Morgunblaðið - 15.03.1980, Side 13

Morgunblaðið - 15.03.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 13 Radarvarinn, sem nemur radargeisla lögreglunnar. Radarvari á íslandi Gefur frá sér skerandi hljóð við radargeisla UM skeið hefur verið á boðstólum hér á landi svokallaður radar- vari. Þetta merkilega tæki gefur frá sér skerandi hljóð þegar bifreið er að fara inn f radar- geisla lögreglunnar og því getur ökumaður hægt á sér. Að sögn starfsmanna Radóívirkjana er hér um endurbætta tegund að ræða en hin gamla heltist úr lestinni þegar lögreglan kom með nýja radartegund. Ökumenn geta því hægt á sér ef þeir fara inn i radargeislann og sleppa þannig við sekt. Að sögn hafa margir radarvarar selst. „Mér finnst alveg prýðilegt að menn fái sér radarvara," sagði Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn, þegar blaðamaður ræddi við hann um radarvarann. „Hins vegar held ég að reynslan hafi sýnt, að þegar tækið gefur frá sér hljóð þá er bíllinn þegar kominn ínn í geisl- ann og því mælist hraði bifreiðar- innar. Allt sem ökumenn geta fundið til að vara við er af hinu góða því það dregur úr hraðanum. Okkar hlutverk er ekki að sekta heldur að reyna að draga úr hraða og því þurfum við að vera sem víðast," sagði Óskar ennfremur. Islenzkar peysur dýraslar í París Franska blaðið Express hefur neytendadálk, þar sem sagt er frá ýmsum varningi sem fæst í Parísar; borg, matvælum, tískuvörum o.fl. í blaðinu 23. febrúar er sagt frá skemmtilegum peysum af norður- hveli, sem nú séu mjög eftirsóttar. Varla séu þær komnar í litlu tísku- búðirnar frá Noregi eða Islandi, þegar þær hverfi þaðan. Þessar grófgerðu, hlýju peysur séu svo vinsælar að franskir tískuhönnuðir séu farnir að teikna golftreyjur úr þykku ullarbandi með stórgerðu mynstri. Ungu stúlkurnar fari í ullarpeysur með víðum „sveita- stúlku“-pilsum. Þannig séu þær að líkja eftir þjóðlegheitum eða skóla- stelpnaklæðnaði, ef þær séu þá ekki að elta uppi rómantískan engilsax- neskan stíl. Svo koma ábendingar um ákveðn- ar ullarpeysur í ákveðnum búðum, sem vísað er á. Peysurnar kosta frá 190 frönskum (þá svolítið blönduð ull) og upp í 475 franka, (rúmar 45 þús. kr.) og það eru handprjónuðu íslensku lopapeysurnar í sauðalitun- um, sem eru dýrastar. Þær er að fá í versluninni Trois Marches í 6. hverfi, þar sem opið er frá hádegi fram til kl. 8 að kvöldi. Færeysku ullarpeysurnar kosta ekki nema 325 franka (rúm 24 þús.), en norsku peysurnar komast næst þeim íslensku, á 420 franka. DB og dular- fullar raddir ÞAÐ VAKTI athygli þegar Dagblaðið fann bjöllu neðri deild- ar Alþingis í vikunni. Einhver dularfullur maður hringdi á rit- stjórn DB á miðnætti aðfararnótt mánudagsins, að sögn þeirra Dagblaðsmanna, og vísaði á bjöll- una. Rannsóknarblaðamenn DB fóru að sjáifsögðu þegar af stað — og viti menn. Þeir fundu bjölluna! Þessi fundvísi DB hefur vakið verðskuldað lof og athygli. Rann- sóknarblaðamenn DB hafa áður afrekað að finna týnda hluti. En einhverjar grunsemdir hafa víða vaknað og þannig sagðist Vísis- Loka frá: Það hefur nú gerst í þrígang að Dagblaðsmenn hafa fundið stolna hluti eftir að „dul- arfull rödd“ vísar þeim á þá á nokkurn veginn sama stað. Sumir eru nú farnir að leggja saman tvo og tvo og fá út fjóra. Helgarviðtalið: Kvikmyndasafnið verði ekki bara