfina og
lét svo ummælt að þctta ætti að
virka sem hvatning til liðsins, og
um leið fordæmi fyrir aðra ef
þeir hefðu áhuga á að styrkja
liðið fyrir góðan árangur. Helgi
skilaði síðan bestu kveðjum frá
öllum félögum í Þór.
• Ken Hibbitt skoraði mark
siðast er hann lék á Wembley.
Geri hann það aftur, gæti það
skipt sköpum i leiknum.
t.d. benda á að liðið tapaði fyrir
skömmu fyrir Bolton 0—1 og vann
síðan Tottenham skömmu síðar
4—0. Þannig hefur þetta gengið
hjá Forezt á þessu keppnistíma-
bili. En svo hefur engu að síður
virst, að lið Forest sé eins sterkt
og það þarf að vera undir þeim
kringumstæðum sem upp hafa
komið. Þess vegna veðja flestir á
liðið sem líklegan sigurvegara í
úrslitunum í dag. Liðið verður þó
án Larry Lloyd, en það á ekki að
koma að sök, félagið á góða
varamenn, annars væri liðið ekki
eins gott og raun ber vitni.
Baráttan fer sennilega fyrst og
fremst fram á vallarmiðjunni. Þar
munu eigast við annars vegar þier
Daniel, Carr, Hibbitt hjá Ulfunum
og hins vegar þeir McGovern,
O’Neil og Bowles hjá Forest. Gæti
það orðið gríðarleg rimma, þar
sem allir þessir kappar búa bæði
yfir mikilli keppnisreynslu og
hæfni. Þarna ráðast sennilega
úrslitin, þar sem bæði lið hafa á
að skipa beittum sóknarmönnum
og hörðum varnarmönnum og
markvörðum. Þetta er síðasti
möguleiki beggja liða til þess að
komast í Evrópukeppni, því verður
hart barist.
Það kom síðan fram í stuttu
ávarpi sem Þórður Sigurðsson
formaður handknattleiksdeildar-
innar hélt að þessi peningagjöf
kæmi sér vel fyrir deildina. Kostn-
aður við Evrópukeppnina væri
mikill, og til gamans mætti geta
þess að peningaveltan eingöngu
við þá keppni væri um 23 milljónir
í ár. Þá væri nú ljóst að tekjur
Vals af úrslitaleiknum sem fram
fer í Munchen verðu minni en
vonir Vals stóðu til. Alþjóðahand-
knattleikssambandið fær svo til
allar tekjur af leiknum í sinn vasa,
svo og greiðslur vegna sjónvarps-
útsendinga. — þr.
• Ilelgi Ólafsson formaður Þórs (t.v.) færir Þórði Sigurðssyni
formanni handknattleiksdeildarinnar peningagjöfina.
Ljósm. Kristján
Lionsklúbburinn
Þór færði Vals-
mönnum góða gjöf
Eigast þá við Víkingur og ís í Hagaskólanum og hefst leikurinn
klukkan 19.00 á sunnudagskvöldið. Strax að leik loknum, eða um
klukkan 20.15, keppa síðan sömu félög í 1. deild kvenna. Er þar
nánast um úrslitaleikinn i deildinni að ræða. Bæði liðin hafa tapað
tveimur stigum i mótinu til þessa og fyrri leikinn vann Víkingur
mjög naumlega. Síðast leika siðan UBK og Þróttur i 1. deild
kvenna og hefst leikur þeirra klukkan 21.30.
Staðan á toppi 1. deildar karla er mjög tvísýn, UMFL hefur
forystu eins og er. 22 stig eftir 14 leiki, Þróttur hefur 20 stig.
cinnig eftir 14 leiki. Einn af fáum leikjum sem eftir eru, er
viðureign Þróttar og UMFL í Reykjavík. Auk þess á UMFL eftir að
leika gegn ÍS á Laugarvatni og Þróttur á eftir að mæta Víkingi.
