Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.03.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 17 Ernir Snorrason Heimir Pálsson Gylfi Gislason Jónas Pálsson Þorkell Helgason lýsingu Menntaskólans við Hamrahlíð, þar sem nám fer fram í fulri samvinnu við Tónlistarskól- ann í Reykjavík), en við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti er lista- sviðið fremur það sem eðlilegt væri að kalla „myndlistarsvið" og samtals eru 48 einingar af 147 í myndlist — hvergi hefur enn verið sett á fót leiklistarsvið svo mér sé kunnugt um, og leiklist virðist ekki skipa mikilvægt rúm innan þess sem þegar var getið." Þorkell Helgason dósent talaði um list í háskóla. Sagði m.a.: Háskóli Islands veitir ekki fræðslu í listum. Nám í háskóla er í eðli sínu sérnám, og þetta afdráttar- lausa svar tekur mið af því. Hitt er annað mál, að í kennsluskrá Há- skólans er að finna nokkur nám- skeið, sem telja mætti til lista- fræðslu, en þar er þá eingöngu um að ræða hliðarnám annars sérn- áms á listasviði. Þannig er boðið upp á listasögu, sem ætluð er sagnfræðinemum, og guðfræði- nemar njóta allverulegrar þjálfun- ar í söng og tónmennt. Er raunar kennarastaða í þeim fræðum við guðfræðideild; að vísu einungis hlutastaða. Og í lokin sagði Þorkell: Hlut- verk háskóla er að veita hina æðstu sérmenntun. Listfræðsla gæti því aldrei orðið hjáverk háskólans. Eigi Háskólinn að sinna listfræðslu, verður að stíga þar skref til fulls og stofna há- skóladeild í listum. En þar sem nokkrir listaskólar landsins eru nú þegar að hasla sér völl sem lista- háskólar, væri hér um stefnu- breytingu að ræða. Ég tel það því Stefán Edelstein Einar Hákonarson Þrándur Thoroddsen - Pétur Einarsson Hrafn Gunnlaugsson álitamál, sem vel þurfi að skoða, hvort færa eigi hina æðstu lista- fræðslu inn í Háskólann. En annað mál er, að Háskólinn opni gáttir sínar fyrir ferskum andblæ lista, t.d. með því að koma á fót nokkrum gististólum fyrir lista- menn. • 50 tónlistarskólar Stefán Edelstein skólastjóri talaði um hlutverk og tilgang tónlistarskóla. Hann sagði: í þessu landi eru starfandi tæplega 50 tónlistarskólar, þar af 5 í í Reykjavík en 10 alls á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Á 7. þúsund nemendur stunda nám í þessum tónlistarskólum. Þeir eru reknir samkvæmt lögum frá 1975. Kjarni þessara laga er, að sveitarfélög og ríki skipta með sér launakostnaði á helmingsgrundvelli. Launa- greiðslur vegna tónlistarskólanna voru á árinu 1979 rúmlega 1 milljarður króna. Síðar sagði hann: Samfélag okk- ar einkennist m.a. af því að alls kyns framboð af menningar-, lista- og afþreyingarefni gerir einstakl- ingana óvirka. Sjálfstæð smekk- mótun og myndun gildismats hjá einstaklingum, hvort sem um er að ræða börn, unglinga eða fullorðna, er í hættu vegna þessa framboðs. Því óvirkari sem þessir viðtakend- ur eru því líklegra er t.d. að svokallaður skemmti- eða afþrey- • -'tornineur seljist. Hvað tón- ------------ . , , _ ^ list viðvíkur má halda þvi iram „„ músikmarkaðurinn, sem sérhæfir sig í svokallaðri léttri músik (sem hér er notað sem safnheiti yfir popp, diskó, dægurlög o.s.frv.) hafi beinlínis hagnað af því að halda framleiðslugæðum sínum í lág- marki. Dómgreind músikneytenda og gagnrýnin hlustun sljóvgast af lágkúruformúlum sem sífellt er haldið að þeim. Faguruppeldi, þar með talið tonlistaruppeldi á því í vök að verjast gegn ofurvaldi vel skipulagðs