Morgunblaðið - 15.03.1980, Page 2

Morgunblaðið - 15.03.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 Ríkið eykur nið- urgreiðslu ullar RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sinum tillögur iðnaðarráð- herra um úrbætur vegna erfið- leika ullariðnaðarins, en þær byggja á niðurstöðum starfshóps iðnaðarráðuneytisins, sem skipaður var eftir fund með tals- mönnum ullariðnaðarins. Eitt helzta atriði þessara aðgerða kveður iðnaðarráðherra vera auknar niðurgreiðslur á ull úr ríkissjóði, en þær munu hækka úr 489 kr. kg í 689. Gert er ráð fyrir að kostnaður á 12 mánuðum verði 320 m.kr. og verður hann tekinn af niðurgreiðslufé, sem annars kæmi á aðrar búvörur. Aðrar tillögur iðnaðarráðuneyt- isins, sem samþykktar voru, eru: Endurgreiðslu á uppsöfnuðum söluskatti á útfluttar ullarvörur 1979 verði flýtt, hraðað verði hag- ræðingu og starfsþjálfun, sér- staklega að því er varðar sauma- stofur, og veittur stuðningur til Aðalfundur Verzl- unarbankans í dag AÐALFUNDUR Verzlunarbanka íslands h.f. verður haldinn í dag í Súlnasal Hótel Sögu og hefst kl. 14. Á fundinum fara fram venju- leg aðalfundarstörf. Þeir hluthafar, sem ekki hafa vitjað aðgöngumiða, geta fengið þá við innganginn. þess, Byggðasjóður athugi stöðu saumastofa og veiti þeim verst settu stuðning við hagræðingarað- gerðir, farið verði varlega í að veita lán til að stofna ný fyrirtæki í ullariðnaði og starfshópi ráðuneyta iðnaðar, landbúnaðar, viðskipta og fjármála verði falið að athuga hvernig best sé að hafa verðlagn- ingu ullar. Allt gott um þessar aðgerðir að segja — Ég hef enn fengið litlar fréttir af aðgerðum ríkisstjórnar- innar til stuðnings ullariðnaði, en þó er allt gott um þær aðgerðir að segja, sem ég hefi heyrt um, t.d. auknar niðurgreiðslur, þótt enn sé ullarverð nokkru ofar heims- markaðsverði, sagði Pétur Eiríksson forstjóri Álafoss er Mbl. ræddi við hann í gær. Pétur Eiríksson sagði það einnig jákvætt að flýta ætti endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts á útfluttar ullarvörur, en sú endurgreiðsla hefði oftlega dregist úr hömlu. Þá kvað Pétur aðspurður fyrirhugað gengissig 1—2% ekki vera upp í nös á ketti og of lítið til að það kæmi verulega að gagni. Eftir helgina munu talsmenn ullariðnað- arins ræða vandamál iðnaðarins á fundi og kvað Pétur þar eflaust rætt um aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar og vildi að öðru leyti ekki tjá sig á þessu stigi málsins. Samninganefnd BSRB á fundi í gær. — Ljósm. Mbl. Kristján. Kristján Thorlacius formaöur B.S.R.B.: „Út í bláinn að B.S.R.B. bíði með viðræður sínaru Borgþór Kjæmested yfirheyrður í gær RANNSÓKN ARLÖGREGLA ríkisins hóf í gær að fyrirlagi ríkissaksóknara opinbera rann- sókn á þeim staðhæfingum i blöðum að skipulagt vændi hefði farið fram í veitingahúsinu Holiywood, en framkvæmdastjóri staðarins hafði óskað eftir slíkri rannsókn vegna frétta Borgþórs Kjærnesteds. Miðar rannsóknin að því að fá fram hvort einhver slík starfsemi hafi þarna farið fram, sem brjóti gegn 181. og 206. grein almennra hegningarlaga. Borgþór Kjærne- sted var fyrst tekinn til yfir- heyrslu og fór yfirheyrslan fram í gær. í fyrrnefndum lagagreinum er lögð refsing við því að hafa framfærslu af lauslæti eða gera sér