UMSE er fallið í 2. deild og sæti liðsins í 1. deild tekur Völsungur
frá Húsavík.
Skíði:
Bikar og punktamót í skíðagöngu verður haldið í Hveradölum í dag
og hefst það klukkan 14.00. Nafnakall verður klukkan 13.00. Keppt
verður í öllum flokkum karla og kvenna. 58 keppendur hafa tilkynnt
þátttöku, Fram, Hrönn og Skíðafélag Reykjavíkur sjá um fram-
kvæmd mótsins.
Keppt verður í bikarkeppni SSÍ í svigi og stórsvigi í Bláfjöllum.
Keppt verður í stórsvigi í dag og svigi á morgun. Ásdis Alfreðsdóttir
er efst í stigakeppni SSÍ i kvennaflokki með 130 stig, hins vegar er
Árni Þór Árnason efstur í karlaflokki með 95 stig.
Knattspyrna:
íslandsmeistaramótið í knattspyrnu innanhúss fer fram í
Laugardalshöllinni um helgina, hófst reyndar í gærkvöldi. Það hefst
í dag klukkan 9.00 og stendur fram undir miðnætti. Eins á morgun.
Alls taka 44 karlalið þátt í mótinu og leika 16 lið í A-riðli, 16 lið í
B-riðli og 12 í C-riðli. I kvennaflokki keppa 5 lið og leika allir við alla
í sama riðiinum.
Júdó:
Síðari hluti íslandsmótsins í júdó verður haldinn í íþróttahúsi
Kennaraháskólans á morgun og hefst keppni klukkan 14.00. Verður
þá keppt í opnum flokki karla og er reiknað með því að flestir
sterkustu júdómenn landsins úr þyngri flokkunum láti sig ekki
vanta. Þá verður einnig keppt i kvennaflokki og þyngdarflokkum
unglinga 15-17 ára.
Köríuknattleikur:
Lokaspretturinn er nú hafinn í úrvalsdeildinni og fara þrír leikir
fram áður en Mbl. kemur aftur út í nýrri viku. Klukkan 14.00 í dag
eigast við ÍR og ÍS í Hagaskólanum, leikur sem hefur litla þýðingu. A
morgun verður þó heldur meira í húfi, en þá mætast Fram og
Njarðvík í Hagaskóla og hefst leikurinn klukkan 14.30.Fram á engra
hagsmuna að gæta, en tapi Njarðvík stigunum, er möguleiki liðsins á
titlinum rokinn út í veður og vind. Sigri UMFN Fram hins vegar,
munu menn bíða spenntir eftir úrslitum þriðja leiksins, viðureignar
Vals og KR í Laugardalshöll (ekki Laugardalsvelii eins og stendur í
tilkynningu KKÍ) á mánudagskvöldið klukkan 20.00. Valur verður að
sigra í þeim leik, nema að Njarðvík tapi fyrir Fram.
Handknattleikur:
Einn leikur fer fram í 1. deild karla. FH og Valur leika í
Hafnarfirði á morgun og hefst leikurinn klukkan 20.30.
Hins vegar fer fram úrslitakeppnin í yngri flokkunum og verður
mikið að gerast og víða. Keppnin í 3. flokki karla fer fram í
Vestmannaeyjum, 4. flokki karla í Hafnarfirði og 5. flokki karla að
Varmá. Keppnin í 2. flokki kvenna fer fram á Akranesi og ioks
verður keppt í 3. flokki kvenna á Selfossi. Á öllum stöðum verður
keppt bæði í dag og á morgun.
a nœstunm
Úrslitaleikur
meistarakeppni Evrópu
Valur — Grosswallstadt
28. mars 5 daga ferö til Miinchen meö
viökomu í Luxemburg.
Verö kr: 174.700,-
Fararstjórar: Jóhann Ingi Gunnarsson
Landsliðsþjálfari,
Ólafur H. Jónsson
Handknattleiksmaður.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
VID AUSTURVÖLL SÍMI 26900