skemmtiiðnaðar sem hyggir á gróðasjónarmiðum einum saman. Tónlistarkennsla í tónlist- arskólunum er því mikilvægt mótafl gegn þeirri óvirkni sem svo mjög einkennir samfélag okkar. Nemendur tónlistarskólanna eru virkir í hljóðfæraleik, þeir læra að hlusta á virkan hátt og greina tónlist, taka þátt í skapandi tón- listarathöfnum og verða smátt og smátt gagnrýnir þátttakendur, bæði á eigin sköpun og tónlistarf- lutning, svo og gagnrýnir neytend- ur þess sem aðrir skapa og flytja. Vissulega er þetta hægfara þróun, en hún byggir á sívaxandi reynslu og þroska einstaklinganna. Einar Hákonarson skólastjóri talaði um myndmennt og ræddi þar um Myndlista- og handíða- skóla Islands: Skólinn er marg- þættur, og segja má að innan veggja hans rúmist fjórir skólar, sem í mörgum löndum eru allt sjálfstæðar stofnanir: I fyrsta lagi er skólinn myndlistarskóli, í öðru lagi listiðnaðarskóli, í þriðja lagi kennaraskóli og fjórði þátturinn er sú þjónusta, er skólinn veitir með námskeiðum fyrir áhugafólk um tómstundaiðju og fyrir þá, er vilja mennta sig til meiri hæfni og lífsánægju. Nú nýverið hefur verið gerð umtalsverð kerfisbreyting á skólanum með því að færa undir- búningsnám í almennum mynd- listagreinum meira út frá skólan- um til fjölbraútaskóla, svo og til myndlistarskólans á Akureyri. Sérdeildanámið í Myndlista- og handíðaskólanum verður þá 3 ár, en var tvö ár áður. Ekki er ofsögum sagt að lista- skólar ísl. ríkisins hafi verið oln- bogabörn menntakerfisins. Allir eru þeir hafðir í húsnæðissvelti. Áhugaleysi stjórnvalda fyrir þess- um stofnunum er mjög áberandi. Þegar reynt var að fá verknáms- skólahúsnæði, sem losnaði á síðastliðnu ári hér í borg fyrir Myndlista- og handíðaskóla Islands, ákváðu ráðamenn að hundsa allar .okkar beiðnir um þetta húsnæði og settu þar á stofn bóknámsdeildir og tvístruðu verk- færum og aðstöðu þessa skóla- húsnæðis. Það læðist að manni sá grunur, að þessi aðiljar og margir aðrir ráðandi menn í þessu landi hafi ekki hugmynd um, hvað sé myndlist og hvaða not og lærdóm má af henni hafa. Satt er að ekki er um langa hefð að ræða í myndlist okkar, ekkert í líkingu við þá hefð, sem til er í bókmennt- um. • 50-60 nýnemar í leiklist Pétur Einarsson skólastjóri talaði um stöðu leiklistarmenntunar í dag. Sagði m.a.: í framhaldskóla- frumvarpinu er ákvæði um að á því ári, sem nemandi verður 19 ára, geti hann hafið nám í fram- haldsskóla án þess að fullnægja lágmarkskröfum eða öðrum inn- gönguskilyrðum frumvarpsins. Hvergi í frumvarpinu er að finna heimild til að takmarka fjölda nemenda með hæfniskönnun, en hæfniskönnun er eina raunhæfa leiðin til að velja nemendur í Leiklistarskóla íslands. í öllum þeim skólum sem ég þekki til á Norðurlöndum eða annars staðar, hvort sem þeir eru ríkis- eða einkaskólar, allir þessir skólar, undantekningarlaust, takmarka aðgang og velja nemendur með hæfniskönnun. Ef frumvarp þetta yrði samþykkt óbreytt hvað snert- ir Leiklistarskóla íslands má gera ráð fyrir að skólinn yrði að taka við 50-60 nýjum nemendum árlega. Hver trúir því að fjárveitingar- veitingar til skólans? Húsnæðis- þörf skólans ni^ "'argfaldast. Við eigum enga möguleika að afla hæfra kennara fyrir allan þennan fjölda. Ergo, eina leiðin yrði að þynna út kennsluna, sem þessu nemur og slá af öllum kröfum skólans til samræmis við það. Slíkur skóli getur aldrei verið æðsta menntastofnun í leiklist. Sú námsskipan sem