lauslæti annars að tekjulind. SAMNINGANEFND Bandalags starfsmanna rikis og bæja kom saman til fundar í gær til þess að ræða bréf Ragnars Arnalds, fjár- málaráðherra við kröfum banda- lagsins, sem barst á miðvikudag og stöðuna í samningamálunum. Sáttasemjari Vilhjálmur Hjalm- arsson hcfur ákveðið að sáttafund- ur verði næstkomandi mánudag klukkan 14 og verður hann hald- inn i húsakynnum BSRB við Grett- isgötu. Fundurinn samþykkti ályktun, sem er svohljóðandi: „Stjórn og samninganefnd BSRB leggur á það áherzlu að nú þegar fari fram samningaviðræður um kröfugerð BSRB eins og hún liggur fyrir í heiid. Jafnframt fari fram viðræður um þau atriði, sem fram koma í bréfi fjármálaráðherra, dagsett 12. 3. ’80.“ í framhaldi af þessari ályktun voru kosnar tvær nefndir, önnur skipuð 7 mönnum og hin skipuð 5 mönnum til þess að hafa forystu um þessar viðræður, hvor á sínu sviði. Önnur fjalli um kröfugerðina og hin fjalli um þau atriði, sem BSRB hefur sett fram, jafnhliða kröfugerð, ýmis atriði um réttindi og félagsmál og þau atriði, FYRIRSJAANLEGT er að samn- ingaviðræður stéttarfélaganna við ríkið vegna ríkisverksmiðjanna, Sementsverksmiðjunnar og Áb- urðarverksmiðjunnar. svo og Kísiliðjunnar við Mývatn, munu verða mjög erfiðar. Ástæðurnar eru þær, að kjarasamningur við Járnblendiverksmiðjuna í Hval- firði er allmiklu hærri að flestu leyti, en samningar áðurnefndra verksmiðja. Stéttarfélögin hafa enn ekki lagt fram kröfur vegna starfsfólks ríkisverksmiðjanna, en þeir hafa gert viðsemjendum sínum grein fyrir þessum mismun og að þau séu staðráðin í að eyða honum. Sjónarmið verkalýðsfélaganna er að allt öðru máli gegni með Járn- blendifélagið en íslenzka álfélagið. ÍSAL sé félag í erlendri eigu, en Járnblendifélagið sé fyrirtæki, sem sé íslenzkt, meirihluti hlutafjár sé í höndum íslenzka ríkisins og því sé enginn munur á járnblendiverk- smiðjunni og hinum ríkisverk- smiðjunum. Þessi mismunur er einkum og sér í lagi tilfinnanlegur, þar sem Sem- entsverksmiðjan er svo til á sama samningssvæði og Járnblendiverk- smiðjan og munu vera dæmi þess að menn hafi sagt upp hjá Sements- verksmiðjunni á Akranesi og ráðizt til Járnblendifélagsins eingöngu vegna þess að þar hafa menn átt kost á mun betri launakjörum. Telja verkalýðsfélögin þetta óeðli- legt, m.a. vegna þess að stærsti eigandi verksmiðjunnar í Hvalfirði er jafnframt aðaleigandi Sements- verksmiðjunnar. RlKISSTJÓRNIN hefur haft til athugunar beiðni Flugleiða hf. um að veitt verði ríkisábyrgð á rekstr- arláni að upphæð 5 milljónir dollara, sem Alþingi samþykkti að heimila með lögum frá 23. maí 1975 en ekki hefur verið nýtt fram að þcssu. Ákveðið hefur verið að veita nú þegar ríkisábyrgð fyrir helmingi umbeðinnar ábyrgðar en endanleg afstaða til erindisins verður tekin í næstu viku að nánar athuguðu máli, segir í frétt frá fjármálaráðu- neytinu. I tengslun við þessa ábyrgðarveitingu mun ríkisstjórnin setja þau skilyrði: 1. Að Flugleiðir hf. tryggi eins og unnt er atvinnuöryggi þeirra starfsmanna, sem sérhæfðir eru til starfa að flugmálum. 2. Að viðhald á flugvélum Flugleiða hf. verði markvisst fært inn í Iandið svo sem frekast er kostur. 