Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 45
í MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 45 stundi það að gera menn óreglu- sama með allskonar ögrunum og jafnvel þvingunum! Það er einkennilegt hversu oft menn þurfa að segja fólki sann- leikann sem er þó á hverju götuhorni og þarf ekki götuhorn til. En það er nú svona að þó menn þreifi á og brenni sig, þá er eins og það sé látið lönd og leið og bara brennt sig aftur, þ.e. þegar um áfengið er að ræða. Það er talað um fræðslu. Mikið rétt, en hafa menn eymd og volæðið ekki dag- lega fyrir augunum? Eru ekki dæmin deginum ljósari? En það er nú svona samt. Það þarf að alltaf að vera að minna á.“ • Hann ætti góða íbúð ef ... „Ég hitti fyrir nokkru ungan mann. Hann hafði snemma byrjað á drykkjunni. Eytt hverjum þeim eyri sem hann innvann sér og látið svo foreldrana sjá fyrir sér þegar því var að skifta. Nú var hann búinn að fastna sér konu en vantaði íbúð. Nú rann upp fyrir honum ljós. Hann var að reyna að reikna fyrri daga út og komst að raun um að ef hann hefði ekki eytt öllu í verra en ekki neitt, þá ætti hann góða íbúð til að bjóða maka sínum inn í. Hváð skyldu þeir vera margir í slíkum sporum? I upphafi skyldi endirinn skoða. En það er nú mörgum erfitt. Og þer sem byrja á drykkjunni eru vissir um það í upphafi að þetta þurfi ekki að verða neitt mikið. En svo kemur bara áframhaldið og áður en varir er Bakkus búinn að ná undirtökunum og þá er ekki að sökum að spyrja. Lífið sett að veði. Hvílík viðskifti. Það þætti ekki gott í Sigurðarbúð var sagt í gamla daga. Já, hann var reglumaður sagði gamla konan og það var trygging- in. Og eru ekki regiumennirnir trygging þjóðarinnar fyrir heil- brigðum lifnaðarháttum? Vissu- lega. Þetta þurfa þeir sem mæna á flöskuna að skilja. Hver einstakl- ingur er dýrmætur landi og þjóð. Árni Helgason.“ • Á hvaða leið er sjónvarpið? Síðastliðið mánudagskvöld, 10. marz, var sýnt enskt sjón- varpsleikrit „Framadraumur" eftir einhverja konu, sem líka lék í myndinni. Það vakti furðu mína, að þessi mynd skyldi hafa verið valin til sýningar. Hver réð því? Fyrst og fremst var hún afar tilbreytingarsnauð og leiðinieg, en til þess að bæta upp fjörleysið voru bæði samtölin og ýmis til- brigði hið argasta klám. Fyrir hverja er verið að sýna slíka mynd? Laugardagsskemmtimynd- in „Löður" virðist ætla að verða sams konar samsuða. Ef þetta er smekkur ráðamanna sjónvarpsins væri ekki úr vegi að aðrir með menningarlegri smekk fengju tækifæri til að stjórna innkaupum á skemmtiefni. Menningarauki geta myndir eins og þessar ómögulega talist, því klám getur aldrei orðið annað en smekklaus lágkúra. 9337-4169 Þessir hringdu . . . • Með hárið ofan í augum G.G. hringdi: „Á baksíðu Morgunblaðsins í dag (fimmtudaginn 13. marz) er mynd af fólki sem er að vinna í loðnufrystingu. Þar er kvenmaður við vinnu með hárið langt ofan í munn. Á bls. 12 í sama blaði er önnur slík vinnumynd og þar eru bæði karlmenn og kvenmenn með hárið lafandi ofan í það, sem þau eru að vinna við. En á bls. 35 er mynd með grein um einhverja ráðstefnu í Eyjum, og þar er stúlka í fiskvinnslu með hárið mjög snyrtilega bundið og er nokkur munur á. Einnig er karl- maður á þeirri mynd með hatt á höfði, og eru þau bæði mjög snyrtilega til fara í fallegum hreinlegum fatnaði. Þessi slóðaskapur fólks, eins og tvær fyrstnefndu myndirnar bera með sér, nær að mínu mati engri átt. Matur, og þá sérstaklega fiskur, er útflutningsvara sem við þurfum að vinna álit annarra þjóða á. Hvernig er það, á ekki heilbrigðiseftirlit að fylgjast með þessu? Annars finnst mér að eigendur slíkra verksmiðja ættu að sjá sóma sinn í því að ekki þurfi hvað eftir annað að reka augun í slíkar myndir í fjölmiðlum okkar.“ SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson í Evrópukeppni sveita í Skara í Svíþjóð í janúar kom þessi staða upp í skák stórmeistaranna Erm- enkovs, Búlgaríu, og Portisch, Ungverjalandi, sem hafði svart og átti leik. 31. ...— Dxg2+, 32. Hxg2 — Hxg2+, 33. Khl — Rg3+ og hvítur gafst upp. HÖGNI HREKKVISI V'* © 1980 McNaught Syud.. l»c. „(W fie tH' ■ ■ ■' mSARHIR Kim... Til sölu sokkar, vettlingar og ýmsir handunnir munir. Opiö frá kl. 1—4, 5 daga vikunnar. Munirnir eru til sýnis og sölu á 3. hæö og í föndursal. Elli- og hjúkrunarheimiliö Grund Til sölu rúmgóö og björt 3ja herb. íbúð í snyrtilegri blokk í vesturbænum. Ný teppi. Sér hiti. Suöur svalir. Uppl. í síma 13938. Fyrir þvottahús fjjölbýlishúsa VANDLÁTIR VEUA WESTING HOUSE Westinghouse þvottavélin og þurrkar- inn eru byggð til að standa hlið við hlið, undir borðplötu eða hvort ofan á öðru við enda borðs i eldhúsi eða þvottahúsi, þar sem gott skipulag nýtir rýmið til hins ýtrasta. Traustbyggðar vélar með 30 ára reynslu hér á landi. Þið getið verið örugg sé vélin Westinghouse KOMIÐ — HRINGIÐ — SKRIFIÐ! við veitum allar nánari upplýsingar. Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900 VIÐTALSTÍMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjólfstæðísflokksins veröa til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boðiö að notfæra sér viðtalstíma þessa. Laugardaginn 15. marz, veröa til viötals Magnús L. Sveinsson og Margrét S. Einarsdóttir, Magnús er í stjórn verkamannabústaða, atvinnumálanefnd, umhverfismálaráöi, framkvæmdaráöi, stjórn Inn- kaupastofnunar og Sjúkrasamlagsstjórn. Margrét er í heilbrigöismálaráöi, jafnréttisnefnd, leikvalla- nefnd og þjóöhátíðarnefnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.