frumvarpið gerir ráð fyrir er á engan hátt samrým- anleg leiklistarnámi. Skólinn getur ekki bætt á sig kennslu sem lýtur að almennri menntun né valgrein- um, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Skólinn getur ekki útskrifað helming eða hluta leikara eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. Skipu- lag námsins er allt ein órofa heild byggð á ákveðinni þróun. Þrándur Thoroddsen kvik- myndagerðarmaður talaði um kvikmyndaskóla og kvikmynda- mennt. Hann sagði m.a.: íslend- ingar hafa leitað víða til að aflá sér menntunar í kvikmyndagerð: Til Sovétríkjanna, Tékkóslóvakíu, Pólland, Svíþjóðar, Danmerkur, Þýzkalands, Frakklands, Bret- lands og Bandaríkjanna. Þá vakn- ar sú spurning hvort ísland telur sig hafa þörf fyrir þetta fólk. Rúm tylft manna hefur snúið heim að loknu kvikmyndanámi. Þetta fólk hefur flest reynt að bjóða sjón- varpinu vinnu sína á einhvern hátt. Nú eru þar 3—4 kvikmynda- skólagengnir menn í föstu starfi. Aðrir hafa reynt að selja stofnun- inni vinnu sína eða framleiðslu með misjöfnum árangri. Sjónvarp- ið heldur ekki uppi neinni skipu- legri fræðslu eða menntunar- starfsemi fyrir starfsfólk sitt og virðist ekki telja sig hafa þörf á fleira kvikmyndalærðu fólki í bráð. íslenzk kvikmyndagerð und- anfarinna ára utan sjónvarps hef- ur því að mestu snúist um gerð sjaldan tilfallandi fræðslu- og kynningamynda fyrir stofnanir og bæjarfélög og svo auglýsinga- mynda. Nýstofnaður kvikmynda- sjóður lofar þó góðu, takist að afla fjár til hans og skipuleggja starf- semina svo að gagni megi vera. • Listalífið ekki forngripasafn Hrafn Gunnlaugsson rithöfundur talaði um menningarpólitík. Sagði í lokin:Ný fjölmiðlunartækni hefur breytt þýðingu og hlutverki hverr- ar menningarstofnunar á fætur annarrar og aukið þær kröfur sem við gerum á hendur þeim. Ég held að flestir vilji frekar hlusta á níuna hans Beethovens á full- komnum hljómflutningstækjum í friði og ró heima hjá sér, heldur en að fara upp í Háskólabíó. Hins vegar er aðeins ein leið opin til að kynnast nýjum íslenzkum tónverk- um, þ.e. að hlusta á íslenzku sinfóníuna flytja þau, enda ætti það að vera aðalsmerki sveitarinn- ar að flytja ís. tónlist. Ég á sömuleiðis afskaplega erfitt með að trúa á íslenzka óperu, nema samdar séu íslenzkar óperur sem ástæða er til að flytja. Framtak íslenzku óperunnar var gott, en nú vantar bara efni að vinna úr: höfunda sem hafa eitthvað að segja okkur. Öflugt listalíf byggir á því að fram komi verk, sem eiga erindi við samtíðina og eiga því heimtingu á að verða flutt. Lista- lífið má aldrei breytast í forn- gripasafn þar sem dregin eru fram gömul verk og dustað af þeim rykið, aðeins vegna þess að ekkert nýtt er að gerast. Kjartan Ragnarsson leikari flutti lokaerindi, áður en pall- borðsumræður hófust, og nefndi það Maður og list. Hér hafa verið flutt yfir 50 erindi af ólíkum mönnum um ólík viðfangsefni, byggð á ólíkri reynslu. En öll umræða hér hefur samt hnigið í eina átt. Hvort sem listamennirnir hafa sjálfir lýst stöðunni innan sinnar listgreinar eða íeikmenn rætt hlutverk lista í víðara sam- hengi, þá er niðurstaðan úr þess- um erindum nær öll á sama veg: „Listir ber að efla“, krafa um einhverja meðvitaða menningar- stefnu stjórnvaida og skilning þeirra á því að lifandi listir eru sá hluti þjóðlífsins sem gerir þjóð að Þjóö. „ - . (E.Pá tók sanin,", i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.