geymsla fyrir gamlar spólur KVIKMYNDASAFN íslands var stofnað með lögum árið 1978 en tók ekki til starfa fyrr en ári síðar. Einn starfsmaður vinnur nú við safnið, Erlendur Sveinsson. Hann hefur undanfariö unnið við uppbyggíngu þess, en aðeins í hlutastarfi. í dag á Kvikmyndasafn íslands aðeins eina spólu í sínum fórum en það er af för íslenzkra alþingismanna til Kaupmannahafnar árið 1906. „Mjór er mikits vísir,“ sagði Erlendur Sveinsson í hér á eftir: Nú er Kvikmyndasafn Islands í burðarliðnum og kannski ekki einu sinni það. En hvaö eigið þið í fórum ykkar hér? Þetta er alveg rétt hjá þér. Enn sem komiö er vantar nánast allt til alls. Eina spólan sem vlö eigum í safninu nú er komin frá Danmörku en hún er tfka merkileg. Þaö er fyrsta kvikmyndin þar sem íslend- ingar eru festir á filmu, en hún er af för íslenzkra alþing- ismanna til Kaupmannahafnar áriö 1906. Ákaflega merkileg mynd og mjór er mikils vísir. Ég geri mér alveg fulla grein fyrir aö hér verður aö vera hægfara þróun. Þaö var í sjáifu sér mikill áfangi, þegar lög um Kvikmyndasafn Islands voru samþykkt. Nú vantar fé. Viö fengum á síðasta ári 5 mílljónir til safnsins, í fjárlögum núver- andi fjármálaráöherra er gert ráð fyrir 7 milljónum. Þaö sem við þurfum aö fá í gegn er aö staöið verði við lögin, en sam- kvæmt þeim er gert ráð fyrir starfsmanni viö safniö. Ég er hér bara í hálfu starfi. Við byrjum smátt og mörg stór söfn erlendis höfðu ekki úr meiru að moða í upphafi. Hvaða hlutverki vonast þú til aö safnið gegni? Ekki verður safnið bara lokuð geymsla fyrir safngripi, sem almenningur hefur takmark- aðan aðgang að. Auövitaö ekki, safnið má ekki bara vera geymsla fyrir gamlar spólur, dauð stofnun, heldur veröi safniö lifandi stofnun, sem gegni margþættu menningar: og uppeldislegu hlutverki. Ég vil í þessu sam- bandi nefna fjórþættan tilgang. í fyrsta lagi söfnun kvikmynda og annars, sem tengist sögu þeirra. Þá varöveizlu þeirra, sem er vandasamt verk og þarf mikillar aögæzlu við. Þá skrá- setning kvikmynda og annars sem tengist sögu þeirra. Úr- klippur úr blööum og svo framvegis. Og í fjórða lagi vildi ég nefna notkun. í því sam- bandi vil ég nefna kvikmynda- sýningar. Safniö gefur mikia möguleika í því, þannig má til dæmis nefna sýningar þar sem tekin eru fyrir verk einstakra höfunda, stíll þeirra og þróun, einstök tímabil og svo mætti lengi upp telja, möguleikarnír eru nánast út í þaö óendan- lega. Þú nefndir uppeldisþátt safnsins. Já, þá á óg viö aö safniö á aö starfa svipað og bókasafn. Þar á líka aö vera hægt að fá sögu kvikmyndanna, úrklippur úr blöðum og kvikmyndir. Kvikmyndin á að hljóta sama sess í menntakerfinu og bók- menntir, því hún er svo snar þáttur í daglegu lífi okkar. Hún á aö vera kennslugrein í skól- um, bæöi út frá listfræðilegu sjónarmiöi og einnlg sem stuttu spjalli viö blaöam hvatning tii þjóöfélagsumræöu. Ég hef orðið var viö mikinn áhuga meðal kennara og nem- enda, sem hafa snúiö sér til mín í leit aö upplýsingum. Eins og málum er nú háttað er safnið ákaflega illa í stakk búiö til aö sinna þessari þörf. Hvað um gamlar íslenzkar myndlr? Ég er núna að fara utan til Danmerkur og meöal annars mun ég athuga meö gamlar íslenzkar myndir. Ég veit aö talsvert er til af gömlum, óskil- greindum íslenzkum myndum í kjallara danska