Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 21
HVAÐ ER AD GERAST I RÆNUM MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 21 Atriði úr rokkóperunni Gulldrengirnir. Hafnarfjöröur Gulldrengirnir LEIKLISTARKLÚBBUR Flens- borgarskóla sýnir rokkóperuna Gulldrengirnir sunnudaginn 16. mars kl. 21. Leikritið er byggt á verki eftir Peter Terson, Zigger- Zagger, Zigger-Zagger, og var frumsýnt í unglingaleikhúsinu British National Youth Theatre. Birgir Svan Símonarsson þýddi, endursamdi og staðfærði verkið fyrir Nemendafélag Flensborg- arskóla. Sigurður Rúnar Jónsson samdi og útsetti tónlist við sýn- inguna og jafnframt sér hann um kór og hljómsveitarstjórn. Leik- stjórnin er í höndum Ingu Bjarna- son. Önnur sýning á Gulldrengj- unum verður þriðjudaginn 18. mars kl. 21 í Flensborgarskóla. Fyrirhugað er að sýna Gulldreng- ina á Akureyri sunnudaginn 23. mars kl. 21. DANSSÝNING Sýna norræna dansa Þjóðdansafélag Reykjavíkur verður með danssýningu í Austur- bæjarbíói í dag, laugardaginn 15. mars, kl. 14:30. Kemur þar fram fólk á öllum aldri allt nemendur félagsins, ásamt söngvurum og hljóðfæraleikurnum undir stjórn kennaranna, Kolfinnu Sigurvins- dóttur og Helgu Þórarinsdóttur. Þeir dansar sem þar verða sýndir eru allir norrænir. BÍLASÝNING Rall-bílar og útbún- aðurþeirra Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykja- víkur heldur bílasýnigu laugardag og sunnudag 16. og 17. mars í húsakynnum bílasölunnar Braut- ar, Skeifunni 11. Verða þar sýndir rallí-cross bílar og rallbílar og einnig verður áhersla lögð á að kynna þann öryggisútbúnað og annan búnað sem sérstaklega er krafist í bifreiðar af þessu tagi. Á sýningunni gefst mönnum kostur á að skrá sig í rallskóla Bifreiða- íþróttaklúbbs Reykjavíkur en í tengslum við þann skóla verður haldið æfingarall þar sem ein- göngu byrjendur hafa þátttöku- rétt. AKUREYRI L.A. sýnir Herbergi 213 LEIKFÉLAG Akureyrar sýnir „Herbergi 213 eða Pétur Mandolin" eftir Jökul Jakobsson kl. 20.30 á sunnudaginn. Leikstjóri er Lárus Ýmir Óskarsson en Leifur Þórarinsson hefur samið tónlistina við verkið. Með aðalhlutverkin fara Gestur Einar Jónasson, Sunna Borg, Sigurveig Jónsdóttir, Sólveig Halldórsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir og Svanhildur Jóhannesdóttir. KAMMERMÚSÍK Verk eftir Mozart Kammermúsíkklúbburinn held- ur fjórðu tónleika starfsársins í Norræna húsinu á morgun sunnu- daginn 16. mars, kl. 20.30. Á efnisskránni eru þrjú tónverk eft- ir Mozart, tríó fyrir klarinettu, víólu og píanó í Es-dúr og sónata fyrir fiðlu og píanó í C-dúr og kvartett fyrir fiðlu, selló, víólu og píanó í Es-dúr. Flytjendur eru Einar Jóhannesson, Mark Reed- man, Stephan King, Carmel Russ- ill og Philip Jenkins. Málverk af Mozart frá því 1789. TÓNLEIKAR Hljómsveit og lúðrasveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Barnakór Garðabæjar frumflytja tónverk eftir Jón Ásgeirsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Tvö íslensk verk frumflutt HLJÓMSVEIT og lúðrasveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur ásamt Barnakór Garðabæjar halda tónleika í Háskólabíói í dag, laugardag, kl. 2 e.h. Þar verða frumflutt tvö íslensk verk fyrir kór og hljómsveit, samin að beiðni skólans. Verk þessi eru „Orðagaman" eftir Jón Ásgeirsson og „Ljóti andarunginn" eftir Þorkel Sigurbjörnsson. SKÍÐI Allar lyftur í gangi ef veður leyfir SKÍÐALYFTURNAR í Skálafelli, Bláfjöllum og Hveradölum verða opnar almenningi um helgina kl. 10—18 ef veður leyfir. Allar skíðalyftur í Hlíðarfjalli við Akur- eyri verða sömuleiðis opnar um helgina ef veður leyfir kl. 10— 17.30. Fyrir helgina var nægur og góður snjór á ofangreindum stöðum. HÓTEL HOLT Ljúffengar steikur og réttir Á matseðli Hótel Holts um helg- ina kennir ýmissa grasa en þar mun Skúli Hansen yfirmatsveinn og aðstoðarmenn hans kitla bragð- lauka gestanna. Meðal þess sem á boðstólum er í hádeginu í dag er grísakóteletta, gufusoðin smálúðuflök með rækju- sósu, glóðarsteikt lambalæri og ofn- bakaðar kálfalundir. í kvöld verður á borðum hótelsins sjávarréttasalad, rjóma-blómkálssúpa og heilsteiktur nautahryggur ásamt Holtsvagninum sem að þessu sinni inniheldur glóð- arsteikt lambalæri bearnaise, fyllt- an smokkfisk, chefs special og grísa- lundir steiktar í koniaki. I hádeginu á morgun veður boðið upp á afmælisrétt hótelsins, létt- reykt grísalæri og jarðarberja- fromace. Annað kvöld verður Holts- vagninn m.a. á ferð með glóðarsteikt lambalæri, rjómasoðnar gellur og kryddlagðar grísalundir. Skúli Hansen matreiðslumaður á Holti (t.h.) ásamt Dagbjarti Bjarnasyni lærlingi í eldhúsi hótelsins. U<»n' Kristján.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.