3. Að fulltrúar skipaðir af ríkis- stjórninni fái aðstöðu til að fylgjast með rekstri félagsins. sem fram koma í bréfi ráðherra. Stærri nefndin fjallar um kröfu- gerðina. Kristján Thorlacius, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, kvað þessar nefndir eiga að hafa forystu um þessar viðræður, en áfram myndi samninganefndin vera höfð með til ákvörðunar. Kristján kvað viðbrögð við bréfi fjármálaráð- herra almennt hafa verið á þann veg, að það væri innlegg í heildar- málið, en eins og fram kæmi í ályktuninni, hefðu menn talið að nauðsynlegt væri að taka málið upp sem heild. Hins vegar væru þessir punktar gott innlegg í heildarmálið. Þá spurði Morgunblaðið, hvað mönnum hafi fundizt um það atriði í bréfi fjármálaráðherra, að BSRB biði eftir þróun í almennum sam- ningum. „Við lítum ekki á það sem neitt atriði," sagði Kristján, „þótt það sé nefnt í bréfinu. Okkar kröfugerð stendur, auðvitað og við erum næst stærstu heildarsamtök launþega í landinu með frjálsan samningsrétt og erum hluti af almennum vinnumarkaði. Þetta er bara úrelt afstaða frá því er gerðar- dómar ákváðu okkar kjör, sem áttu að taka mið af öðrum. Við teljum okkur vera hluta af almennum vinnumarkaði, og hitt sé bara hugt- akabrengl. Því er það út í bláinn að BSRB bíði með sínar viðræður. Samninganefnd okkar og stjórn ákveða það.“ Verkalýðsfélögin vilja sams konar samning við ríkisverk- smiðjurnar og Járnblendið Birting greina í Morgunblaðinu AF GEFNU tilefni vill Morgun- blaðið minna á, að blaðið tekur ekki til birtingar höfundagrein- ar, sem jafnframt eru sendar öðrum blöðum til birtingar. Á þetta er minnt nú vegna þess að undanfarið hafa birzt greinar í Morgunblaðinu. sem áður hafa birzt í öðrum blöðum. Hér er um algera undantekningu að ræða frá starfsreglum blaðsins, sem stafar af því að mikil þrengsli hafa verið í blaðinu síðustu vikur og birting greina því dregizt úr hófi. Ur þessu rætist væntanlega á næstunni. Morgunblaðinu þykir að jafn- aði ástæðulaust að birta greinar, einnig eru sendar öðrum sem blöðum enda verður það að teljast ósiður hjá greinahöfund- um að senda mörgum blöðum sömu greinina til birtingar, eins og um fréttatilkynningu væri að ræða. Morgunblaðið hefur áður skýrt frá þessari afstöðu sinni og í langflestum tilfellum hafa greinahöfundar virt sjónarmið blaðsins. Hitt er svo annað mál, að sjálfsagt er að birta svar- greinar við efni í Morgunblað- inu, þó að höfundar fari einnig með slíkt í önnur blöð, og fréttatilkynningar og greinar- gerðir sem send eru öllum fjöl- miðlum birtir Morgunblaðið að sjálfsögðu. Rótarý heiðrar minn- ingu Luðvigs Storr Beiðni Flugleiða: Ríkisstjórnin veitir hálfa rikisábyrgð með skilyrðum í ÁR er Rótarýklýbbur Reykja- víkur 45 ára og jafnframt er þess minnst, að 75 ár eru liðin frá stofnun Alþjóða Rótarý-hreyf- ingarinnar. Af því tilefni samþykkti' Rótarýklúbbur Reykjavíkur að heiðra minningu Ludvigs Storr, aðalræðismanns, en hann var frumkvöðull að stofnun Rótarý- klúbbs Reykjavíkur, og þar með að landnámi hreyfingarinnar á íslandi. Ludvig Storr var af þessu tilefni útnefndur Paul Harris- félagi, en það er æðsta heiðurs- veiting Rótarý-hreyfingarinnar. Á árshátíð Rótarýklúbbs Reykjavíkur þ. 22. febrúar sl. veitti frú Svava Storr, ekkja Ludvigs, þessari viðurkenningu móttöku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.