kvikmynda- safnsins. Ég vonast til aö fá upplýsingar um afdrif íslandsmyndar Leo Hansen, sem var tekin hér 1929. Þaö er af svo mörgu aö taka. Þaö er mikið af íslenzkum myndum erlendis. Viö höfum áhuga á leiknu myndunum hans Guö- mundar Kamban, „Adda padda“ og „Hús í svefni". Viö vitum aö Albert Engström, frægur sænskur skopteiknari, tók hér mynd áriö 1911. Áriö eftir kom hingaö Dani, Einar Fouisen, og hann tók myndir ætlaöar til notkunar í skólum í Danmörku. Þaö má segja að ástandið sé svo slæmt, aö viö vítum ekki hvaö er til. Viö eigum eftir aö veröa fyrir von- brigöum en einnig einhverju ánaBgjulegu vonandi. Tíminn mun skera úr um hvaö af þessum myndum er til enn þann dag í dag. Nú en eitt vitum viö — og sú mynd veröur sérstakur heiðursgestur í safn- inu. Þaö er kvikmynd Viktors Sjöström, „Fjalla-Eyvindur“. Hún var tekin hér 1916 og varö heimsfræg — kom íslandi á blaö í Kvikmyndasögu heims- m í vikunni. Samtaliö fer ins. Þá get ég nefnt „Glataða soninn“, enska mynd sem var tekin hér 1923 og sýnd hér á landi 1929. Sjöström var brautryðjandi á sínum tíma og bryddaöi upp á nýjungum, svo sem að hafa landslagssenur í myndum sínum. Þessi mynd er nú í viögerð í Svíþjóö. Annars er þaö skemmtilegt, hvort sem þaö er tilviijun eöa ekki, aö eftir aö Engström kom hingaö og tók myndirnar áriö 1911 þá komu Danir ári síöar. Sama gerðist eftir aö mynd Sjöström varð fræg, þá komu Danir hingað ári síðar og filmuðu Borgarættina. Og svo eru það íslenzku brautryðjendurnir. Jú, jú og þaö er sorgarsaga frá því að segja, að ekki er til fé il að gera viö myndir íslenzku brautryöjendanna og ástandið á myndunum er geigvænlegt. Magnús Jóhannsson hefur í sinni vörzlu kvikmyndir Lofts Guömundssonar frá þriöja ára- tugnum. Þessar myndir eru á nítratfilmu, og þær liggja undir skemmdum því nítrat eyðist. Magnús hefur sótt um styrk til Þjóðhátíðarsjóðsins til viö- gerða, og hann hefur fullan stuöning okkar. Annað getur hann ekki leitað og er auövitað til vansa. Margar mynda Óskars Gíslasonar eru bara til í frum- gerö og þær eru farnar aö skreppa saman og margar ekki nothæfar. Þaö er sárt fyrir Óskar aö sjá á eftir þessum myndum sínum í glatkistuna veröi ekkert aö gert. Þessu verkefni vildum viö sinna en því miður — fjármagnið er ekki fyrir hendi. Ósvaldur Knudsen hóf aö kvikmynda fyrir alvöru í Heklugosinu 1947 og á filmum hans eru varðveittar dýrmætar myndir, sem ekki mega glatast. Þaö er brýnt verkefni, að myndum þessara brautryðj- enda veröi bjargaö því þær geyma liöna þjóðlífsmenningu. Hverjir eru megindrættirnir í sögu íslenzkrar kvikmynda- gerðar? Ég vil nefna þrjá megin- drætti og það skemmtilega er, aö þessir þrír brautryöjendur okkar koma viö sögu hver á sínu sviöi. Fyrst vildi ég nefna íslandsmyndir og landkynn- ingarmyndir, og þar kemur Loftur Guömundsson einkum við sögu. Þá hátíðamyndir og myndir vegna heimsókna en þar á íslenzk kvikmyndasaga rætur sínar. Óskar Gtslason kemur einkum við sögu þar. Loks eru náttúruhamfara- og eldgosamyndir. Sá kafli í kvik- myndasögu okkar hófst fyrir alvöru meö Heklugosinu ’47 og þá einmitt hóf Osvaidur feril sinn fyrir alvöru. Af og til hefur ein og ein leikin mynd komið fram en þær hafa meira veriö tilviljunum háöar, svona hips- um haps. H. Halls.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.